Alþýðublaðið - 07.07.1962, Qupperneq 2
Bitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
■ *
; Þeirra hagur
er þjóðarhagur
, TOGARADEILAN er leyst — að öllum líkind-
um. Þetta hefur verið með lengri verkföllum; það
hafði staðið í 123 daga þegar fulltrúar deiluaðila
uihdirrituðu samkomulagið í fyrrakvöld. Það var
gert með þeim fyrirvara, að sjómannafélögin og
sámtök togareigenda staðfestu það við atkvæða-
greiðslur. Þe:m atkvæðagreiðslum ber að ljúka
fyrir næstkomandi miðvikudagskvöld, og ef svo
fér fram sem horfir, eiga fyrstu togararnir að geta
háldið úr höfn upp úr miðri næstu viku.
Samkomulagið hlýtur að vera þjóðinni fagnaðar-
efni. Kjarabætur togaramanna ber ekki að telja
eftir. Framlag sjómanna til þjóðarbúsins er það
stórt, hlutverk þeirra það mikilvægt, að kjör þeirra
mega undir engum kringumstæðum vera lakari en
©nnarra atvinnustétta. Þeirra hagur er þjóðarhag-
ur.
Gera verður ráð fyrir, að sjómenn samþykki sam
komulagið, sem nú er lagt fyrir þá. Hins vegar gerð
ist það á lokafundinum í fyrrakvöld, að þrír af sjö
fulltrúum Félags íslenzkra botmvörpuskipaeig-
enda neituðu að skrifa undir og gengu af fundi.
Morgunblaðið leggur líka á það áherzlu í frétt sinni
um fundinn í gær, að útvegsmenn séu klofnir í
niálinu.
Þó verður því ekki trúað að óreyndu, að félag
þeirra hafni samkomulaginu. Ætla má að útvegs-
mönnum sé það jafnvel ljósara en öðrum mönnum,
hve mikið er í húfi að sæmilega sé búið að sjó-
mannastéttinni. Vélvæðing er alveg fyrirtak og
ný tækni er eflaust nauðsynleg á sjónum sem ann
ars staðar, en eitt er þó nauðsynlegra en allar vélar
og allar nýjungar, og það eru góðir sjómenn.
Þjóðin hefur ekki efni á öðru en að nýta starfs-
'krafta þeirra.
Og þeir hafa ekki efni á því að gefa þjóðinni
starfskrafta sína eða selja þá við lakara verði en
boðið er í landi.
Það er fásinna að krefjast stærri fórna af þeim
á^þessu sviði en öðrum landsmönnum.
2 menn óskast
til starfa nú þegar.
MJÓLKURSTÖÐIN í Reykjavík
2 7. júlí 1962 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Það er erfitt að velja réttan Sit, en valið á
málningartegundinni er auðvelt
POLYTEX— plastmálningin er sterk og falleg í miklu Sitaúrvali..
POLYTEX— plastmálning hefur jafna og matta áferð,
er gefur litunum miidan og djúpan blæ.
fsiöfrv)
FRETTIR FRA FÆREYJUM:
VELBILANiR I
NORSKUM SKIPUM
Færeyjum, 2. júlí.
NORÐMENN hafa smíðað
nokkur stálskip fyrir Fáereyinga,
og hafa þau reynzt vel, þar til nú
fyrir skömmu, að tveir af nýjustu
bátunum frá Noregi hafa orðið
fyrir tíðum vélbilunum. Þeir eru
með Tuxham dieselvélar.
mjög óhagstæð, og tafði það smíð-
ina nokkuð. Skipið kostar fulibúiö
1,4 milljón kr. danskar. Nú hefur
verið lagður kjölur að þriðja skip-
inu, sem á að vera tilbúið á næsta
ári. — H. Jóh.
RE1ÍKT0 EKKI
í RÚMINO!
Húseigendafélag Reykjavíkur
í reynsluferðum bar ekki á
neinu óvenjulegu, en nú hefur
komið í ljós, að vélarnar þola
ekki þann hraða, sem þær eru gefn
ar upp fyrir.
Skipin tvö. sem hér um ræðir
eru „Nólseyjar Páll,” og „Norð-
ingur.” Voru þau í fyrstu veiði-
ferð sinni til Grænlands er vél-
bilanirnar urðu, og hafa þau nú
legið í, Færeyingahöfn í rúrnan
mánuð. Útgerðarmenn og eigend-
ur skipanna ræða nú um, hvort
þeir eigi að höfða mál á hendur
verksmiðjunni, sem framleiðir vél-
arnar, eða skipta um vél.
Laugardaginn 23. júní var
hleypt hér af stokkunum í Skipa-
smiðju Þórshafnar, stálskipi, sem j
er annað í röðinni, sem þeir hafa
smíðað. Hitt var fullgert 1961. —
Þetta nýja skip hlaut nafnið V)k-
ingur. Það er 118 fet á lengd, 23
fet á breidd og ristir 12 fet. í
því er 480 hestafla dieselvél cg
tvær ljósavélar. Það er útbúið öil j
um hugsanlegum öryggistækjum,
og m. a. tæki til að framleiða
ferskt vatn úr sjó.
Smiði skipsins hefur tekið 10
mánuði, og er það lengri tími en
áætlað var. Veðráttan hefur verið,
Akfær vegur til
*• _
Ondveroarness
Hellissandi, 4. júlí.
UNNIÐ er að lagningu akfærs
vegar frá Hellissandi til Öndverð-
arness. Sennilega mun ferðafólk
aka mikið um þennan veg, enda
er þetta úr alfaraleið.
Vegagerð þessi er kostuð af
vitamálastjórninni, enda á vegur-
inn að liggja til Öndverðarnes-
vita og Svörtuloftavita. Vegalengd-
in er sennilega um 8-9 km.
Sennilega verður ekki eins mik-
ið unnið við þennan veg og flestir
vildu. Ekki verður sprengt, en þess
þyrfti, þar sem grágrýtishellur og
hraun eru á leiðinni:
Samt verður unnið við veginn
eftir beztu getu, og verður m. a.
notuð 15-16 tonna ýta. Jón Gunn-
arsson frá Þverá í Eyjahreppi
stjórnar verkinu og með honum
vinna fjórir menn.
Engin byggð er nú á Öndverðar-
nesi, en'í gamla daga var mikil
byggð þar. Vitavörður er Sum-
arliði Andrésson frá Hellissandi,
Hann sér um báða vitana og fer
þangað vikulega. G. K.
FIMMTÁN ÁRA piltur hefur
tússmyndasýningu á kaffihúsinu
Mokka um þessar mundir. Hér er
á ferðinni Bjarni Haraldsson meS
sína fyrstu sýningu.
Bjarni hefur undanfarin tvö ár
unniff í skóverzlun Lárusar G.
Lúðvígssonar, en hyggur á skóla-
nám í haust, ef til vill landspróf.
Bjarni segist hafa teiknað frá
því hann Var lítill drengur og að-
spurður um framtíðaráætlanir
segist hann ekkert vita, allt sé ó-
ráðið enn, — en við togum það
upp úr honum, að innst inni langi
hann talsvert til að verða tízku-
teiknari eða auglýsingateiknari,
— kannski verður hann fyrsti
íslenzki tízkuteiknarinn? Hver
veit?