Alþýðublaðið - 14.04.1962, Blaðsíða 3
Bidault týndur
AuBmenn ráðast
gegn stjórninni
Washington, 13. apríl.
NTB-Reuter.
MIKIL ólga hefur verið í
Bandaríkjunum vegna þeirrar á-
kvörðunar ýmissa stórra stál-
framleiðslufyrirtækja, að hækka
stálverðið um 6 dollara á lestina
á stáli. Nýlega hafa verið undir
rilaðir nýir kjarasamningar við
★ DAMASKUS.
Nazen-el-Kudsi, sem var
forsætisráðherra síðustu stjórnar
í Sýrlandi, hefur fallizt á tilmæli
hershöfðingja um að taka aftur
við stjórnarforustu. Hefur þá á-
standið í stjórnmálum næstum því
snúizt í heilan hring á 2 vikum.
★ AÞENU.
Að minnsta kosti 25
stúdentar og 20 lögreglumenn
slösuðust í átökum í Aþenu í gær,
þegar tvö þúsund stúdentar fóru
í kröfugöngu þrátt fyrir bann
lögreglunnar. Yfir 200 þeirra voru
liandteknir eftir tveggja stunda
•liarða viðureign á götum borgar-
innar.
★ LONDON.
Fulltrúar 40 þjóða gengu
í dag frá uppkasti að samningi
sem skuldbindur aðila til að
banna skipum, sem sigla undir
þjóðfánum þeirra, að óhreinka
yfirborð sjávar á stórum svæðum
á Atlants- og Kyrrahafi með ,því
að dæla olíu í sjóinn.
við verkamenn við stáliðju og
hækkuðu laun þeirra það lítið, að
engin ástæða var talin fyrir verð
hækkun.
Kennedy forseti hefur for-
dæmt þessa ákvörðun iðjuhöld-
anna harðlega og sagt, að hún
væri óréttlætanleg. Myndi verð-
hækkun þessi baka ríkisstjórn-
inni geysileg útgjöld og auka
verðbólgu í landinu, á sama tíijia
sem öryggi allra frjálsra þjóða
krefðist þess að jafnvægi héldist
í efnahagsmálum. Kennedy
benti á, að vegna fyrirlitningar
auðmanna á hagsmunum þjóðar-
heildarinnar myndu nú fjöldi
vörutegunda hækka í verði og
lífskjör manna því versna.
Almenningsálitið í Bandaríkj-
unum er nú mjög á skoðun for-
setans og hefur verðhækkunin
verið fordæmd af fjölda forustu-
manna um landið allt.
Robert Kennedy, dómsmálaráð-
herra, hefur fyrirskipað rannsókn
á framferði stáliðjuveranna og
hermálaráðuneytið hefur tilkynnt
að framvegis verði stál til hern-
aðarþarfa aðeins keypt af þeim
fyrirtækjum, sem ekki hafa hækk
að stálið.
Stórt stáliðjuver í Chicago til-
kynnti í dag, að það myndi ekki
hækka stálverðið og er talið að
fleiri muni fylgja í kjölfarið.
Mörg bandarísku dagblaðanna
telja í dag, að ákvörðun iðju-
höldanna, sé af pólitískum toga
spunnin og séu þeir með þessu
að reyna að klekkja á stjórn
Demókrata og þó sérstaklega á
þeim Kennedy forseta og Gold-
berg verkalýðsmálaráðherra.
París, 13. apríl.
NTB-Reuter.
ÞAÐ veldur mönnum nú
miklum heilabrotum, hvar Ge-
orges Bidault, hinn víðkunni
stjórnmálamaður og fyrrverandi
forsætisráðherra Frakklands, er
niðurkominn.
Upplýst er, að hann hefur ekki
dvalizt í bústað sínum, skammt
fyrir utan París síðan um miðj-
an marzmánuð og svissnesk yfir
völd kannast ekki við, að hann
dvelji í útlegð þar í landi.
Nokkrir dagar eru nú liðnir
síðan Bidault sást siðast í París,
en þá barst dagblöðunum til-
kynning um, að foringi hermdar-
verkamanna OAS, Salan hers-
höfðingi, hefði ákveðið að skipu-
leggja hreyfinguna í Frakklandi
FOLKSBILASTOÐ AKRA-
NESS FÆR NÝTT HÚS
★ STOKKHOLMI.
Sænski rithöfundurinn
Erik Lindegren var í gær kjörinn
í sænsku Akademíuna. Linde-j
gren verður eftirmaður Dags
heitins Hammarskjölds í Aka-
demíunni.
★ PARÍS.
Michael Debré forsætis-
ráðherra Frakklands mun leggja
fram lausnarbeiðni sína í dag,
en talið er að á mánudag muni
Georges Pompidou taka við em-
bætti forsætisráðherra. Hann er
nú bankastjóri í París, en var
lengi háskólakennari í hagfræði.
Hann þykir með mestu gáfumönn
um Frakka og hefur lengi verið
persónulegur ráðgjafi de Gaulle.
Grafarnesi, 13. apríl.
SAUTJÁN staurar brotnuðu í
háspennulínunni milli Ólafsvíkur
og Grundarfjarðar í ofsaveðri í
dag. Skriða féll á veginn hjá Bú-
landshöfða svo að ófært er milíi
Ólafsvíkur og Grafarness.
Þetta gerðist í suð-suðaustan
roki og rigningu, en :í .völd hafði
veðrinu slotað. Vinnuflo'.tkur frá
Reykjavík er á leiðinni hingað,
en talið er að viðgerð ,.aki cvo til
þrjá daga. Ýta frá Ólafsvík er lögð
af stað til Búlandshöfða til þess
að gera við veginn, en ekki er
víst hvort það takizt strax.
Þak fauk af húsi hér í þessu
ofsaveðri, en engar skemmdir hafa
orðið í höfninni. Þá féll skriða
hjá einum bænum í sveitinni, en
skemmdir munu ekki hafa orðið
miklar.
Að sögn fróðra manna mun
bráðabirgðaviðgerð á háspennulín
unni milli Ólafsvíkur og Grundar
fjarðar taka tvo til þrjá daga.
Vinnuflokkurinn frá Reykjavík var
væntanlegur hingað í kvöld. Aðrar
skemmdir á háspennulínunni á
fjallinu milli Ólafsvíkur og Grafar
ness hafa ekki verið kannaðar.
Eftir er, að ganga úr skugga
um hvort háspennulínan sé slitin.
Ef svo reynist ekki vera kann við
gerðin að taka skemmri tíma — SH
Akranesi í gær.
Fólksbílastöðin á Akranesi
hefur nú eignast nýtt og fullkom
ið hús fyrir starfsemi sína. —
Verður það opnað í dag. Frétta-
mönnum hér var í gærkvöldi boð
ið að skoða hús þetta, sem stend
ur á bezta stað í bænum.
Er stöðvarhúsið um’ 126 fer-
metrar að stærð, byggt úr timbri.
í því er rúmgóður afgfeiðslusal-
ur, vistleg setustofa |yrir bíl-
stjórana, skrifstofa, baðherbergi
og geymslur. Allur frágangur á
byggingunni er hinn bezti, en yf-
irsmiður var Guðmundur Magn-
ússon trésmíðameistari.
í húsinu verður sælgætis og gos
drykkjasala, og einnig verða seld
ar þar olíur og benzin frá Esso.
í maí kemur hingað til Akraness,
sendiferðabifreið, sem mun hafa
aðsetur sitt í stöðinni.
Með tilkomu þessa riýja húss,
vonast forráðamenn stöðvarinnar
til að geta veitt betri og fullkomn
ari þjónustu en áður. Verður nú
stöðin opin alla virka daga til kl.
11,30 og til 2 um helgar.
Fólksbílastöð Akraness var
stofnuð í júlí í fyrra, og í stjórn
eru: >
Formaður, Jóhann P. Jóhanns-
son, Karl Helgason, varaform. og
Guðmundur Halldórsson ritari.
Helgi.
á sama hátt og hún væri nú skipu
lögð í Alsír. Lýsti sá, sem undir-
ritaði tilkynninguna yfir því, að
hann myndi framvegis stjórna
Frakklandsdeild OAS. Undir-
skriftin var nafnpár, sem líkist
mjög eiginhandarundirskrift
Bidault.
í París velta menn því nú fyrir
sér, hvort að OAS menn, sem eru
nú á miklu undanhaldi í Alsír,
hafi í raun og veru í huga að
flytja aðalstarfsemi sína yfir til
Frakklands, og muni þá ætla að
berjast gegn fimmta lýðveldinu
á næstu árum. Bent er á, að um
2600 manns hafi verið handtekn-
ir í Frakklandi fyrir stuðning við
OAS, og að flestir þeirra koma
úr millistéttunum, úr hópi sama
fólks, sem fyllti flokk Pierre
Poujade á dögum fjórða lýðveld
isins. Öfgamenn til hægri
byggja nú vonir sínar um að
steypa fimmta lýðveldinu af stóli
á því, að þegar de Gaulle njóti
ekki lengur við, muni stjórn-
skipulagið liðast í sundur og fólk
ið riðlist til vinstri og hægri.
Setja þeir dæmið svo niður fyr-
ir sér, að þá muni meirihluti
þjóðarinnar styrkja þá, af ótta
við valdatöku kommúnista.
Meðan að de Gaulle er enn við
völd, verða þessar bollaleggingar
OAS manna aðeins draumurinn
einn, en sá draumur kann að
verða þess valdandi, að Georges
Bidault hefur nú valið þann kost
inn, að láta stimpla sig sem for-
ustumann í samtökum öfgasinn-
aðra hægrimanna og hermdar-
verkamanna.
Stjómarmyndun
í Finnlandi
Helsingfors, 13. apríl.
NTB-FNP.
Stjórnarmyndun hefur nú
loksins tekizt í Finnlandi eftir
langa stjórnarkreppu. Hin nýja
stjórn verður undir forsæti Ahti
Karjalainen, sem var utanríkis-
ráðherra í fráfarandi stjórn.
SÍLDIN AÐ KOMA
VIÐ JÖKULINN
Síldarleitarskipið Fanney var í
gærkvöldi statt rétt vestan við
Öndverðarnes, og leitaði þar að
síld. Alþýðublaðið ræddi við skip'
stjórann, Jón Einarsson og spurði
hann frátta af síldveiðunum.
Sagði hann, að lóðað hefði verið
á töluvert af síld til og frá suður
af Jökli, en síldin stendur þar nokk
uð djúpt. Bátarnir komu þangað í
fyrramorgun, en er líða tók á dag
inn, spilltist veður mjög og fóru
bátarnir til lands án þess að veiða
nokkuð.
Þá hefur Fanney lóðað á síld
inn með Kolluál en þar heldur
hún sig niður við botninn. Þá sagði
Jón að töluvert væri af síld á
Sandvík og norð-vestu af Þrídröng
um fyrir vestan Vestmannaeyjar,
en þar fékk Höfrungur II. 2600 tn.
í fyrradag. Sama dag fengu eftir
taldir bátar síld á Sandvík: Víðir
II. 900 tunnur Guðmundur Þórðar
son 900 tunnur, Skírnir 600 og
Hringver 600 tunnur.
Um útlit síldveiðanna, sagði Jón
að síldin væri nú að koma aftur
vestur við Jökul, og mætti búast
þar við góðri veiði ef veður batn
aði. Hann sagði að sjórinn væri
mjög kaldur þar fýrir vestan, og
þar af leiðandi héldi síldin sig
djúpt, en um leið og veður hlýnaði
kæmi.hún upp..
Síldin sem bátarnir fengu í
fyrradag, var yfirleitt mjög góð.
í gærkvöldi var búist við því
að síldarbátarnir hér fyrir sunnan
færu á veiðar, enda var veður
mjög tekið að batna.
Það var fyrst í dag, sem Karja
lainen tókst að ná málamiðlun
milli borgaraflokkanna fjögurra
innbyrðis og finnskra fagsam-
bandsins, um væntanlega stjórn
arstefnu og skipun ráðherraem-
bætta.
Stjórnin hefur nú birt stefnu-
skrá sína, sem er í 40 liðum og
fjallar hún mestmegnis um efna
hags, landbúnaðar og félagsmál.
Stjórnin lýsir því yfir, að hún
muni vinna að því, að koma á
40 stunda vinnuviku og muni
skipa nefnd til að gera till. um
hvernig því marki verði náð, án
þess að samkeppnisaðstaða at-
vinnuveganna versni eða afköst
þeirra dragist samán.
Utanríkisráðherra hinnar nýju
stjórnar er Veli Merikoski úr
Finnska þjóðarflokknum, en hann
er prófessor í stjórnskipunar-
rétti við Háskólann í Helsingfors.
Dómsmálaráðherra verður J.
O. Söderhjelm, dr. juris úr.
Sænska þjóðarflokknum og fé-
lagsmálaráðherra verður Olavi
Saarinen, úr verkalýðshreyfing-
unni.
HRÓLFUR Sigurðsson
opnar fyrstu sýningu sína á
20 olíu- og pastelmyndum
í Bogasalnum í dag kl. 4.
Sýningin verður opin dag-
lega kl. 2--10 síðdegis fram
yfir páska.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. apríl 1962 3