Alþýðublaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 7
Hraðfryst sild
framleiðsla ■ markaðir
í YFIRLITSRÆÐU sinni á aðalfundi SH s. 1. vor, komst Elías
Þorsteinsson svo að orði, að honum kæmi ekki á óvart þótt það
niagn, sem fryst hafði verið af síld haust- og vetrarvertíðina 1961 —
62, 18 þúsund tonn, myndi tvöfaldast á þessu ári. Voru það orð að
sönnu, eins og sjá má af þeim samningum, sem þegar hafa tekizt
um sölu hraðfrystrar síldar í haust. Samkvæmt þeim IiCfur þegar
verið samið um sölu á jafn miklu magni og heildarútflutingurinn var
haust- og vetrarvertíðina 1961—1962 eða um 20.000 tonn. Takist að
fullnægja þeim samningum eins og ráð er fyrir gert, má búast við
að unnt verði að selja enn meira magn um og eftir áramót, ef ekk-
ert óvænt kemur fyrir.
Þróunin í sölu hraðfrystrar
síldar hefur verið mjög ör á síð-
ustu árum og hefur svo til ein-
göngu verið um að ræða fryst-
ingu haust- og vetrarsíldar, sem
veiðzt hefur í Faxaflóa og við
SV-land.
Samkvæmt framleiðsluskýrsl-
um til SH og SÍS var heildarfryst-
ing síldar í húsum innan þess-
ara samtaka 3733 tonn árið 1960
og 18778 tonn árið 1961, þar af
framleiddu hús innan SH 3104
tonn fyrra árið og 16891 tonn
hið síðara. Framleiðsla SH-hús-
anna til 30. júní í ár var 9074
tonn. Haustvertíð hefur enn ekki
hafizt vegna deilu sjómanna og
útvegsmanna um hlutaskipti og
fleira.
Haustið 9161 hófst frysting í
október og var framleiðsla SH-
húsanna sem hér segir, til ára-
móta:
Október 784,2 tonn
November 3187,8 tonn
Desember 5161,5 tonn
Samtals 9133,5 tonn
eða 91335 tunnur af síld upp úr
sjó og er þá miðað við að 100
kg. fari í tunnuna.
Af ofangreindum tölum má
sjá, að hraðfrysting síldar var í
fullum gangi um þetta leyti árs
í fyrra. Að fenginni góðri reynslu
af síldarfrystingu og þar ■ sem
nýir og auknir markaðir virðast
vera að opnast fyrir hraðfrysta
síld, hófust margir hraðfrysti-
húsamenn handa um að bæta
og endurnýja frystitækjaútbún-
að sinn og keyptu m. a. hin
dýru og stórvirku tæki af gerð-
inni Williams og Amerio, en þau
munu henta vel fyrir síldar-
frystingu.
Hraðfrystihúsin eru nú mun
betur undir það búin að hefja
síldarfrystingu en nokkru sinni
fyrr og er þess að vænta að
deila sjómanna og útvegsmanna
geti leystst hið fyrsta til þess
að unnt verði að hefja fram-
leiðslu og nýta dýr tæki á sjó
og landi, jafnframt því sem
tryggt verði að 1 við glötum ekki
mörkuðum, sem unnið hefur
verið að að afla með æmum
kostnaði og fyrirhöfn.
Undirbúningur að sölum á
hraðfrystri síld, sem veidd yrði
haust- og vetrarvertíðina 1962-
63 hófst á miðju sumri af hálfu
SH, en náið og gott samstarf
var haft við Sjávarafurðadeild
SÍS, sem átti hlutdeild og aðild
að þeim samningum, sem síðar
voru gerðir.
Af hálfu SH unnu þeir Bjöm
Halldórsson, Arni Finnbjörnsson
og Sturlaugur Böðvarsson út-
gerðarmaður frá Akranesi að
sölusamningum og náðust samn-
ingar sem hér segir:
1. Stórsild:
Tékkóslóvakía 2000 tonn
Pólland 2500 tonn
Austur-Þýzkal. 4200 tonn
Vestur-Þýzkal. 4150 tonn
Samtals 12850 tonn
2. SmásQd:
Vestur-Þýzkal. 5450 tonn
3. SQdarflök:
Vestur-Þýzkal.
1900 tonn
Samsvara þessar sölur um
220.000 tunnum af síld upp úr
sjó.
I samningunum er gert ráð
fyrir, að mikill hluti umsamins
magns sé afgreitt fyrir áramót,
og er afar áríðandi að unnt verði
að fullnægja þessum samnings-
ákvæðum, þar sem hér er um
að ræða stórauknar síldarsölur
ef framangreindum samningum
er, að Islendiiigar haldi.
Góðar horfur eru á að unnt
verði að selja enn meira magn
af framangreindum samningum
verður fullnægt, auk þess sem
búast má við sölum til Sovét-
ríkjanna.
Framh. á 13. síðu
ÞESSI tvö litlu börn eru fædd sama dag, sama árs í Danmörku. Annað er eðlilegt barn, en
hitt er minnsta barn sem fæðst hefur í helmfnum og lifað hefur. Það er aðeins 1 mörk að þyngd, en
til samanburðar má geta þess að barnið við hlið ina er 14 merkur, en það er venjuleg þyngd á korna
barni. Litli kranginn er stúlka, og henni heilsast ágætlega undir góðu eftirliti hjúkrunarkonunnar
á sjúkrahúsinu þar sem hún fæddist.
ÚTVARP FYRIR UNGT
[sidSlÍ
Hljómleikar
Sinfóriíuhljómsveitarinnar fara
nú að hefjast, þeir fyrstu verða 26.
og 27. þ.m. í Háskólabíói. Hefur
verið haldinn sameiginlegur fund-
ur skólastjóra og útvarpsmanna til
að undirbúa þá. Þar verða fyrst
sýnd og skýrð einstök hljóðfæri
og siðan leikin ýmis létt og auð-
skilin lög og loks sérstök verkefni
fyrir ungt fólk.
Lög unga fólksins
eru á þriðjudögum, með alls kon
ar nýrri og léttri tónlist, en kiase-
iskir tónlistarþættir fyrir ungt
fólk á mánudögum. Aðrir þættir
sem ætla mætti að ungt fólk hefði
áhuga á, eru tónlist á atómöld,
stund fyrir stofutónlist, jazzþættir
og harmonikuþættir og loks er
danskennsla á laugardögum. í
Taiwan og Malagasy.
spurningakeppni unga fólksins á
mánudögum er líka tónlist.
Barnatímar
eru nú á hverjum degi, oftast 29
mínútur í senn, en 45 mínútur á
laugardögum og 50 mínútur á
sunnudögum. Sv(mudagstímarnir
eru ætlaðir öllum aldursskeiðum.
Á mánudögum er þjóðlegt efni fyr
ir nokkuð stálpuð börn, á þriðju
dögum tónlistartími, á miðvikudög
um og laugardögum útvarpssaga,,
á fimmtudögum efni fyrir yngstu
hlustendurna, á föstudögum ýmis-
legt sögulegt íslenzkt efni. „Þeir
sem gerðu garðinn frægan,“ og eru
írásagnir um merka íslendinga,
einkum frá síðari öldum. Á laugar
dögum er, auk útvarpssögunnar,
tómstundaþátturinn.
Sögur:
Byrjað er nú að lesa sögu Thom
as Mann: Felix Krull og þýðir og
les Kristján Árnason. Þetta er síð
asta sagan sem Thomas Mann
samdi, en hann sagðist lengi hafa
haft hug á að semja slíka gaman-
sama sögu. Hún er miklu léttari og
fjörmeiri í frásögn en hinar stóru
eldri sögur hans, ag segir frá marg
víslegum flækingi og ævintýrum
söguhetjunnar. Thomas Mann var
öndvegis skáldsagnahöfundur síns
samtíma fékk m.a. Nóbelsverðlarui
in og bætist þarna enn ein saga
í hóp þeirra öndvegisrita úr heims
bókmenntunum, sem útvarpið hef
ur látið þýða og flytja.
Einnig er flutt sérstök saga í
kvennatímanum, Við sem heima
sitjum: Úr endurminningum Schi
aparelli, sem Svandís Jónsdóttir
les. Fyrir þá, sem vilja hlusta á
sögur, aðrar en skáldsögur, er les
in saga Rothschildættarinnar eftii^
Morton, og flytur hana Hersteinn.
Pálsson. Þá er, eins og óður, út-
varpssaga barnanna tvisvar í viku.
Loks er ný saga í leikformi, eða
frmhaldsleikrit, Lorn Dún, í sjö-
köflum. Þýðandi er Þórður Einars--
son og leikstjóri Hildur Kalman.
Leikrit.
Á laugardögum er þ. 11. 17. og-
25. nóv ember flutt hið mikla leik'
rit Bernard Shaw: Menn og ofur~
menni, í þýðingu Árna Guðnasorv
ar, en undir leikstjórn Gísla Hall—
dórssonar. Þetta er eitt af höfuð--
verkum Shaw og flutt í útvarpifk
allt og óstytt, í þremur köflum-
Ýmis fleiri stór leikrit eru í und-»
irbúningi.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. nóv. 1962 T
-- Sðlí Vð'f .Si'