Alþýðublaðið - 29.05.1962, Síða 15
!>!>[> í> FRA SOVÉT
rétt við skínandi maga manns-
ins. Hún horfði í augun honum.
Skyndilega barði hún með
geysilegum hraða, og með allan
þunga sinn bak við höggið, í
bringspalir manninum með
,þungu hnúajárni.
Grant gaf frá sér eins konar
urr af undrun og sársauka. Hann
kinknaði aðeins í hnjánum, en
rétti síðan úr sér. Andartak lok
uðust augu hans af sáraukanum.
Síðan opnuðust þau aftur og
horfðu nú rauð inn í köld, gul
augun bak við ferköntuðu gler-
augun. Að undanskildum mikl-
um roða á húðinni, rétt fyrir neð
an bringubeinið, sýndi Grant
engin merki um liögg, sem hver
venjulegur maður hefði fallið
veinandi fyrir.
Rosa Klebb brosti hörkulega.
Hún stakk hnúajárninu aftur í
vasann, gekk að borðinu og sett
ist aftur niður. Hún leit til
- Kronsteens með nokkru stolti.
,,Að minnsta er hann nógu
hraustur", sagði hún.
Það rumdi í Kronsteen.
Nakti maðúrinn brosti, klók
indalegur og ánægður. Hann
neri magann með annarri hend-
inni.
Rosa Klebb hallaði sér aftur
í sætinu og horfði hugsandi á
vægt verk. Veiga meira en nokk
uð annað, sem þér hafið fengizt
við. Það er verk, sem þér mun
uð fá heiðursmerki fyrir“ —
augu Grants glóðu — „því að
verkið er erfitt og hættulegt.
Þér verðið í erlendu landi og
einn. Er það ljóst?“
„Já, félagi ofursti“. Grant var
æstur. Hér kom tækifærið.
Hvert mundi heiðursmerkið
verða? Leninorðan? Hann hlust
aði gaumgæfilega.
„Skotmarkið er enskur njósn
' ari. Langar yður til að drepa
enskan njósnara?“
„Mjög mikið, félagi ofursti“.
Ákafi Grants var ósvikinn. Hann
óskaði sér einskis fremur en
drepa Englending. Hann þurfti
að gera mikið upp við þá and-
skota.
„Þér þurfið marga vikna þjálf
un og undirbúning.' Starf yður
verður að látast vera enskur
njósnari. Hegðun yðar og útlit
eru rustaleg. Þér verðið að
minnsta kosti að læra eitthvað
af hegðunarvenjum chentil-
manns. Þér verðið fenginn í hend
ur Englending nokkrum, sem við
höfum hér. Fyrrverandi chentil
manrii úr brezku utanríkisþjón-
ustunni. Það verður hans verk
að fá yður til að líta út, eins og
einhvers konar enskur njósnari.
Þeir hafa margs konar menn í
þjónustu sinni. Það ætti ekki að
vera erfitt. Og þér verðið að
læra margt fleira. Verkið verð-
ur unnið í lok ágúst, en þér
byrjið þjálfun yðar strax. Það er
margt, sem þarf að géra. Farið
í fötin til aðstoðarmanns míns.
Skilið?"
„Já, félagi ofursti." Grant
vissi, að ekki bar að spyrja
spurninga. Hann flýtti sér að
klæða sig, og skeytti ekkert um
augnaráð konunnar, sem beind-
ist að honum, og gekk til dyra
um leið og hann hneppti að sér
jakkanum. Hann snéri sér við.
„Þakka ýður fyrir, félagi of-
usti.”
Rosa Klebb -var að skrifa hjá
sér það, sem gerzt hafði í við-
talinu. Húri leit ekki upp og
svaraði ekki, og Grant gekk út
og lokaði dyrunum hljóðlega á
eftir sér.
Konan henti frá sér pennan-
um og hallaði sér aftur á bak.
„Jæja, félagi Kronsteen. Er
nokkuð, sem þarf að ræða, áður
en framkvæmdir hefjast? Eg
skal geta þess, að forsætisnefnd-
in hefur fallizt á skotmarkið eg
staðfest dauðadóminn. Eg hef
skýrt félaga Grubozboyschikov
hershöfðingja frá áætlun yðar í
stórum dráttum. Framkvæmdin
í smáatriðum hefur verið falin
mér algjörlega. Menn hafa verið
valdir til undirbúnings og fram
kvæmda og bíða aðeins eftir að
hefjast handa. Nokkuð, sem yð-
ur liggur á hjarta, félagi?” »
Kronsteen sat og horfði upp í
loftið og studdi saman fin:;ur-
gómunum. Lítillætið i rödd kven
mannsins snerti hann ekki. —
Púlsinn sló á gagnaugum hans,
merki um einbeitingu hugáns.
„Þessi Granitsky. Er hann á-
reiðanlegur: Er hægt að .rcysta
honum utan Sovétríkjanna? —
Stingur hann ekki af?”
„Það er búið að reyna hann í
tíu ár. Hann hefur haft rnarga
möguleika til að sleppa. — Það
hefur verið höfð gát á honurn,
einmitt með tilliti til þessa. Það
hefur aldrei fallið minnsti grun-
ur. Maðurinn er eins og eitur-
lyfjaneytandi. Hann mundi eltki
yfirgefa Sovétríkin fremur en
kókainisti yfirgæfi þann, sem
sér honurn fyrir eitrinu. Hann er
eftir lan Fleming
æðsti böðull minn. Það er eng-
inn til betri.”
— Og þessi stúlka, Roman-
ova. Er hún í lagi?”
Konan sagði treglega. „Hún
er mjög falleg. Hún mun þjóna
tilgangi okkar. Hún er ekki hrein
mey, en hún er tepruleg og ekki
vöknuð kynferðislega. Hún verð
ur þjálfuð. Hún er ágæt í ensku.
Eg hef gefið henni ákveðna
mynd af starfi hennar og til-|
gangi þess. Hún er samvinnu- ]
lipur. Ef hún skyldi sýna merki
þess að bugast, þá hef ég heirn-|
ilisfang ýmissa ættmenna, þar á
meðal barna. Eg fæ einnig nöfn
fyrri elskenda hennar. Ef nauð
syn krefur, verður henni sagt, að
þetta fólk verði gíslar, þar lil
verki hennar sé lokið. Hún er
blíðlynd að eðlisfari. Slikt mundi
nægja. En ég á ekki von á nein-
um erfiðleikum með hana.”
„Romanov. Þetta er nafn á
buivshi — gamla fólkinu. Það
virðist einkennilegt að nota konu
af ætt Romanovanna í svo
vandasamt starf.
„Afi hennar var fjarskyldur
keisarafjölskj'ldunni. En hún um
gekkst ekki neina buivsha. Og
hvað sem öðru líður, þá voru
afar og ömmur okkar allra gam-
alt fólk. Það er ekkert liægt við
því að gera.”
„Afar okkar og ömmur hétu
ekki Romanov,” sagði Kronsteen
þurrlega. „En, ef þér eruð á-
nægð,” Hann hugsaði sig um
stundarkorn. „Og þessi Bond. Er
búið að hafa upp á því, hvar
hann cr niður kominn?”
„Já, deild MGB í Englandi seg
ir, að hann sé í London. Á dag-
inn er hann í aðalstöðvunum. Á
nóttunni sefur hann í ibúð sinni
í því hverfi Lundúna, sem heit-
ir Chelsea.”
„Það er gott. Við skulum
vona, að hánn verði þar næstu
vikur. Það þýðir, að hann er
ekki að vínna að rieinu sérstöku
verkefni. Hann getur þá runnið
á lyktina, þegar beitu okkar
hefur verið kastað. Annars,’” •-
sagði Kronsteen og hélt áíram
að rannsaka gaumgæfilega é-
kveðinn punkt uppi í loftinu, —
„annars hef ég verið að kanr.a.
hvaða staðir erlendis kæmu
helzt til greina. Eg hef ákveðið
Istanbul fyrir fyrsta fund. Við
höfum gott „apparat” þar.
Brezka leyniþjónustan héfur þar
aðeins smástöð. Yfirmaður henn
ar er sagður góður maður. Hon-
um verður útrýmt. Staðúrinri er
þægilega staðsettúr fyrir, stutt
til Búlgaríu og Svartahafsins.
Tiltölulega langt frá f.ondon. Eg
er að \dnna að þyí að ákvaröa
hvar þessi Bond skuli tekinn af
og hvernig honum skuli þangað
komið. eftir að liann hefur haft
samband við stúlkuna. Það verð-
ur annað hvort í Frakklandi eða
þar í grennd. Við höfum ágæt
áhrif 1 frönsku blöðunum. Þau
munu gera sem mest úr slíkri
frétt,' með sínum stórkostlegu
uppljóstrunum um kynferðismál
og njósnir. Það er einnig eftir að
ákveða hvenær Granitsky kem-
ur til skjalanna. En þetta eru
smáatriði. Við verðum að velja
myndatökumauninn og aðra
starfsmenn og flytja þá með
leynd til Istanbul.
„Apparat” okkar þar má ekki
verða of fjölmennt, það má ekki
verða vart við neina óvenjulega
athafnasemi. Við verðum að
aðvara allar deildir um, að loft-
skeytasamband við Tyrkland
verði að vera algjörlega eðlileg-
ar á meðan á aðgerðum stendur.
Brezku gagnnjósnararnir mega
ekki fá neinn grun. Dulmáls-
deildin hefur samþykkt, að ekki
sé neitt á móti því frá öryggis-
sjónarmiði, að afhentur sé tóm-
ur kassi Spektorvélar. Það lað-
ar þá að. Vélin verður send í
„Framkvæmdadeild”, sagði
karlmannsrödd.
Föl augu Rosu Klebb litu yfir
á landakortið á veggnum og stað \
næmdust við England.
„Klebb ofursti talar. Sam-
særið gegn enska njósnaranum
Bond. Framkvæmdir
þegar í stað.”
hefjist
lí
i
II. HLUTI. — AFTAKAN. !
11. kafli.
. \
1
Þægindalíf.
Mjúkir armar þægindalífsins
héldu um hálsinn á Bond og
voru að kæfa hann smám sam-
an. Hann var stríðsmaður, og
þegar hann fékk langtímum sam-
an ekki að stríða, hnigniði hon-
um andlega.
í starfi hans hafði ríkt algjör
friður í næstum heilt ár. Og frið
urinn var að drepa hann.
Tækjadeildina. Þeir sjá um und-
irbúninginn.”
Kronsteen hætti að tala. Hann
leit hægt af loftinu. Hann stóð
hugsandi á fætur. Hann leit yf-
ir herbergið og í hugsandi og at-
hugul augu konunnar.
Kosningar
Framhald >af 12. síðu.
Stokkseyri:
Alþýðufl. og óháðir 70-2 kjörnir
Sjálfstæðisfl. 67-2 kjörnir.
Alþýðubandalag 74 - 2 kjörnir.
Óháðir verkamenn 27-1 kjörinn
Á kjörskrá 283, 246 kusu, 86,9%,
Auðir og ógildir 8.
Alþýðuflokkurinn hefur unnið 1
fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum.
1958: A og B 59 (1), D 92 (3), G 68
(2), Utanflokka 39 (1).
Reyðarf jörður :
Framsóknarfl. 58-2 kjörnir
Sjálfstæðisfl. 56-1 kjörinn
Vinstri menn 51-1 kjörinn
inn. V
Framfarasinnaðir kjós. 39-1 kjör-
Á kjörskrá 305, 280 kusu. 5
Auðir og ógildir 2. y .-.t
1958: B 100 (2), Frjálsl. 43 (1), ">
Óháðir 97 (2).
->
Ej'rarbakki :
Alþfl. og Frams. 153 - 5 kjörnir '
Sjálfstæðisfl. 84 - 2 kjörnir '•
Á kjörskrá 288, 250 kusu, 87,5%'.
Auðir og ógildir 13.
Fulltrúatala óbreytt.
1958: A og B 166 (ð), D 82 (2).
\
Selfoss :
Sjálfstæðisfl. 323 - 3 kjörnir. »
Samvinnumenn 531 - 4 kjörnir.
Á kjörskrá 937, 895 kusu, 95,5%.
Auðir og ógildir 41.
1958: D 296 (3), Samvinnumenn
424 (4)!
Egilsstaðir :
Óháðir 20 - 1 kjörinn
Sameiningamenn 67-3 kjörnir.
Óháðir kjósendur 29-1 kjörinn.
Höfn í Hornafirði:
Framsóknarfl. 136 - 2 kjörnir.
Sjálfst.fl og óháðir 97-2 kjörnir
Alþýðubaridalag 65-1 kjörinn. . 1
Á kjörskrá 369, 301 kaus, 81,6%.
Auðir og ógildir 3.
1958: B 129 (2), D 93 (2), G 47 (1). '
Hveragerði :
Sjálfstæðisfl. 131 - 2 kjörnir
Óháðir Alþfl., Alþýðubandalag og
Framsóknarmerin 172 - 3 kjörnir.
Á kjörskrá 323, 314 kusu, 97,2%.
Auðir og ógildir 11.
1958: A 31 (0), B 37 (1), D 142 (3),
Vinstri menn 67 (1).
ALÞYÐUBLA9I9 - 29. maí 1962 15