Alþýðublaðið - 17.05.1962, Qupperneq 3
Frá ALSÍR:
Sprengingar
og morð OAS
HRYÐJUVERK OAS-manna heldu
áfram í Alsír í gær. í gærkvöldi
var talið, að yfir 40 serkir hefðu
fallið fyrir vopnum ofstopamann-
anna.
í hópi hinna föllnu var einn
prestur og lítill drengur. Dráp
barnsins þótti hvað hroðalegast, en
það vildi til með þeim hætti, að
OAS-maður gekk að honum, þar
Ný rósa-
tegund
MÖRGUM finnst afskorín blóm
standa illa, og sums staðar deyja
blómin ofan í vasann á öðrum eða
jafnvel fyrsta degi. — Stöðugt er
unnið að því að rannsaka, hvaða
aðferðum megi beita til að fá fram:
fallegar blómategundir sem kaup-j
endur hafa mikla og langrarandij
ánægju af. Rósir vilja falla allra
blóma fyrst, en nú hefur tekizt að
framleiða nýja rósafegund, sem
þegar er orðin vinsæl erlendis. —
Þessi tegund heitir BACCARA.
Baccara-rósir eru ekki enn komn-
ar í ræktun á íslandi.
Aftur á móti hefur garðyrkju-
bændum í Mosfellssveit tekizt að
fullþroska chrysantemum eða
prestakraga, sem að jafnaði koma
hér ekki á markaðinn fyrr en að
haustinu. Garðyrkjumenniinir
hafa orðið að byrgja blómin með
svörtum plasttjöldum. til þess að
þau döfnuðu vel, en chrysar.tem-
um þolir ekki dagsljós nema á-
kveðinn tíma daglega. Bjartar vor
næturnar á íslandi slá glýju í aug-
un á þeim. Chrysantemum frá
gróðurhúsum í Mosfelissveit eru
væntanlegar á markaðinn innan
skamms, — en þau blöm eru mjög
falleg og standa ákaílega vel.
sem hann var að leik úti í sólskin-
inu og skaut mörgum kúlum í höf-
uð hans.
OAS-menn héldu uppteknum
liætti með sprengjuskeyti á ibúð-
ai-hverfi Serkja og oliu bæði
manntjóni og eignatjóni.
Þrír ráðherrar úr stjórn de
Gaulle, sögðu af sér í dag, en þeir
sögðust ekki geta aðhyllzt þá
stefnu, sem de Gaulle befði lýst
yfir á fjölmennum blaðamanna-
fundi, sem hann hélt í fyrradag.
Þar lýsti de Gaulle því in. a. yfir,
að höfuð markmið stjórnarinnar
væri að koma á fót öflugum her,
sem búinn væri fullkomnustu at-
ómvopnum og vinna að póUtískri
einingu allrar Evrópu.
Rússar
sprengja
að nýju
NIKITA Krustjov, forsætis-
ráðherra, tilkynnti í ræðu,
sem hann hélt yfir fjölmörg-
um búlgörskum verkamönn-
um í gær, að Sovétríkin
mundu bráðlega hefja nýjar
kjarnorkusprengingar, en
þessi ákvörðun væri bein af-
leiðing af þvi, að Bandaríkja
menn hófu aftur tilraunir
með kjarnorkuvopn.
Ódýrar körfur
í stað dýrra
RAMMGERÐAR blómakörfur, sem
kosta stundum næstum helming
þess, sem blómin, sem í þeim eru,
kosta, hverfa að öllum
líkindum á komandi árum, en í
þeirra stað koma liandhægari kórf
ur, verðlitlar, sem má fleygja þeg-
ar í stað, — en sú verða oftast
endalok hinna rammgerðari líka,
þótt dýrar séu. — Þetta kom fram
á blaðamannafundi með garðyrkju
bændum í Mosfellssveit í gær.
Staðreyndin er sú, að blómin
standa illa og lifa skammt í
blómakörfunum, sem hér tíðkast,
og þegar blómin deyja er karfan
fólki aðeins til trafala, og loks
lendir hún að likindum í ösku-
tunnunni. í Ameríku hcfur nú ver-
SEÁTO sam-
ið tekinn upp sá liáttur, að selja
blóm í snotrum en hræódýrum
körfum eða ódýrum glerkrukkum,
sem geta verið fagurlega skreyttar
en hafa þann kost fram yfir allar
blóinaköríur, að í þeim getur
staðið vatn„ en vatn er mestur líf
gjafi afskorinna blóma eins og
allir vita.
Garðyrkjubændur voru á einu
máli um það, að körfur og krukk-
ur sem þessar þyrítu að koma til
þess að fólk eyddi ekki fé sínu að
óþörfu í kaup; á rammgerðum
blómakörfum en í þess stað væru
lifandi, reisuleg blóm á hverju
heimili.
tMMMHUMHMtMMMMMtM*
þykkt USA
BANDARÍKJAMENN hafa sent
fjölmennt herlið til Thailands til
þess að taka á móti hugsanlegri
kommúnistískri árás frá nágranna
Iandinu Laos. Bandaríska utanríkis
ráðuneytið tilkynnti U Tliant, fram
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, þetta í gær, en lögð var á
það sérstök áherzla, að herliðinu
væri einkum falið að gæta réttar
þess lands í Suð-Austur Asíu-
bandalaginu, sem er i vinartengsi
um við Bandaríkin.
1000 hermenn voru í ciag send-
ir til Thailands frá Bandaríkjun-
um, en þar eru um 1000 ameriskh-
liermenn fyrir og 1800 verða send-
ir úr áhlaupasveitum flotans. —
1200 hermenn eru tilbúnir að fara
frá Filipseyjum til Thailands og
búizt er við, að þegar allt ainer-
íska liðið er saman komið muni
það vera um 5000 manns.
Fastaráð Suð-Austur-Astu-banda
lagsins(SEATO)lýsti sig í gær samþ
þessum aðgerðum Bandaríkja-
manna, en herir kommúnistans
Pathet Lao standa gráir fyrir vopn
um í um 80 km. fjarlægð austur af
landamærum Thailands.
Vitað er, að leitað verður til
fleiri ríkja um aðstoð við Thailend
inga og í gærkvöldi tilkynnti for-
! sætisráðherra Nýja-Sjálands, að
leltað hefði verið til stjórnar sinn-
•ar um aðstoð. Hvort þeirri mála-
leitan verður sinnt, verður ákveð
ið í dag.
100^0
dýrari
hlóm
ÞEIR, sem leggja leið sína
í blómaverzlanir og láta freist
ast til að kaupa einhver af
þeim fögru blómum, sem
jafnan eru á markaðinum,
vita það fáir, að þessi unaðs-
fögru blóm eru miklum mun
dýrari í verzluninni en hjá
garðyrkjumönnum, sem
rækta blómin. Álagningin á
blóm, sem liingao eru flutt
frá gróðurhúsum í nágrenni
bæjarins er gífurleg eða allt
upp í 100%.
En garðyrkjubændur eru
bundnir samningi við blóma-
verzlanir og selja ekki blóm
til einstaklinga, — og þar
stendur hnífurinn í kúnni.
IMMMMMMHMMMIMMMMM
ELGO
LOSAÐ:
ÞRJÚ norsk flutningaskip bíða
nú eftir síld á Akranesi, Steinfell,
Vestkyst — og Vimi. Tvö síldar-
flutningaskip eru á leiðinni frá
Noregi. í gær var byrjað að losa úr
sjötta síldarflutningaskipinu, Elgo,
í Vestmannaeyjum.
Síldarflutningaskipið Vimi kom
til Akraness um kl. 3 í gær frá
Eskifirði þar sem farmurinn var
seldur. Hvasst hefur verið á mið-
unum, bátarnir hafa átt c-rfitt með
að athafna sig og lítil síld borizt
til lands. Bíða skipin á Akranesi
þangað til þau fá afgreiðslu.
Talið var, að langt yrði komið með I
að losa Elgo í Eyjum í gærkvöldi.
Ætlunin er, að skipið færi síðan til
Akraness að taka þar sildarfarm,
ásamt hinum skipunum.
Þó fær skipið ekki að fara írá
Eyjum fyrr en trygging hefur ver-
ið sett fyrir björgunarlaunum gagn
vart varðskipinu Þór, sem bjarg-
aði skipinu eins og kunnugt er, og
þegar skipið hefur verið losað,
stendur aðeins á tryggingunni.
Það er fiskimjölsverksmiðjan í
Vestmannaeyjum, sem kaupir farm
Elgos, en forstjóri hennar er Þor-
steinn Sigurðsson, útgerðarmaður.
Seljandi farmsins er vátrygginga-
félag í Oslo, en umboðsmenn þess
hér á landi eru Trolle & Rothe h.f.
Á Akranesi er verið að ganga
frá afurðum til útflutnings þessa
dagana. T. d. er verið að pakka
saltfisk, sem verður aðallega seld-
ur til Ítalíu.
Fjallfoss lestaði 948 tunnur af
súrsíldarflökum til Þýzkalands á
Akranesi í fyrradag og á morgun
tekur Brúarfoss afganginn, um
3—400 tunnur.
Skilrúmin í norsku síldarílutn-
ingaskipunum verða lagfærð áður
en skipin fara frá Akranesi. Eink-
um verður gengið betnr frá þeim
að ofan til þess að fyrirbyggja að
farmurinn renni til. Ekki verður
sett meira í lestarnar en lileðslu-
merkin leyfa.
•MHMHMMMMMMMMMMW
Grænlandssly sið:
DANSKIR og kanadiskir
sérfræðingar hafa komizt að
raun um, að flugslysið, sem
varð við Godtháb á Græn-
lndi s. I. laugardag, orsakað-
ist af því, að lokur, sem eru
yfir nefhjólunum, opnuðnst,
þegar vélinni var lent á sjón-
um á mikilli ferð. Það var vél
af Catalinagerð, sem fórst
þarna með 15 manns.
Áður hafði verið hald
manna, að vélin hefði rekizt
á eitthvað í sjónum svo sem
ísjaka, hval eða flotholt. Nú
eiga sérfræðingarnir aðeins
eftir að rannsaka, hvers
vegna lokurnar opnuðust.
SALAN IÐR-
AST EINSKIS
ÞEGAR réttarhöldin yfir Raoul
Salan, fyrrverandi hershöfðingja
og foringja OAS-hreyfingarinnar í
Alsír, hófust í París í gær, reis
Salan úr sæti sínu og lýsti því yf-
ir, að hann iðraðist einskis og að
hann tæki glaður á sig ábyrgð
þess, sem gerðist í Alsír þessa dag-
ana.
Salan sagði, að hann hefði jafn-
an þjónað fósturjörð sinni af trú-
mennsku í herforingjastöðu sinni
fjarri heimalandinu. Hann hafði
áður sýnt í réttinum heiðursmerki
þau, sem hann hefur hlotið fyrir
vasklega framgöngu og góða her-
stjórnarhæfileika, en Salan er einn
sá, sem mest hefur fengið af sæmd
★ TVEIR franskir hershöfðingjar
voru í gær sviptir stöðu sinni fyr-
ir slælega frammistöðu í því að
berja niður ofsóknir OAS-manna
í umdæmi þeirra.
★ LÖGREGLAN í Madrid handtók
í gær marga háttsetta embættis-
menn og menntamenn.
armerkjum, allra franskra hers-
höfðingja sem nú eru uppi.
Salan sagði í gær, að hverju sem
fram yndi liti hann svo á, að hann
hefði gert sitt ýtrasta til að halda
á lofti sóma og heiðri Frakklands
og klykkti út með þessum orðum:
Ég elska Frakkland.
Engin vopn,
segir í sím-
skeytinu
ALÞÝÐUBLAÐINU barst í gær
símskeyti frá Berlín, þar sem full-
yrt var að „íslenzkir stúdentar í
Austur-Þýzkalandl“ hefðu aidrei
tekið þátt í heræfingum né borið
vopn. Undirskriftin er „íslenzkir
námsmenn I Austur-Þýzkalandi",
en ekkert nafn er undir skeytinu,
eða frekari skýringar, enda þótt
vitað sé að námsmenn frá íslandi
eru víðar í Austur-Þýzkalandi en
í Austur-Berlín.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1962 17. maí 3