Alþýðublaðið - 07.07.1962, Blaðsíða 9
»tapar
KARL. og Sandra hafa brugð-
ið sér út eins og kærustupar
og nú eru þau farin að dansa
tvist og lialda að þau séu ó-
skaplega mikið í „stælnum"
af því að hann er í hitabeltis-
búningi og safnar hljómplöt-
um.
Óh, víst er ég það ...
Og svo spilar hann tvist-
plötur upp á líf og dauða, og
Sandra málar sig cg gcrir
sig „svaka fína’’ og heldur
að liún sé alveg eins og Bír-
gitte Bardot, af því í livernig
kjól hún er. Og alveg eins og
Birgitte Bardot væri svona
loðin á fótunum!
Tvist til liægri, tvist til
vinstri og tvist á allar hliðar,
aftur á bak og áfram, oh
sjáðu hvað ég er flínk, hristi
mig á allar hliðar.
— Já, það kunna fleiri að
tvista heldur en mannskepn-
an, jafnvel aparnir geta gert
það af mikilli snilli, eins og
sjá má á þessum myndum, —
en hitt er annað mál, að sum-
ir halda að allir séu apar sem
dansa tvist á annað borð —
MtMMMHMMMtUMMUWMMIMMl
Hvað segið þið um það
krakkar?
Með viti: 12 ár
Með valdi: 3 kl
ÞAÐ var eins og að leggja
upp í kapphlaup með báða
fætur brotna — en fyrir hina
sex dauðadæmdu fanga í hinu
all-illræmda fangelsi í St.
Quentin í Kaliforníu var allt
að vinna og engu að tapa, —
svo að þeir lögðu á sig hætt-
una.
Fyrir endanum á gangiil-
um á 5. hæð í norðurálmunni
liggur gasklefinn, þar sem
Chéssman endaði Iíf sitt fyrir
fáeinum árum síðan, og sem
hinir sex morðingjar munu
einnig enda sitt líf. Hinn ein-
asti mismunur verður sá, að
Chessman notaði lögin sem
vopn í baráttunni fyrir . lífi
sínu, og það dugði honum í 12
ár, en sexmenningarnir beittu
valdi og urðu að gefast upp
eftir þrjá tíma.
Þeir sluppu út úr klefum
sínum með aðstoð járnsagar,
sem enginn veit ennþá, hvern
ig komist hefur inn til þeirra.
Þar á eftír yfirbuguðu þeir
tvo verði, tóku af þeim
skammbyssur þeirra, og hót-
uðu yfirmönnum fangelsisins
því að þeir myndu skjóta verð
ina samstundis, ef dyrnar
ekki opnaðar fyrir þeim og
þeim hleypt út í frelsið. Svar
fangelsisins var táragas á-
samt hreinni yfirlýsingu um
að hvort sem þeir dræpu
gíslana eður ei, mundu þeir
aldrei komast út úr fang-
elsinu.
Aðrir fangar á „dauða-
dæmdra' ganginum, sem
fengu alveg eins mikið að
kenna á táragasinu, hvötta
uppreisnarmennina til þess
að gefast þegar upp. Og þeg-
ar það sýndi sig að fanga-
verðirnir tveir höfðu ekki
lykla að hinum miklu járn-
dyrum út í frelsið, tilkynntu
flóttamennirnir að þeir hefðu
fengið nóg af ævintýrinu og
gæfust upp. — Við lékum
djarft — og töpuðum, sagði
I.uis Moya, sem var einn 'af
uppreisnarseggjunum, dæmd-
ur til dauða fyrir morð.
Síldarsöltunarstúlkur
vantar strax til Sunnuvers Seyðisfirði. Fríar
flugferðir. 1. fl. húsnæði og káuptrygging.
Uppl. í skrifstofu ísbjarnarins h.f. og Hafn-
arhvoli. Sími 11574 og eftir kl. 6 í síma
36313.
SUNNUVER
ORÐSENDING
frá Sjómannaféfagi Reykjavíkur
Atkvæðagreiðsla um togarasamningana fer
fram í skrifstofu félagsins, sem hér segir:
Laugardaginn 7. júlí frá kl. 10—12 f. h.
Mánudaginn 9. júlí frá kl. 3—6 e. h.
Þriðjudaginn 10. júlí frá kl. 3—6 e. h.
Miðvikudaginn 11. júlí frá kl. 3—6 e. h.
og lýkur þá. Atkvæði greiða aðeins togarasjó-
menn, samkvæmt kjörskrá þeirri er notuð var
við atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu Sátt
arsemjara.
Stjórnin.
Verksmibjur vorar
verða lokaðar vegna sumarleyfa frá og
og með 16. þ. m. til 7. ágúst.
Vinnufatagerð Íslands h.f.
Sútunarverksmiðjan h.f.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í raflögn, fyrsta áfanga, pípu-
lögn fyrir raflögn, sima og merkjakerfi í lög
reglustöð í Reykjavík.
Útboðslýsing og teikningar 'verða afhentar í
skrifstofu minni gegn 1000 króna skilatrygg
ingu þriðjudaginn 10. júlí n.k.
Útboðsfrestur er til mánudagsins 23. júlí n.k.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 7. júlí 1962.
Auglýsingasími
Alþýðublaðsins
er 1490«
| ,-------------
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. júlí .1962 §