Alþýðublaðið - 14.04.1962, Síða 7
t
ungur
smásagnahöfundur
Jakob Tliorarensen:
GRÝTTAIt GÖTUR.
Smásögur. Helgafell.
Víkingsprent.
Reykjavík 1961.
JAKOB Thorarensen er engan
veginn af baki dottinn sem smá-
sagnahöfundur. — Hálfáttræður
þreytir hann íþrótt sína svo ern
og ungur að senda frá sér nýja
bók, sem honum er vissulega
sómi að. Kannski má segja, að
Jakob komi lesendum naumast
á óvart, enda er hann sérstæður
og einþvkkur rithöfundur, en
honum bregzt ‘ sannarlega ekki
bogálistin. Smásögurnar tíu í
„Grýttum götum” eru á skemmti
legan hátt með hans lagi og sér-
kennum. Þær eru raunar misjafn
ar, en eigi að síður vinnur höf-
undurinn ærinn sigur og þarf
engrar afsökunar að biðjast.
Bernskan græn er jakobsk
smámynd, en vantar sennilega
mótaðri ramma, og þess vegna
dettur manni í hug, að þetta sé
varla fullunninn smíðisgripur.
Svipuðu máii gegnir úm Stóru
plágu, þó að sú saga sé stærri í
sniðum og miklu efnisríkari. —
Höfundinum mistékst þar sú
jakobsglíma að gæða frásögn og
túlkun listrænum tvíleilc, sem
verði lesendunum eins konar op-
inberun. A viðreisnarvegi og
Ljótunn fagra eru sýnu laun-
drýgri skáldskapur, en samt
vantar í þær einhvern herzlu-
mun, þó að gaman sé að glettni
Jakobs í báðum þcim sögu'm og
kunnáttusemi hans í . einhæfn-
inni. Föðurarfur er undir sömu
sök seld, þó að þar sé um að
ræða stórmannlega viðleitni.
Spýta sporðreistist og Skyssa
þykja mér betri sögur, enda þótt
minna virðist í þær lagt fljótt á
litið. En þar kennist fljótt og
glöggt sú aðferð, sem er að ýmsu
leyti sérgrein Jakobs í íslenzkri
smásagnagerð, íþrótt undur-
furðulegrar kímni, þar sem höf-
undurinn bregður á gáskafullan
ieik undir sakleysislegu yfir-
skini. Þá eru ótaldar þrjár sög-
ur bókarinnar, sem bera langt af
systrum sínum og taka af ‘öll
tvímæli um, hvað Jakobi Thorar-
ensen lætur vel skáldskapurinn,
þrátt fyrir' sinn langa vinnudag.
Þær heiía Aldnar hendur, Barn-
órar og Ævisögur mannanna.
Mér er harla erfitt að.gera upp á
milli þeirra, en þær mætti allar
vistráða í úrvali,
Barnórar er ef til vill bezt
gerð og Jakobi líkust, enda svip-
mest og fjölbreytilegust. Höf-
undurinn leikur þar á marga
strengi og segir mun meira en
felst í' orðanna hljóðan, þó að
hún sé engin tæpitunga. Mig
grunar, að sú saga verði oft end-
urprentuö á komandi árum og
þyki jafnan eftirminnileg sönn-
un um verklag og vinnubrögð
höfundar síns. Næst myndi ég
telja Ævisögur mannanna, ef
mér yrði þröngvað til að raða
þessum ágætu sögum. Höfund-
inum virðist þar ádeila í hug, en
hún er minnsta kosti góðlátleg,
því að gamanið reynist græzku-
laust og hátt hafið yfir alla geð-
vonzku. Megingildi sögunnar
felst hins vegar í hugkvæmni
Jakobs, þegaf hann velur sér að
frásagnarefni þann möguleika,
að bændur heillar sveitar verji
hábjargræðistímanum til ' rit
starfa og stofni þannig sér og
sínum í svipaða hættu og
Hrafna-Flóki forðum daga.
Fleira ber og til tíðinda í sög-
unni, því að mannleg náttúra er
löngum, söm við sig að dómi
Jakobs, þegar honum er dillað,
þó að hann þykist ástunda hóf-
semi í spaugi sínu. Og hér fellir
æringinn Jakob Thorarensen allt
í skorður listrænnar túlkunar,
svo að sagan gengur upp eins og
SKÁKSAMBANDIÐ hefur ákveðið að efna til skák
keppni fyrir unglinga (12 — 17 ára) og efst hún í
dag'. — Myndin: Drengir úr Laugarnesskóla tefla
við skálcklúbb Æskulýðsráðs.
ezta orgeli
á Akureyri
Akureyri, 11. apríl.
DR. PÁLL ÍSÓLFSSON sagði á
fundi með fréttamönnum í dag,
að nýja pípuorgeliö í Akureyrar-
kirkju væri eitt bezta hljóðfæri,
sem hann hefði leikið á.
Pipuorgelið, sem er þýzkt og af
Steinmeyergerð er eitt stærsta og
vandaðasta pípuorgel landsins. Dr.
Páll lýsti ágætum þess og sagði
m. a. að í því væru 3100 pípur og
45 registur. Kostnaðurinn mun
vera um ein milljón króna.
Það var sóknarnefndin sem bauð
fréttamönnum að spjalla við dr.
Pál á Hótel KEA. Jón Þórsteins-
son, formaður sóknarnefndaiinn-
ar, bauð fréttaritara velkonma, og
síðan lýsti dr. Páll orgelinu. Hann
sagði m. a. að Steinmeyer-fyiir-
tækið væri mjög þekkt og fram
leiddi aðeins úrvals hljóðfæri.
JAKOB THORARENSEN
furðulegasta spilaþraut. Aldnar
hendur gerist sömuleiðis í töfra-
birtu jakobskrar glettni, en er i
varla samræmd heildarmynd á |
borð við hinar tvær — og þó í
ærnu gildi.
Heizti gallinn á sögunum í
„Grýttum götum” mun sá, að
þær gjaldi þess í samtölum, hvað
höfundur þeirra er persónuleg-
ur. Jakob Thorarensen verður að
láta manngerð sögufólksins, rás
viðburðanna og leik örlaganna í
bókum sínum þjóna sérlegri ein-
þykkni sinni, og þess vegna er
skiljanlegt, að samtölin verði
ekki alltaf eins fjöibreytileg og
margur vandfýsinn lesandi kysi.
En sigur Jakobs er líka mikill, ef
honum tekst að leysa vandann.
Þá 'skipar hann sér á bekk með
snjöílustu smásagnahöfundum
okkar fyrr og síðar. Og það má
Jakob Thorarensen eiga, jafn-
vel þó að honum mistakist, að
hann þaef aldrei að fá neitt að
láni frá öðrum. Hann býr að
sínu og nýtur þess ríkulega, þeg-
ar honum auðnast að láta sér
heppnast verkið.
Helgi Sasmujpdsson.
Dr. Páll Isólfsson lék verk sftir
ýmsa þekkta höfunda á hið nýja
pípuorgel í Akureyrarkirkju i gær
og var kirkjan fullsetin. Á undan
sagði dr. Páll nokkur orð um (ón-
skáldin, sem hann kynnti. Auk
þess sungu þeir Sverrir Pálsson
og Jóhann Konráðsson einsör.g.
Sr. Pétur Sigurgeirsson þakkaði
dr. Páli fyrir tónleikana og að lok-
um var þjóðsöngurinn sunginn.
í fyrstu stóð til, að Páll vígði
hið nýja orgel í haust, en af þvi
varð ekki af sérstökum ástæðum.
Síðan var ákveðið að hann kæmi
hingað síðar, og léki á orgelið, og
gcrði hann það loks í gajr við
mikla hrifningu. G. St
um páskana
IIINIR þekktu langferðabíl-
stjórar, Kjartan og Ingimar, efna
til ferðar í Öræfasveit um pásk-
ana. Lagt verður af stað 19. apr.
en þann dag verður ekið austar
að síðu og verður gist að Kirkji-
bæjarklaustri.
Daginn eftir verður ekið a9
Dverghömrum og Núpsstöðum og
verður nokkur viðdvöl á báðum
stöðunum. Þá verður ekið að sæiu
húsinu á Skeiðarársandi og síðan
í Öræfasveit og gist þar. Á laug-
ardeginum verður ekið austur á
Breiðamerkursand og að Ingólfs-
höfða, ef aðstæður leyfa. Síðan
verður ekið að Svínafelli og gist
þar.
Á páskadag verður ekið vestur
að Síðu og Innristaðir skoðaðir,
ef veður og tími leyfa. Um nótt-
ina verður gist að Vík í Mýrdai.
Á mánudeginum verður lagt nf
stað til Reylcjavíkur.
Þátttakendur í ferðinni þurfa
að hafa með sér svefnpoka, pg
geta haft með sér tjöld, ef þéir
vilja. Þá verða þeir að hafa með
sér nesti, en þeir, sem vilja ge'ta
i keypt mat og kaffi á leiðinni til
jVíkur í Mýrdal og að Kirkjubæj-
'arklaustri. Kaffiveitingarnar
jverða meðal dvalið er í Öræfa-
I sveit og er það innifalið í verð-
inu, en verðið er 750 krónur. —
Fararstjóri verður Brandur Stef-
! ánsson frá Vík.
Allar nánari upplýsingar um
ferðina, er að fá hjá Ferðaskrif-
, stofunni Lönd og leiðir, en hún
i annast jafnframt farmiðasölu.
Páskaferð um
Snæfellsnes
FARFUGLAR efna til 5 daga
ferðar um Snæfellsnes og Dali um
páskahelgina. Lagt verður af stað
á skírdagsmorgun og ekið vestuc
í Gullborgarhraun og hellarnir
skoðaðir, þaðan vcrður ckið að
Görðum 1 Staðarsveit og gist.
Á föstuda^inn langa verður
gengið á Snæfellsjökul. Á laugar-
dag verðu rekið að Arnartsapa,
Lóndröngum og fleira. Á páska-
dag verður ekið að Arnarstapa
! í Ólafsvík þaðan ekið fyrir Búlands
j höfða í Stykkishólm, síðan verour
j ekið inn Skógarströnd í Ðaii og
gist í Nesodda. Arinan páskada^
verður ekið um Bröttubrekku nið-
ur í Borgarfjörð til Reykjávíkur.
Fargjald verður kr. 600,10.
Skrifstofan er opin fimmtudag
og föstudag kl. 20,30—22 eg laug-
ardag kl. 2—6 e. h. Sími 15937.
Mjólkin
um
á sl. ári
AÐALFUNDUR Mjólkursamsöl-
unnar var haldinn föstudaginn 6.
þ. m. Sátu hann fulitrúar frá öll-
um mjóikursamlögunum á sölu
svæðinu, ásamt stjórn og forstjóra
fyriríækisins.
Formaður flutti yíirlit um störf
og framkvæmdir stjórnarinnar, en
forstjórinn, Stefán Björnsson,
j lagði fram ársreikning, skýrði þá
og gaf ýmsar upplýsingar úm rekst
! urinn á árinu.
Innvegið mjólkurmagn á öllu
sölusvæðinu var 49.257.789 kg. og
j er aukning frá fyrra ári 3.488.265
j kg. 'eða tæpt 7,6 %.
! Mjólkurmagnið skiptist þannig
I á mjólkursamrlögin:
■ Mjólkurbú Flóarnanna 32.800.450
j kg. aukning 2.715.105 kg.
I Mjólkursaml. Kf. Borgf. 7.759.804
kg. aukning 718.418 kg.
j Mjólkurstöðin í Reykjav. 8.369,037
I Mjólkurstöðin á Akran. 1.827 838
kg. lækkun 84.325 kg.
kg. hækkun 119.066 kg.
Á árinu nam sala neyzlumjólkur
29.221.384,5 ltr og hafði mjólkur
salan aukizt um 1,856% og var
neyzlumjólkin 61,16% af heildar-
mjólkinni.
Af rjóma seldust 821.826 ltr. og
var söluaukning 1,12% og af skyji
seldust 1.339.042,5 kg. og var sölu
aulcning 2.984%. Auk þess var selt
nokkurt magn af ýmsum öðrurn
m j ólkurvörutegundum.
Mjólkursamsalan seldi mjólk og
mjólkurvörur í samtals 108 útsölu
stöðum á árinu og fast starfsfólk
hennar var í árslok 416 manns.
Úr stjórn áttu að sanga Svein-
björn Högnason, Breiðabólstað og
Einar Ólafsson, Lækjarhvamibi
og voru báðir endurkjörnir. Aðrir.
í stjórninni eru: Sverrir Gíslason,
Hvammi, Ólafur Bjarnason, Braut-
arhoiti og Sigurgrírniur Jónsson,
Ilolti.
ALþÝ0liBi-A3!'9Ía—' 14. ^tíí Í962 -f ‘5