Alþýðublaðið - 22.11.1962, Síða 10

Alþýðublaðið - 22.11.1962, Síða 10
I Hún sigraði i listhlaupi á skautum LISTHLAUP á skautum cr fögur íþrótt. Myndin er tekin í keppni, sem nýlega fór fram í Englandi. Keppt var um svokallaðan Richmond- bikar. Stúikan á myndinni, ' sem er frönsk og heitir Nic- ole Hassler bar sigur úr být um. Ungfrú Hassler varð nr. 6 í síðustu heimsmeistara- keppnl. EINS og skýrt er frá á síðunni er keppnin í dönsku knattspyrnunni mjög spenn andi og fjölmörg lið í fall- hættu, þó að aðeins ein um- ferð sé eftir. Myndin er frá leik B1909 og AB, en þeir fyrrnefndu töpuðu 0-3 og eru neðstir ásamt 3 félögum öðr- um. Á myndinni reynir mark vörður B1909, Svend Aage Rask árangurslaust að verja skot frá Volmer Ejrnæs. A-Þjóðverjar unnu íékka 2:1 í GÆR léku Austur-Þjóð- verjar og Tékkar í bikar keppni landsliða I knatt- spyrnu. A.-Þjóðverjar sigr- uðu silfurmennina frá síð- ustu heimsmeistarakeppni með 2 mörkum gegn 1. Öll mörkin voru skoruð í síðari hálfleik. Leikurinn, sem var fyrri leikur landanna, fór fram í Berlín. Ritstióri: ÖRN EIÐSSON Danska knattspyrnan: KEPPNIN HEFUR ALDREI VERIÐ EINS SPENNANDI KB 21 9 5 7 40-39 23 Vejle 21 9 2 10 50-45 20 Brönshöj 21 8 3 10 31-43 19 Köge 21 6 6 9 35-40 18 AB 21 6 5 10 29-46 17 B1903 21 5 6 10 29-46 17 B1909 21 4 8 9 28-40 16 OB 21 5 6 10 28-42 16 Fredrikshavn 21 6 4 11 21-37 16 NÚ er aðeins ein leikumferð í dönsku deildakeppninni eftir og þó útkljáð sé um meistara 1. og 2. deildar, er óvenjumikill spenn- ingur um hverjir falla niður og hvaða lið fylgi AB upp í 1. deild. Nú eru fjögur lið með 16 stig á botninum í 1. deild, en næstu fyrir ofan hafa 17 og 18 stig svo ekki veitir af að hafa sterkar taugar um næstu helgi, en þá verða leikn ir síðustu leikirnir og eru þeir þessir í 1. deild: OB — KB Esbjerg — B1913 Brönshöj — Fredrikshavn Köge — B1909 AGF — 7903 Vejle - AB Þá er ekki síðri spenningurinn í 2. deild. Fjögur stig skilja að nr. 2 og nr. 11 og er þetta mjög ó- venjulegt í svo langri keppni. Ef að líkindum lætur, geta tvö stig skil ið að þann aðilann sem upp kemst í 1. deild og hinn, sem fellur niður í 3. deild. Leikirnir, sem eftir eru í 2. deild eru þessir: B1901 — AIA Viborg — Od. KFUM Frem — AB Skovshoved — Horsens Randers — HIK Frem, Saksk. — B93 Leikir og staðan um helgina í 1. og 2. deild: 1. deild. B1903 3 — Köge 0 KB 0 — Esbjerg 2 Fredrikshavn 2 — OB 1 B1909 0 — AB 3 B1913 1 - AGF 1 Vejle 1 — Brönshöj 2 Esbjerg 21 18 1 2 61-15 37 AGF 21 11 5 5 58-39 27 B1913 21 12 3 6 -51-37 27 2. deild. AIA 3 — Frem 1 B93 2 - Od. KFUM 0 AaB 1 — Skovshoved 2 HIK 4 — Horsens 2 B1901 3 - Viborg 1 Framh. á 11. siðn Tyrkneska liðið Galatasaray tap aði fyrir pólska liðinu Polonia Bouthen í Evrópubikarkeppninni á sunnudag með 1-0. Tyrkirnir halda samt áfram keppni þar sem þeir hafa betri markahlutföll 4-1. HIÐ FYRRA sundmót skólanna skólaárið 1962—’63 fer fram í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudag inn 6. desember n. k. og hefst kl. 20:30. Forstaða mótsins er í hönd'um íþróttabandalaga fram- haldsskóla í Reykjavík og ná- grenni (ÍFRN). Sundkennarar skólanna eru ÍFRN til aðstoðar um undirbúning og framkvæmd mótsins. Sundkennar- arnir munu koma sundhópum skólanna fyrir til æfinga, sé haft samband við þá. Gætið þess að geyma ekki æfingar fram á síð- ustu daga. ÍÞRÓTTAKENNARAR, ræðið mótið og æfingar við nemendur þá, sem þér kennið. NEMENDUR, fáið íþróttakenn- ara skólans til þess að leiðbeina um æíingar, val sundfólks og nið- urröðun liða. Frá því 1938 hefur sá háttur verið hafður á þessu móti, að nemendur í unglingabekkjum (1. og 2. ,bekk unglinga-, mið- eða gagnfræðaskólá) kepptu sér í ungl- ingaflokki og eldri nemendur þ. e. þeir, sem lokið hafa unglinga- prófi éða tilsvarandi prófi, kepptu sér í- Eldri flokki. Sami háttur verður hafður á þessu móti og tekið fram, að unglingum úr ungl- ingabekkjum verður ekki leyft að keppa í eldra flokki, þótt skólinn sendi ekki unglingaflokk. — Er þetta gert til þess að forðast úr- val hinna stóru skóla og hvetja til þess að þátttaka verði meiri. Keppt verður í þessum boðsund- um: - I. U?íGLINGAFLOKKUR: A. stútkur: Bringusund 10x33tá m. (Bezta tíma á G. Keflavíkur 5.05,5; meðaltími einstaklings 30,5 sek.) Nö keppt um bikar ÍFRN frá 1961, sem Gagnfræðaskóli Hafn- arfjarðar vann í fyrra á tímanum 5:13,1.. B. Piltar: Bringusund 20x33% m. Keppt um bikar ÍFRN, sem unnin var af Gagnfræðaskóla Hafnarfjarðar 1958 (tími 9:36,8), 1959 af Gagnfræðadeild Laugar- nesskóla (tími 9:28,5), 1960 af sama skóla (tími 9:28,5), og 1961 af Gagnfræðaskóla Hafnarfjarðar (tími 9:20,8). Bezti meðaltími hvers manns um 28 sek. II. ELDRI FLOKKUR: A. stúlkur: Bringusund 10x33% m. Bikar ÍBR vann Gagnfræðaskóli Hafnarfjarðar til eignar 1961 (5:12,9). Nú keppt um ný verðlaun. Beztan tíma á þessu sundi á Gagn- fræðaskóli Keflavlkur, 4:58,7, eða meðaltíma einstaklinga 29,8 sek. B. piltar: Bringusund 20x33% m. Bikar ÍFRN vann sveit Mennta skólans í Reykjávík til eignar 1961 (tími 8:28,7 eða meðaltími 25,4 sek). Beztan tíma í þessu sundi á Iðn- skóli Reykjavíkur (tími 8:09,9, eða meðaltími einstaklings 24,5 sek.). Nú keppt um ný verölaun. VARÚÐ: Kennarar og nemendur varizt að setja til keppni þá, sem eru ó- hraustir eða hafa ekki æft. ATH.: Aðeins unnt að taka þær sveitir til keppninnar, sem tilkynnt hefur verið um fyrir kl. 16, miðviku- daginn 5. desember. SPURNING: ■i‘ Kennarar og nemendur eru beðnir að athuga, vegna hins síð- ari sundmóts skólanna.hvort unnt sé að efna til þess móts í lok fe- brúar. í þessu sambandi þarf að at- huga um miðsvetrarpróf, árshátíð- ir og keppni skóla, t.d. í hand- knattleik og körfuknattleik. Erfitt verður að koma þessu móti á I marz eða apríl vegna skíðaferða skól og keppni skóla í knattleikj um. TII.KYNNINGAR um þátttöku sendist sundkennurum skólanna í Sundhöll Reykjavíkur fyrir kl. 16 þann 5. desember. Sænska landsliðið í knattspyrnu heldur áfram keppnisför sinni um Austurlönd. Svíar sigruðu Thai- land í síðustu viku með 8-1, en leiknum gegn Malaja var hætt eft ir 20 mín. vegna skýfalls. 10 22. nóv. 1962 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.