Alþýðublaðið - 18.09.1962, Side 9

Alþýðublaðið - 18.09.1962, Side 9
L BÖRN ÞEGAR ÞEIRRA ER ÓSKAÐ ir það, að vera algjörlega eðli- legt fyrirbrigði, fullt af hugmynd- um, sem enginn lætur í ljós og eru afskræmdar með hroðalegum afleiðingum. Ef nógu fljótt er tekið í taum- ana, má hindra þessar afleiðing- ar í mörgum tilfellum. Hlutverk skipulagðra barn- eigna, sem komið var á í Varsjá í Póllandi árið 1957, er að leysa þessi vandamál, bæði hvað sjón- armið og gerðir snertir. Þetta er stofnun á vegum borgarinnar, stofnuð af fólki með gott eitt í huga, læknum, rithöfundum, blaðamönnum, lögfræðingum og ferystumönnum borgarinnar. — Stofnunin nýtur fullrar aðstoðar ríkisstjórnarinnar. Til að byrja með vorum við fáir. í dag getum við lýst yfir, að mál okkar hefur hlotið hljómgrunn meðal fólksins og náð jafnvel til fjarlægustu og afskekktustu héraða landsins. Stofnunin okkar lofar viðskipta mönnum sínum engu, né heldur neyðir aðra til að ganga í félags- skapinn, en samt berast stöðugt gjafir. Meðlimir eru um 50 þús. og þeir borga dálítið ársgjald. Stofnunin naut þegar aðstoðar blaða, útvarps, sjónvarps og ef svo mætti segja alls almennings. — Þetta mátti sjá af hundruðum einkabréfa, mörgum hverjum breytilegum um efni og uppsetn- ingu, af greinum sömdum af á- hrifamönnum og blaðamönnum fyrir blöð þeirra, og af hjálpsemi margra heimsfrægra manna. Stjórn þessa sambands hóf þeg- ar víðtæka kynningu á áætlun sinni og skipulagningu samvinnu- stofnana um landið. Eftir tveggja ára útbreiðslu- starfsemi og kynningu, hélt stjórnin fyrsta þing sambandsins í janúar 1960. Niðurstöður og ályktanir þessa fyrsta þings hafa orðið megin- reglur félagsskapar okkar. Þessar meginreglur miða að því, að fræða ungt fólk um kyn- ferðislíf, sköpun tvíhliða afstöðu í sambúð hjóna, meiri hjálp til mæðra sem einar verða að sjá fyrir börnum sínum, samvinnu foreldra um fyrirsjá fjölskyld- unnar, og framtíð barnanna (bæði faðir og móðir eru jafnt ábyrg fyrir börnum sínum), og bundinn verði endir á fáfræði konunnar og kæruleysi karlmannsins í kyn- ferðismálum. Starf sambandsins er aðallega byggt á kynferðislegri fræðslu, séðri frá hvaða hlið sem er, og við allar aðstæður í þjóðfélaginu. Þegar samb^ndið fann áhuga blaðanna á starfsemi sinni, skrif- uðu rnenn þess og stuðningsmenn hundruð greina í þau um starf- semi þess, rædda á breiðum grund- velli ásamt kynningu á markmið- um og leiðum. Útvarp og sjónvarp hafa einn- ig verið okkur hjálpleg. Sambandið hefur aðstoðað við útgáfu sölurita að upplagi 853 þúsund eintök og ókeypis rit hafa verið 7.760 þúsund að ein- takafjölda. Þessi rit fjalla yfir- leitt um getnaðarvarnir. Við höfum mestmegnis stuðlað að því að hjálpa mæðrum, sem eiga stóran barnahóp en voru hjálparvana vegna fáfræði sinnar og hræðslu, sífellt að eiga börn og missa fóstur og sífellt í ótta við að eignast einn krakka til við- bótar. Það er augljóst, að eftir að fræðslan hófst meðal fátækra for- eldra, sem ekki gátu séð börn- um sinum farborða, að ungbarna- dauði hefur minnkað til muna. Leiðbeiningastöðvarnar, sem tilheyra heilbrigðismálaráðuneyt- inu, eru aðalstöðvamar, sem gefa ráð í sambandi við getnaðarvarn- ir og önnur viðlíka mál. Slíkar leiðbeiningarstöðvar eru yfir þús- und talsins í Póllandi og er þeim stjórnað af læknislærðum mönn- um, launuðum af rikinu. Þess vegna geta þessar leiðbeininga- stöðvar gefið ráð sín án endur- gjalds. Athyglisverð er hin vinsæla stofnun, sem annast bréfaskipti á vegum sambandsins. Fræðslu bréf- leiðis var komið á vegna þess að margir sem búa utan borgarmúra Varsjár og annarra stórborga eiga erfitt með að ná beint til samtak- anna og svo lika vegna þess, að margir eru feimnir við að fara beint til læknis. Fyrir dálitla þóknun getur hver sem er feng- ið bréflega ráðleggingar færustu manna í kynferðismálum. Um það bil 35 þús. bréfum, sem fjalla um kynferðismál hefur verið svarað. Leiðbeiningarstöðvum fyrir ó- gift. fólk hefur verið komið á fót í mörgum stærstu borgum Pól- lands. Þar getur ógift fólk, sem er í vanda statt, fengið leiðbein- ingar og hjálp ókeypis. Áróðurinn fyrir notkun getnað- arvarna var ekki árangursríkur meðan skortur var á lyfjum, ekki haldbetri en svo, að þau grófu undan áliti manna á getnaðar- vörnum og gerðu baráttumönnum okkar erfitt fyrir. Samtökin voru neydd til að taka upp eigin fram- leiðslu á getnaðarvarnalyfjum, reyna betur þau útlendu og end- urbæta sín í samræmi við þau. Nú framleiða samtökin getnaðarvarn-. ir og tekjurnar af sölu þeirra gera kleift að halda uppi starfsemi sinni án mikils styrks frá ríkis- stjórninni. Þar sem sambandið er almenningi til heilla en ekki rek- ið í gróðaskyni, er öllum tekjum þess varið til að annast barna- uppeldi og heilsugæzlu. Til að ná sem allra beztum ár- angri, hefur félagsskapurinn feng- ið í þjónustu sína færustu menn sem völ er á, hvern í sinni grein. Fjöldi manna vinnur að rannsókn um á vegum stofnunarinnar, og nú þegar hafa verið gefin út mörg rit, byggð á rannsóknum sérfræðinga í kynferðismálum,- sálfræði og í ýmsum þeim greinum, sem til greina koma í starfsemi okkar. Mörg fræðslurit um kynferðis- mál fyrir unglinga hafa verið gef- in út. Eitt þeirra rita hefur verið tekið til kennslu í skólum. Tekn- ar hafa verið upp rannsóknir á skyldum sviðurn, fjölskyldufræði, tíðni og ástæðum fyrir fóstureyð- ingum, barnauppeldi á heimilum og í stofnunum, og hversu mikið er um beinkröm í Póllandi. Það er dæmi um sigur okkar, að áróður fyrir getnaðarvörnum fer sífellt minnkandi á meðan notkun lyfja færist í vöxt, fólkið veit, hver gagnsemi þeirra er og það þarf ekki að hrópa hana leng- ur í eyru þeirra. Árangurinn mun hafa orðið svipaður í öðrum lönd- um, sem löglega hafa tékið upp fræðslu um notkun getnaðarvarna, leyfa fóstureyðingar eða berjast á móti þeim. Þetta á rætur sínar að rekia til fjárhags, þjóðfræði og sið ferðislegs anda viðkoman^ landa. En, við höfum þó í huga, að börnum heldur fækkar heldur en hitt í þróuðum löndum, og það getur leitt til þess að hugsa verði upp ráð til að stækka fjölskyld- urnar. Samband skipulagðra barneigna hefur haft hendur í taumi með þessu, með því að aðstoða við næst um því milljón fæðingar á ári. Þessi starfsemi er tiltölulega skammt á veg komin ennþá, vegna þess, hve stutt er síðan starfsemi sambandsins hófst. Markmiðið er að heyja baráttu fyrir því, að barn fæðist í þökk beggja for- eldra, sem hafa notað kennslu stofnunarinnar, og að hún geti hjálpað til að foreldrarnir eigi eins mörg börn og þau hafa á- Framh. á 14. síðu eftir Marcin Kacprzak rektor læknadeildar Háskólcms í Varsjá J NYJUNG! NYJUNG! Vitawell-permanent, sem þoíir rigningu. Vitawell-permanentið er komið TJ ARNARSTOFAN Tjarnargötu 10 — Sími 14662. Pökkuncerstúlkur óskast hálfan eða allan daginn- HraMrystistöð Kefiavíkur símar 1105 og 1341. Húseigendur céthugið Getum útvegað hin smekklegu og hagkvæmu aluminíun* handrið með stuttum fyrirvara. Sendum hvert á land sem er. Járnsmiðja GRÍMS og PÁLS Bjargi v/Sundlaugaveg sími 3 26 73. Smábarnakennsla Smábarnaskóli minn byrjar í október næstkomandi. Upplýsingar í síma 34440. UNA SVEINSDÓTTIR. Kambsvegi 13. HEKLUPEYSUR HEKLUSOKKAR / A i /t ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. sept. 1962 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.