Alþýðublaðið - 27.10.1962, Side 4
hókai’i
4 27, október 1962 - ALÞÝÐUBLA0IÐ
Sextugur í dag:
4tWMVWWMWMMWMMWMMMWMiWW>MWiWHWW*HWHWMWWmWMMW»WM
Þegar Mai komst á þing
EINS og við sögðum frá í fyrra-
ilag', licimsótti Mai Zetterling
þingið og tók heilmikla kvik-
mynd af þingmönnum okkar
í óða önn að stjórna landi og
þjóð. Hún kvikmyndaði af þing-
pöllum, og er myndin tekin við
það tækifæri.
Bæjarbíó hóf í gær sýningar á rússneskri |
mynd, sem lieitir Blindi tónsniliingurinn.
Myndin er byggð á sögu eftir V. K orolenko,
sem komið hefur út á ísienzku. Hér er um
að ræða heillandi músík mynd í litum, sem
óhætt er að mæla með fyrir alla.
í DAG er Halldór Magnús Sig-
urgeirsson, bókari hjá Sölusam-
bandi íslenzkra fiskframleiðenda,
sejjtugur að aldri.
Halldór fæddist í Hafnarfirði
27. október 1902 og liefir átt þar
heimili allt frá fæðingu til þessa
dags. Foreldrar hans voru heið-
Tirshjónin María Jónsdóttir frá
Unnarliolti í Hrunamannahreppi í
Árnesssýslu Oddssonar bénda þar
-og Sigurgeir Gíslasor. frá Xlálf-
íiolti í Iloltum í Rangárvallasýslu
Halldórssonar ættuðum af Skeið-
Tim. Sigurgeir var löngum vega-
vinnuverkstjóri og síðar spari-
sjóðsgjaldkeri í Hafnarfirði.
Foreldrar Halldórs voru þekkt
HALLDÓR M. SIGURGEIRSSON
og annáluð í Hafnarfirði og víðar
um land fyrir dugnað, myndar-
brag og fclagsmálaforystu. Þau
eignuðust þrjú börn og er Halídór
yngstur þeirra. Að auki ólu þau
upp fósturson.
Heimili Marínar og Sigurgeirs
þótti með íádæmum til fyrirmynd-
ar um gott uppeldi og reglusemi.
í slíku umhverfi og andrúmslofti
ólst Halldór upp og hef.ir frá
barnæsku fylgt dyggilega hinu
fagra fordæmi sinna ágætu og ást-
kæru foreldra.
Þegar bamaskólanámi Iauk, lá
leið Halldórs í Flensborgarskólann.
Þaðan lauk hann brottfararprófi
1921 með ágætri einkunn. Honum
sóttist námið auðveldlega, enda
er Halldór haldgóðum og farsæl-
um gáfum gæddur. Námið sótti
liann bæði af kappi og forsjá og
einstakri skyldurækni.
Eftir skólavist í Flensborg fór
Halldór utap til námsauki í Eng-
landi.
Þegar heim kom, stofnaði hann
í Hafnarfirði, ásamt Kristni And-
réssyni, magister, en þair voru
skólabræður í Flensborg, kvöld-
skóla fyrir unglinga. Var það ný-
lunda þar í bæ í þá tíð Mæltist
Ijún vel fyrir og var aðsókn mikii
að skólanum sem var í miklum
metum mcðal bæjarbúa.
í nokkur ár starfaði Halldór að
verkstjórn með föður sí.ium og
félögum hans að margskonar
störfum við höfnina í Hafnarfirði.
Árið 1929 voru honum faliu skrif-
stjórastörf Kaupfélags Hafnarfjarð
ar. Þann starfa haíði Halldór með
höndum þar til kaupfélagið hætti
störfum. Eftir það starfaði hann
um hríð í Sparisjóði Hafaarfjarð-
ar í forföllum föður síns, en gerð-
ist síðar gjaldkeri hjá úcgerðar- !
fyrirtækjunum Vífli og Akurgerði. |
Árið 1950 réðist Halldór í þjón-
ustu Sölusambands íslenzkra fisk-'
framleiðenda og hefir verið bók-
ari þar síðan.
Hvert starf, sem Halldór hefur
tekið sér fyrir hendur, hefir hann
rækt af heilum huga og hollustu.
Ávallt hafa komið í ljós þær eig-
indir, sem sannan og góðan dreng
prýða, trúmennska, vinnugleði ng
samvizkusemi.
Halldór hefir komið raikið við
sögu félagsmála í Hiifnarfirði,
fyrr og síðar, og jafnan lagt heil-
brigðum félagssamtökum lið sitt
og störf.
Ungur tók hann mikinn þátt í
íþróttum og var meðal fræknustu
knattspyrnumanna bæjarins.
Skautamaður var hann ágætur.
í sönglífi Ilafnarfjarðar tók
Halldór um langa hríð drjúgan og
góðan þátt. Var árum saman virk-
ur félagi í Karlakórnum Þröstum.
í stjórn Kaupmannafélags Hafn-
arfjarðar var hann um árabil.
Einn af stofnendum Bílaverkstæð
is Hafnarfjarðar J939 og lengi
gjaldkeri fyrirtækisins. Hluthafi í
Dvergi er liann og fleira mætti
upp telja.
Þó munu engin félagssamiök
hafa tekið hug Halldórs fastari
tökum um æfina eða nokkru sjani
átt djúpstæðari áhrif á hann en
góðtemplarareglan. Þá hugsun
drakk hann í sig með móðurmjólk-
inni. Halldór hefir í þeim efnum
fetað í fótspor foreldra sinna, er
báru merki þeirrar reglu einna
hæst á íslandi.
Framhald á 14. síðu.
HERFERÐ GEGN
TÖFRALÆKNUM
BLANXYRE, NYASALAND:
Mesti töfralæknir allra töfralækna
landsins hefur verið hantítekinn.
Ilann heitir Chikanga og er 35 ára
gamall. Þessi handtaka ei fyrsti
liður stjórnarinnar til að útrýma
töfralæknum, sem eru miKÍIs megn
ugir í landinu og hafa deytt fjölda
manns með forneskju sinni í stað
þess að lækna þá.
í mörg ár hafa yfirvöld'in farið
mjög varlega í þessum málum og
reynt að hindra og útrýma töfra-
læknum á leynilegri máia til að
vekja ekki reiði íbúanna, sem
margir hverjir trúa á helgi þess-
ara töfralækna.
En nú hefur stórt skref í fram-
faraátt verið tekið, með handtöku
Chikanga, og munu fleiri fylgja á
eftir. Beita varð brögðum til að
handtaka „lækninn“, til þess að
íbúarnir byggjust ekki til varnar.
Honum verður brátt stefnl fyrir
rétt og vonast yfirvöldj í til að
geta sannað áhangendum töfra-
lækna, hversu fánýt „vizk.j" þeirra
er, með réttarhöldunum og þannig
dregið úr þeim áhrifum, sem þess-
ir menn hafa í landinu.
Chikanga þess er ekk: einn
þeirra töfralækna, sem nota und-
arleg meðul og seyði. Hann lækn-
ar með særingum, sem standa oft
sólarhringum saman. Sjúkiingar
streymdu til hans frá öllu afrík-
anska meginlandinu, svo mikil). var
orðstír lians. Oft neituðu menn að
láta aðra lækna líta á sig, en dóu
heldur, án þess að hafa náð tali
af „lækninum mikla“. Fleiri hundr
uð manns hafa dáið úr hungri,
vegna Chikanga, sem oft skipar
Framhald á 14. slðu.
Varðbergsnefnd
kynnir sér EBE
TÍU manna íslenzk sendinefnd
á vegum Varðbergs kom til Briis-
sel 21. október til þess aff kynna
sér Efnahagsbandalag Evrópu.
Sendinefndina skipa þessir :
Einar Benediktsson, lögfr.
Einar Benediktsson, hagfr.
Hagnheiður Helgadóttir alþm.
Björgvin Guðmundsson aðstoð-
arritstjóri,
Sigurður Guðmundsson, frkvst.
Eyjólfur K. Jónsson ritstjóri,
Björgvin Vilmundarson, við-
skiptafræðingur,
Bjarni Beinteinsson lögfr.
Jón Skaftason alþm.
Heimir Hannesson lögfr.
Stefán Sörensen, lögfr.
Islendingarnir hafa rætt við
ýmsa af fulltrúum EBE í aðaistöðv
um bandalagsins í Briissel. A
mánudaginn ræddi sendinefndin
við dr. Richard Mayne um sam-
band EBE við önnur ríki og við-
ræðurnar við Breta. Dr. H. von
Hanstein skýrði frá viðskipía-
stefnu EBE og von Istendall
greindi frá félagsmálum í lönd-
um sameiginlega markaðsins. Auk
þess var sendinefndinni skýrt frá
störfum kola og stálsamsteypunn-
ar.
Dr. Richard Mayne, sem nefnd-
ur var hér á undan, er Breti, sem
unnið hefur hjá EBE frá stofnun
þess. Hann hefur nýlega gefið út
bók um EBE sem heitir „The Com
munity of Europe", og hefur bók-
in vakið gífurlega athygli í Bret-
landi.
Frá Briissel halda íslendingarnir
til Parísar og heimsækja OECD
og NATO. Þaðan verður farið til
Evrópuráðsins í Strassburg, og
síðan til Bonn í boði stjórnar V-
Þýzkalands. Aðalmarkmið farar-
innar er að kynna sér EBE. —
Nefndin fór fyrst til Lundúna, og
ræddi þar við fulltrúa brezka ut-
anríkisráðuneytisins um viðræður
Breta við EBE. — B.G.