Alþýðublaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 10
Ritstiðri: ÖRN EIÐSSON
Skíðakeppni er-
lendis að hef jast
ÞAÐ verður mikið um að vera
hjá norskum skíðamönnum í vet-
ur og það er skoðun forráðamann-
anna, að sjaldan eða aldrei hafi
undirbúningur þeirra verið. eins
góður og nú.
Leif Holm, formaður tækni-
nefndar norska Skíðasambands-
ins í skíðastökki er mjög bjart-
sýnn eftir námskeið, sem haldið
var nýlega með helztu stökkvur-
um Noregs. Hann býst við miklu
af norsku skíðastökkvurunum. Um
næstu helgi verður haldið annað
námskeið, sem stendur yfir í fimm
daga.
Fyrsta stórmótið í skíðastökki
á þessum vetri er þýzk-austur-
ríska stökkvikan, sem fram fer
í lok desember, hefst í Oberst-
dorf 28. desember. — Ýmis
smærri mót verða áður og það
fyrsta í Oresund, Svíþjóð um
næstu helgi. Svissnesk stökkvika
Vfcrður einnig og stendur yfir frá
Sf7. janúar til 3. febrúar og fer
fram í Untervasser, St. Moritz, A-
m ' '
rosa og Le Locla. Keppni verður
í Le Brassus 12.-13. jan. og þar
verður einnig keppt í svigi og
bruni.
Stærsta mót á Norðurlöndum
verða sænska Skidspelen 9.-10.
febrúar, finnska Skidspelen í Lah-
tis síðustu vikuna í marz og svo
er það auðvitað Holmenkollen-
mótið.
I Innsbruck eiga að fara fram
reynslu Olympíuleikar, keppnin í
alpagreinum þeirra fer fram 15,-
17. febrúar. Svona er hægt að
skrifa lengi um ýms alþjóðleg
skíðamót um alla Evrópu, en þau
verða geysimörg í vetur.
Ekki höfum við neitt frétt af
þátttöku íslenzkra skíðamanna í
mótum þessum, eða hvort um slíkt
verður að ræða. Ekki væri samt
úr vegi að reyna að stuðla að þátt
töku t. d. í reynslu OL, ef mögu-
legt er. Einn íslenzkur skíðamaður
Kristinn Benediktsson frá Isa-
firði er nú staddur í Austurríki
og hann mun áreiðanlega taka þátt
í mótum ytra í vetur.
Menntaskóla-
Hálogalandi
annaðkvöid
Hið árlega íþróttamót Mennta-
skólans í Reykjavík verður háð í
íþróttahúsinu að Hálogalandi n.k.
Framh. á 14. síðu
Myndimar á síðunni eru
frá leik KR og Fram í
Heykjavíkurmeistaramótinu
í handknattleik, en leikur-
inn fór fram í fyrrakvöld.
Á myndinni hér til hliðar
er Erlingur, Fram, að skora
af línu, Sigurður, KR, reyn
ir að hindra það, en tekst
ekki. Á hinni myndinni er
Herbert, KR, í færi, en hann
er á línu og hvort sem hann
hefur skorað eða ekki, er
markið ógilt. Ingólfur,
Fram, fylgist með aðgerðum
Herberts.
ReykjavíkurmótiB í handknattleik:
Fram vann KR örugg-
lega í fyrrakvöld
Átta leikir voru háðir í Reykja-
víkurmótinu í handknattleik á
föstudagskvöldið. Þar af fór einn
fram í meistaraflokki kvenna og
einn í mfl. karla. Ármann vann
Víking i kvennaflokki og Fram KR
í karlaflokki.
★ Ármannsstúlkurnar voru
betrl.
Þetta var fyrsti leikurinn í mfl
ivenna í Rvíkurmótinu og Ármanns
liðið kom vægast sagt á óvart með
ágætum leik. Liselotte gerði fyrsta
markið af nokkuð löngu færi, en
áður höfðu liðin skipst á upphiaup
um. Fimm sinnum hafnaði bolt-
inn í marki Víkings í fyrrí hálfleik
án þess að Víkingar gæ'.u svarað
fyrir sig. Sigríður Kjartansdóttir
gerði 2 mörk af línu, það síðara
mjög skemmtilega eftir að hún
hafði leikið sig fría. Hin mörkin tvö
gerðu Jóna Þorláksdóttir og Ása
Jörgensdóttir.
Síðari hájfleikur var Víkings-
stúlknanna, þær skoruðu þvívegis
en nú tókst Ármanni ekki að
skora. Mörk Vikings gerðu Hall-
ióra Jóhannesdóttir, Elín Guð-
mundsdóttir og Guðrún Helgadótt-
ir.
Sigur Ármanns var verðskuldað
jr, þær voru ákveðnari og sýndu
'jölbreyttari leik, áberandi var
ivað þær voru hreyfanlegri og
TÍskari. Lið Ármanns er jafnt, en
irndís í markinu vakti athygli fyrir
igætan leik. Iið Víkings var ósam
tætt og sigurviljann vantaði.
)ómari var Gunnlaugur Hjálmars-
on og dæmdi veL
★ KR veitti Fram harða mót-
spyrnu — en Fram vann 17:14
Leikur Fram og KR í mfl. karla
var skemmtilegur, þó að sigur
Fram væri aldrei í hættu. KR-ingar
börðust eins og ljón frá upphafi og
sýndu ágæt tilþrif á köflum. Fyrstu
mínúturnar ,voru beztar. Fram
skorar fyrst (Guðjón), Karl jafnar
fyrir KR með snöggu skoti, enn
nær Fram forystu með góðu marki
Ágústar Þ.. Karl Jóh. var í essinu
sínu í fyrrakvöld og hann skcrar
tvö mörk af miklum glæsibrag og
KR hefur yfir, 3:2. Ingólfur jafaar
fyrir Fram en KR nær aftur for-1
ystu, én Reynir skorar í gegn um
vörn Fram, sem var nokkuð opin
í upphafi. Eftir þetta fór að halla
á ógæfuhlið fyrir KR, síðari hluta
hálfleiksins sýndi Fram styrk-
leika sinn og skoraði 7 mörk gegn
1 marki KR og þannig var staðan
í hálfleik 10:5 fyrir Fram.
Bilið hélt áfram að breikka í
byrjun síðari hálfleiks og komst
mest í 15:8, en þá fór KR að vinna
á og í lokin munaði aðeins 3 mörk
um, 17 gegn 14.
Þó að munurinn væri ekki meiri
var greinilegt hvort liðið var sterk
ara og sigur Fram var fyllilega
verðskuldaður. Lið Fram var mjög
jafnt í leik þessum, en hjá KR-ing
um bar Karl af öðrum leikmönnum
og skoraði 7 af mörkunum. Daníel
Benjamínsson dæmdi leikinn af
myndugleik.
★ Aðrir leikir kvöldsins
í 2. flokki kvenna vann KR Val
4:3 og segja verður það, að KR-
stúlkurnar voru heppnar, í síðari
hálfleik átti Valur a.m.k. 4 stangar
skot. í 3. flokki karla (B) vann
Víkingur Val með 5:3. ÍR sigraði
Þrótt i 3. flokki (A) með 9:4 og í
liði beggja eru góð efni. Ármann
og Þróttur áttust við í 2. flokki (A)
og þeirri viðureign lauk með jafn-
tefli 5:5 sanngjörn úrslit.
Loks fóru fram tveir leikir í I.
Framh. á 13. síðu
Númer á
keppnisbúninga
í handknattleik
Eitt er það mál, sem kem-
ur sér illa og alveg sérstak-
lega fyrir þá scm skrifa um
handknattleiksmótin, en það
er, að nnmer vantar á keppn
isbúninga flestra félaga. Er
ekki nokkur leið að kippa
þessu í lag? Helzt ætti að
setja nöfn þeirra leikmanna
sem leika í meistaraflokki í
leikskrá ásamt númeri. Þetta
er gert í körfuknattleiknum
og meira að segja hæð og
aldur leikmanna fylgir. Við
skorum á HKRR að skylda
félögin til að gera þetta fyrir
íslandsmótið.
10 18. nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
|J,|; :.lf í u,í: :í;:: ■