Alþýðublaðið - 14.04.1962, Blaðsíða 16
llWIWWMWIWMWIWWIWMMWtlWMMWIWV*«MMIMIIWMMWMMWIIWMM«<MWMWItMI
ÞESSI mynd var tekin í Þrídröngum fyrir vestan einn mesti síldarafli, sem
gær, er Höfrungur II. kem- Vestmannaeyjar. Eins og eitt skip hefur komið með til
ur til Akraness með 2600 sjá má er skipið drekkhlað- Akraness. Myndina tók Pét
tunnur af síld. sem skipið ið og flýtur sjór upp fyrir ur Elíasson skömmu áður
fékk í fyrradag vestur af hleðslumarkið. Þetta var en Höfrungur II. lagðist að
KIEIRI TÍÐINDI hafa gerzt í tíð
Ctúverandi stjórnar en nokkurn
tíma áður á jafnskömmum tima,
eagði Gylfi Þ. Gíslason viðskipta
•Hálaráöiierra í útrvarpsumræðun
nm í gærkveldi.
Ráðherrann sagði: Kjördæma
skipun landsins hei'ur verið ger
breytt og henni komið í réttlátt
Þorf. íslenzka krónan hefúr verið
rétt skráð, svartamarkaðsbrask
•neð gjaldeyri er úr sögunni, inn
/lutningur og gjaldeyrisviðskipti
eru að miklu leyti frjáls og vöru
tílrval innan lands hefur aldrei ver
4ð meira en nú, skattakerfið hefur
verið endurskoðað frá grunni og
sköttum létt af launamönnum, al
•nannatryggingar hafa verið stór
euknar og margvíslegar ráðstafan
ér- -gerðar- til eflingar vísindum og
tistum, tvö vandasöm deilumál við
vinveittar þjóðir hafa verið farsæl
tega til lykta leidd, landhelgismálið
og handritamálið og ég hika ekki
við að fullyrða að atvinna hefur
aldrei verið tryggari og lífskjör
t>jóðarinnar aldrei betri en nú um
þessar mundir;
FLOKKURINN
“ Skrifsfófa Alþýðuflokksins
' í Kópavogi er-í félagsheimil
inu Auðbrekku 50, sími 38
I30,:;Er .húu dagtega opin kl.
16-19 og kl. 20-22 - Alþýðu
flokksmenn, Kópavogi, komið
á skrifstofuna og vinnið vel
i komandi bæjarstjórnarkosn
ingum í Kópavógi.
IbimiiiiiiiiiivmiiiiwmiiV
Núverandi rikisstjórn hefur náð
meiri árangri én þær ríkisstjórnir,
er farið hafa með völd á undan
henni síðasta áratuginn, sagði við
skiptamálaráðherrann. Ástæðan er
sú, að núverandi stjórn hefur ráð
izt bæði gegn rangri gengsiskrán
ingu og gegn verð bólgunni, sagði
ráðherrann.
Hinn góði árangur kemur fram
á ýmsan hátt. Sl. ár er fyrsta árið
síðan styrjöldinni lauk, sem b’ú
skapur þjóðarinnar hefur verið
hallalaus gagnvart öðrum þjóðum.
ísleridingar eiga nú í fyrsta sim
um lángan aldur gjaldeyrisvarasj 'ð
og sparifé landsmanna er mik’. í
meira en það hefur nokkru sinni
fyrr verið. Vöruframboð fjöl
breyttara en áður og viðskipti
frjálsari en um áratuga skeið. At
vinná er mikil og trygg.
Gylfi sagði, að á tímabilinu frá
stríðsárunum og tíl 1959 hefði
tvenns konar mein þjakað efna-
hagslífið. Annars vegar hefði ver
ið stöðug verðbólga en hins veggr
röng gengisskráning. Flestar ríkis
stjórnir hefðu ráðizt gegn öðru
hvoru en engin nema núverandi
stjórn gegn hvoru tveggja. Þess
vegna hefði núverandi stjórn náð
betri árangri en fyrri stjórnir
En hefur hinn góði árangur í
efnahagsmálum ekki kostað mikla
kjáraskerðingu? spurði ráðherranh
Gylfi sagði, að skattaframtöl sýndu
að árið 1960 hefðu tekjur manna
hækkað og reynzt 6% hærri en
árið áður. Að vísu væri þá reiknað
með yfirvinnu einnig. Á sl. ári
hefðu orðið almennar kauphækkan
ir, 13-19%, að meðaltali líklega
14-15%. En síðan genginu hefði
verið breytt í agúst sl. hefði fram
færslukostnaður ekki hækkað
nema um 9% og síðan í ársbyrjun
1961 ekki nema um 12%. Sagði ráð
herrann, að óhætt væri að full-
yrða, að síðan viðreisnarstefnan
hefði verið tekin upp fyrst á árinu
1960 hefðu tekjur launamanna og
bænda aukizt meira en framfærslu
kostnaður hefði hækkað. En auk
þess, sagði Gylfi, að 1. júní n.k.
mundi kaup hækka um 4% og
mundi sú kauphækkun að mestu
leyti verða raunveruleg kjarabót.
Frh. á 5. síöu.
43. árg. — Laugardagur 14. apríl 1962 — 88. tbl.
Dóttirin tók
á móti tólf
marka strák
IJNG stúlka, sem á lieima suð-
ur í Hafnarfirði, varð í gærmorg-
un að taka á móti barni, sem
móðir liennar fæddi. Fæðinguna
bar mjög brátt að og vannst ekki
tími til að ná í ljósmóðir eða
lækni og var barnið fætt er ljós
móðirin kom.
Það var um klukkan sex í gær
morgun, að konan fékk skyndi-
lega liríðir. Var sonur hennar þá
strax sendur út til að ná í hjálp,
en á meðan hann var í burtu
kom barnið í heiminn, og.eina
hjálpin sem konan hafði, var
dóttir hennar, sem stóð sig rneð
mikilli prýði.
Var þetta frískur 12 marka
strákur, og gekk fæðingin hið
bezta. Heilsaðist bæði móður og
barni vel í gær.
Bæjarfulltrúum
Kópavogs fjölgað
Bæjarstjórn Kópavogs ' sam
þykkti í gær að fjölga bæjarfull
trúunum úr 7 í 9. Er talið' víst
eftir það að kommúnistar missi
meirihlutann í bæjarstjórn.
Stúlkan, sem tók á móti barn-
inu, sem er drengur, er 16 ára
gömul og er í 4 bekk í Flensborg-
arskólanum. Hún hefur lærfc
„Hjálp í viðlögum," en litið um
fæðingarhjálp. Er blaðið ræddi
við hana í gær, sagði hún, að
þetta hefði komið allt af íjálfu
sér og að hún hefði ekkert orðið
taugaóstyrk.
Bókauppboð
Sig. Ben'
SIGURÐUR BENEDIKTSSON
hélt bókauppboð í Sjálfstæðishús-
inu í. gær. 54 bækur voru á upp
boðslista.
Kirkjusaga íslands varð dýrusfc
bóka, 7500 kr. Keypti hana Haukur
Þorlírksson. Heimskringla prentuð
1697 í Stokkhólmi var slegin Torfa
Hjartarsyni á 620 Okr. Annálar-
Björns. á Skarðsá voru seldir. á
5500, en Valdimar Jóhannsson
heppti Sóreyjar útgáfuna af ferða
bók Eggerts Ólafssonar á 6100-kr..
Ferðafélaginn sveik út
iífeyrirsjóðshlutinn
TVEIR fyrrverandi togarasjó-
menn voru samferða á fimmtu-
dag með áætlunarbíl frá Ól-
afsvík til Reykjavíkur, þar sem
þeir hafa verið á vertíð.
Þeir tóku að ræða saman í
bílnum á leiðinni og barst í tal
að annar þeirra hugðist fá
greiddan hlut sinn úr Lífeyris-
sjóði togarasjómanna, sem er í
vörzlu Tryggingastofnunarinn-
ar.
Hinn kvað það létt verk, þar
sem hann hefði sjálfur fyrr í
vetur fengið út sinn hlut úr
sjóðnum. Bauðst hann til að að-
stoða við að fá pcningana
greidda.
Þegar sjómennirnir komu til
Rcj’kjavíkur fóru þeir til
Tryggingastofnunarinnar, en
gátu ekki fengið peningana þá,
því búið var að loka.
Þeim, sem átti inni í ájóðn-
um, var sagt að koma daginn
eftir og þá mundi hann fá þen-
ingana greidda.
Næsta dag var svo hringt til
Tryggingastofnunarinnar og
sagt, að það væri N. N. sem
liefði komið daginn áður til að
fá grciddan sinn lilut úr Líf-
eyrissjóði togarasjómanna, og
var spurt hvort hann gæti' sent
konu sína til að fá peningana.
Þar, sem menn könnuðust
við málið í Tryggingastofnun-
inni var manninum sagt, að
það væri í lagi. Nokkru síðar
kom konan og fékk penirigana
greidda, um 5 þúsund krónur.
Klukkustund síðar kom svo
sá, sem átti peningava í sjóðn-
um og vildi fá þá út. Þá varð’,
uppi- fótur og fit í Trygginga-
stofnuninni og manninum sagt,
að kona hans hefði komið litltl
áður og fengið féð. Maðurinn
sagði þá, að það gæti ekki ver-
ið, því að hún biði hans fyrir
utan í bíl.
Við nánari athugun kom í.
ljós, L að ferðafélagl sjóinanns-
ins frá deginum áður hafði
séð ýér leik á borði og krækt
sér í aurana.
Ránnsóknarlögreglunni var
tilkynnt um málið, hún kann-
aðist við kauða af fyrri viðskipt-
um og var á hnotskóg eftir hon
um í gær.