Alþýðublaðið - 27.06.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 27.06.1962, Blaðsíða 2
Jfcitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. —Aöstoðarritstjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson. ' { 1 ' Hernám og varnarlið ÞAÐ er orðinn fastur liður í starfsemi kommún ista að senda árlega hóp manna í göngugerð utan af landsbyggðinni til Reykjavíkur. Og jafnframt má segja, að það sé að verða eins konar árlegt skemmtiatriði fyrir Reykvíkinga að horfa á hina göngumóðu komma þramma inn í borgina eftir að hafa gengið 50—60 km. spöl utan af landi. En hvers vegna eru kommúnistar að þessu? Tæplega gera þeir það eingöngu til þess að skemmta Reykvíking um. Nei, kommúnistar eru góðir áróðursmenn og þeir vita að í fyrirtæki eins og gönguferð, sem farin er í mótmælaskyni við utanríkisstefnu ís- lendinga geta þeir fengið ýmsa nytsama sakleys- ingja með sér. Og til þess er leikurinn gerður. Eitt þeirra félaga er kommúnistar hafa komið á fót hér á landi síðari árin heitir „Samtök hernáms andstæðinga“. Kommúnistum tókst að fá marga Þjóðvarnarmenn með sér í félag þetta svo og nokkra framsóknarmenn. Þessi samtök efndu til . göngunnar frá Keflavík sl. ár. Fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar í vor virtist svo sem samtökin (hefðu leystst upp og kenndu Þjóðvamarmenn um of ríki kommúnista. Kommúnistar gerðu sér Ijóst, að nauðsynlegt var að endurreisa samtökin sem fyrst og þess vegna matreiddi Þjóðviljinn í skynd ingu sögu um það, að Bandaríkjamenn ætluðu senn að koma upp kjarnorkukafbátastöð í Hval- firði. Og nú skyldi gengið í mótmælaskyni við þá fyrirætlan. Og ekki stóð á hinum nytsömu sakleys ingjum. Kommúnistar eru vel að sér í öllum áróðurs- brögðum. Þess vegna gera þeir sér það vel Ijóst, • <að jafnvel nafnið á áróðurssamtökunum getur haft mikla þýðingu. Þannig felst mikill áróður í nafn- inu „Samtök hernámsandstæðinga11 einu. Allir, sem eitthvað hafa fylgzt með utanríkismálum ís- lands vita það að ekkert hernám á sér stað hér á landi nú. Bandaríska varnarliðið kom hingað til lands vegna óska íslendinga en hernám nefnist það er eitthvað ríki setur her á land í öðru ríki gegn vilja hins síðarnefnda. Mikill meirihluti ís- lendinga hefur hvað eftir annað lýst yfir stuðningi við dvöl varnarliðsins hér í almennum þingkosn- ingum. Kommúnistar geta því ekki lýst andstöðu sinni við neitt „hernám“ hér á landi. En þeir geta samt sem áður barizt gegn hernámi, þ. e. hernámi, Rússa í Austur-Evrópu. Þegar ungversk alþýða gerði uppreisn gegn kúgurum sínum 1956 var upp 'reisnin bæld niður með rússneskum bryndrekum. Rússneski herinn, sem þar vann ódæðisverk sín gerði það svo sannarlega ekki samkvæmt vilja; fólksins. Hvernig væri að „Samtök hemámsand- stæðinga,, efndu til einnar göngu í mótmælaskyni- við hernám Rússa í Austur-Evrópu? 2 27. júní 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ odak Kodak Kodak Kodak Kodak Kodak Kodak Ko dak Kodak Kodak Kodak FILMUB Verichrome»pan Plus-X Tri-X HANS PETERSEN HF HANNES Á HORNINU ★ Stúdentahúfur í Bessa staðakirkju. ★ Hefur stúdentshúfan einhver sérréttindi? ★ Gömul kona í vandræð- um. ★ Rasskelling á miðri götu. ÁLFTNESINGUR skrifar mér: „Stúdentar heimsóttu Bessastaði og þágu boð forsetans. Þeir voru boðn ir til kirkju og þar ræddi forseti við þá um sögu staðarins, kirkjuna og gripi hennar. Ég álít að það sé góður siður að bjóða hinu unga fólki, sem lokið hefur meikilegum áfanga í námi sínu, á höfuðból landsins til frcmstu hjóna þjóðar- innar. Það eitt út af fyrir sig er þeim, eða ætti að vera þeim, nokk ur minning um þessi tímamót í lífi þeirra. EN ÁSTÆÐAN til þess að ég sendi þér þessar línur er mynd, sem birtjst af athöfninni í kirkj- unni. Myndin sýnir að studentarn- ir hafa ekki fylgt þeim sið þjóðar- innár frá upphafi að taka ofan höf- uðfat sitt á lielgum stað. Þeir sátu ál- * w allir, eða ekki verður annað séð af myndinni með húfur sínar meðan þeir hlýddu á ræðu forsetans íkirkj unni. Og nú langar mig að spyrja: Stafar þetta af kunnáttuleysi og ó- kurteisi hins unga menntafólks? Eða: Nýtur stúdentshúfa einhverra sérstakra réttinda fram yfir menntastigið, meðal annarra höf- uðfata? ÉG SPYR vegna þess að 17. júní sá ég það á Arnarhólstúni, að margir stúdentar tóku ekki ofan þegar þjóðsöngurinn var leikinn — en nokkrir gerðu það af þeim, sem stóðu nálægt mér. Ef það er rétt að stúdentum beri ekki að taka ofan eins og öðru fólki er þeir ganga í kirkju, held ég að það eigi að afnema þau „sérréttindi“. Ef þetta er svona, er um ósið að ræða. Auk þess eigum við alls ekki á neinn liátt að stuðla að því að breikka bilið milli menntafólks og annarra þjóðfélagsþegna. En það gerum við með því að tildra upp sérréttindum fyrir annan aðilann". ÉG HEF orðið var við það, að stúdentahúfurnar í Bessastaða- kirkju haf vakið gremju margra. En um skýringu á þessu veit ég ekki. NÁGRANNI skrifar mér á þessa leið: „]Hérna í nágrenninu á heima einmana gömul kona. Hún býr í einu herbergi og lítilli eldhús- kompu. Gamla konan á ekki ís- skáp og er því oft í hálfgerðum vandræðum með að geyma það sem hún dregur að sér til dæmis fyrir helgar og hátíðisdaga. Til þess að verja til dæmis mjólk hefur hún tekið það til bragðs að láta litla vatnsflösku standa við dyrnar hjá sér og lætur hún mjólkurflösk una standa í vatninu.. EN HÚN verður að hætta þessu. Hérna í nágrenninu er einhver svo einkennilega innréttaður til sálar- innar, að hann stelur mjólk gömlu konunnar, stelur yfirleitt öllu því, sem gamla konan geymir á þennan hátt. Ég veit að þessi orð mín, við þig, Hannes minn, skiljast. Þeim er beint til nágranna okkar. Vildu þeir nú ekki taka höndum saman um að koma upp um óþokkann? Við skulum svo í sameiningu taka hann, leysa niður um hann og rass- skella hann við hátíðlega athöfn á malbikaðri götunni“. Hannes á liorninu. REYKT0 EKKI í RÚMINU! Húseigendafélag Reykiavfluir V

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.