Alþýðublaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 4
Jónas Ástráðsson,
form. FUJ:
✓
Avarp íil
æskunnar í
Reykjavík
FIMMTUDAGINN 8. nóvem-
ber voru liðin 53 ár frá stofn-
un Félagrs ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík. I’ar sem
tildrög að þeirri stofnun og
saga félagsins hafa verið rakin
hér í blaðinu, æíla ég ekki
að rifja það upp, heldur segja
frá starfi félagsins og því tak-
marki, sem það hefur sett sér
á þessum merku tímamótum.
19. marz 1961 urðu þáttaskil
í starfi félagsins, þvl þá var
Burst vlgð, en liún er félags
heimili okkar eins og flestir
vita og má segja, að liin mikla
sókn hafi hafizt með tilkomu
hennar. Þar hefur verið rekin
fjölþætt æskulýðsstarfsemi
sem hefur heppnast mjög vel
og verið mjög fjölsótt. Ilefur
verið dansað, spilað, teflt og
sungið af miklu f jöri auk stjórn
málanámskeiða, sem hafa ver-
ið vikulega og tekizt vel.
í vetur verður allt með líku
smði og I fyrra, en ýmsar nýj-
ungar verða teknar upp til fróð
Ieiks og skemmtunar. f vetur
verðum við með vikulega mál-
fundi, tafl og bridge klúbb,
spilakvöld og tómstundaklúbb,
auk þess sem ýmsir menn inn-
an Alþýðuflokksins munu flytja
erindi liálfsmánaðarlega um
ýms efni. Sjaldan eða aldrei
hefur verið eins mikið starf
hjá félaginu og nú, og aldrei
hefur félagið verið eins vel
undirbúið að taka við því hlut-
verki sem því er ætlað. í stjórn
félagsins og trúnaðarráði eiga
allflestar launþegastéltirnar
sinn fulltrúa og eru þeir allir
tilbúnir til þess að hefja loka-
sóknina að því takmarki sem
þeir hafa sett sér. En margar
Framhald á 13. síðu.
Jónas Ástráðsson
Stjóm S.U.J. Sitjandi frá vinstri: Hörður Zophoniasson, Sigurður Guðmundsson og Ásgeir G. Jóhannesson. Standandi frá vinstri:
Jóhann Þorgeirsson, Unnar Stefánsson, Sigþór Jóhannesson, Hrafnkell Ásgeirsson, Örlygur Geirsson, Karl Steinar Guðnason, Þórir
Sæmundsson, Gunnlaugur Gíslason og Eyjólfur Sigurðsson.
Hér fer á eftir ályktun
menntamálanefndar 19.
sambandsþings SUJ 1962.
Þingið fagnar því, að
Kennaraskóli Islands skuli nú
geta tekið til starfa I nýjum
húsakynnum og væntir þess, að
ekki verði þess langt að bíða
að tilraunaskóli við Kennara-
skólann komizt upp. Jafnframt
varar þingið við hinni geig-
vænlegu hættu, sem þjóðfélag-
inu er búin af kenparaskort-
inum, og hvetur til þess að
launakjör kennara verði þann-
ig, að þau stuðli að því að
góðir og hæfir menn veljist í
þessi ábyrgðarmiklu störf. —
Bendir þingið sérstaklega á
óréttmæti hinna lágu byrjunar
launa kennara og telur brýna
þörf skjótra úrbóta í því efni.
Þá telur þingið brýna nauð-
syn til þess að auka sálfræði-
þjónustu skólanna, þannig, að
sálfræðingum á vegum skól-
anna verði fjölgað, og a.m.k.
sumir þeirra ferðist milli skól-
anna út um landið og veiti þeim
ráð og leiðbeiningar.
Þingið telur nauðsynlegt, að
starfsfræðsla verði tekin inn í
skyldunámið, þannig að sér-
hver nemandi í skyldunámi
eigi kost á leiðbeiningum og
ráðleggingum um val á fram-
tíðarstarfi sínu með tilliti til
hæfileika sinna.
Þingið þakkar það átak, sem
þegar hefur verið unnið í bygg
ingum skóla fyrir landsmenn
og væntir þess, að markvisst
verði unnið að því, að ekki
þurfi að margsetja í skólana.
Einnig skorar þingið á alþingi
og ríkisstjórn að hraða sém
kostur er, raunliæfri úrlausn
í húsnæðismálum menntaskól-
anna svo og Háskóla íslands.
Þingið telur, að þegar verði
að koma á fót fullkomnum
verknsámskólum eða námskeið
um sem víðast á landinu og
starfsemi sú verði til að byrja
með sniðin sem mest eftir þörf
um aðalatvinnuvega okkar á
bættu vinnuafli.
Þingið álítur, að sem fyrst
hefi að endurskoða fvrirkomu-
lag prófa í menntaskólum og
háskóla og miða skuli að skipt-
ingu þungra yfirgripsmikilla
heildarprófa í smærri áfanga-
próf.
Þá telur þingið nauðsyn á
meiri sérhæfingu náms í
menntaskólum, t. d. með stofn-
un náttúrufræðideildar og sögu
deildar.
Þingið leggur til, að tónlistar-
kennsla verði efld í skólum,
teknar verði upp leiðbeiningar
í mælskulist og framsögn, sem
miðist við, að sem flestum
einstaklingum sé fært að túlka
skoðanir sínar í ljósu máli. Þá
minnir þingið ennfrerr.Jir í/
danskennslu og leiðbeiningar
í umgengnisháttum sem fasta
grein í skólakerfinu.
Þingið lýsir ánægju sinni yf-
ir þeim tilraunum, sem gerðar
hafa verið með listkynningu í
skólunum og hvetur til þess að
sú starfsemi verði bæði efld
og aukin.
Þingið leggur áherzlu á, að
öllum iðnskólum landsins verði
breytt í dagskóla.
Þingið telur nauðsyn þess áð
íullkomnir Iðnskólar verði
reistir sem víðast á landinu, t.
d. í hverjum landsfjórðungi,
þannig að komið verði á fáum
fullkomnum iðnskólum í stað
margra ófullnægjandi.
Þá telur þingið nauðsynlegt,
að sem allra fyrst verði komið
á forskóla að Iðnskólanum í
Reykjavík, sem yrði starfrækt-
ur yfir sumartímann til kynn-
inga á hinum ýmsu iðngrein-
um.
Þingið telur mikla þörf á, að
tækniskóli ríki hér á landi sem
fyrst og skorar á alþingi og
ríkisstjórn að taka það mál til
rækilegrar íhugunar.
Það hefur frá upphafi AI-
þýðuflokksins verið eitt af
grundvallarstefnumiðum hans,
að öllum þegnum þjóðfélagsins
gefizt tækifæri til þess þroska
og menntunar, sem hæfileikar
þeirra og löngum standa til.
Þess vegna skorar þingið á
hæstvirt alþingi og ríkisstjórn
að auka stórum hagstæð lán
til langskólamanna, svo að
hinir efnaminnstu meðal þeirra
neyðist éigi til þess að hætta
námi sínum sökum fjárskorts.
Jafnframt skorar þingið á al-
þingi og ríkisstjórn að athuga,
hvort ekki sé tímabært að taka
upp námslaun í stað námslána
og styrkja.
Þingið- vill vekja atliygli á
vaxandi þörf þéttbýlisins á upp
tölcuheimilum fyrir drengi og
stúlkur, sem af ýmsum ástæð-
um er nauðsynlegt að komast
í slíkar stofnanir, ef þau eiga
að verða að nýtum og góðum
þjóðfélagsþegnum. Telur þingið
að setja verði löggjöf um að
slík heimili verði reist og rek-
in á sama hátt og skólar lands-
ins.
Þingið hvetur ríkisvaldið til
að veita öllu heilbrigðu æsku-
lýðsstarfi, sem mestan stuðn-
ing, svo að eðlisleg athafna-
þrá æskunnar fái notið sín í
uppbyggilegu starfi og haml-
að þannig á móti vaxandi af-
brotum ungmenna.
Þingið hvetur alla góða menn
til aukinna starfa að barna-
verndarmálum og mælist ein-
dregið til þess að eftirlit með
kvikmyndahúsum, vínveitinga-
húsum og dansstöðum verði
aukið og endurbætt t. d. með
Framh. ð 13. siðu
4 18.' nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ '/ '!»