Alþýðublaðið - 05.12.1962, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 05.12.1962, Blaðsíða 10
Geysispennandi að Hálogalandi: ✓ Jafntefli IR og Vals og Þróttar og Fram Fram-Þróttur 13:13 (6:6) (7:7) Fram sem er bæSi íslands- og Eeýkjavíkurmeistarar í handknatt leik komust heldur betur í hann krappann gegn nýliðunum í 1. deild Þrótti. Má segja að sóknarleikur Þróttar í þessum leik hafi verið mjög svipaður því, sem menn eiga að venjast hjá Fram. Virtist þetta koma Fram mjög á óvart og verða þess valdandi að þeir náðu aldrei rieinum tökum á leiknum Að vísu veikti það lið Fram talsvert að Guð jón lék ekki með, einkum þó í varnarleiknum, því Fram virðist ekki eiga neinn staðgengil fyrir Guðjón í miðherjastöðuna. Þrótt arar voru oftast 1-2 mörkum yfir mest allan fyrri hálfleikinn, þeir byrja 2:0, síðan jafna Framarar 3:3 og aftur 4:4 en þá komast Þróttar- ar upp í 6:4 og enn tekst Fram að jafna skömmu fyrir hálfleikslok. í seinni hálfleik hafa Þróttarar eitt mark yfir fram í miðjan hálfleik- inn, en þá tekst Fram að jafna (9:9) og síðan að komast eitt mark yfir 10:9 en Þróttur jafnar 10:10. Fram nær nú allgóðum leikkafla líkast til þeim skársta í leiknum og hafa út úr því tveggja marka forskot (12:10) En hinir ungu Þróttarar hafa ekki sagt sitt síðasta orð í þessum leik, þeim tekst að skora þrisvar, þar af einu sinni úr víta- kasti og eru það nú þeir, sem hafa yfirhöndina. Er nú skammt til leiks loka, og er þá Helga vikið af leik velli fyrir gróft leikbrot, og 18 sekúndum áður en flauta tímavarð arins gellur, jafnar Ingólfur fyrir Fram. Mátti ekki tæpara standa, ef annað stigið átti að lenda hjá Fram. Lið Fram var nú langt frá sínu bezta og kom nú enn skýrar í Ijós en áður, hversu mjög mark- varzlan er veikur hlekkur í vörn liðsins. Þetta er að sjálfsögðu al- varlegt atriði fyrir Fram og mikils um vert að einhver lausn finnist á því vandamáli. Kunnur danskur handboltafrömuður hefur látið svo um mælt að markvarzlan sé a.m.k. 50% af getu handboltaliðs og í ljósi Framh. á 13. síðv Mwí « : Hermann Samúelsson brýst í gegn og skorar fyrir ÍR, Frá leik Þróttar og Fram: Ingólfur Óskarsson skorar. Óskar Halldórsson: Fyrri grein Árið 1912 var stofnað fyrsta knattspyrnufélagið í Hafnarfirði Knattspyrnufélagið Kári. Æfingar stunduðu félagsmenn vestur á Víði stöðum, Það eina, sem vitað er um keppnir er að Kári lék við skips- menn af varðskipinu Fylla og mun Kári hafa tapað þeim leik, en ekki eru þó til heimildir um marka- tölu. Til gamans má geta þess, að þeir Kára-félagar munu hafa byrj- að að æfa með knetti gerðum úr tjörubomum seglstriga og tvinna- kefli fyrir stút, en munu síðar hafa safnað fyrir nothæfum knetti. Fé- lagið sendi umsókn til bæjarstjóm ar um afnot af svæði við Víðistaði en fengu ekki svar, Talið er að félagið hafi starfað til ársins 1917. Knattspyrnufélagið Geysir starf aði og um tíma. Þann 9. júní 1919 var stofnað Knattspymufélagið Framsókn og nokkrum dögum síðar var stofnað hér Knattspymufélagið 17. júní og hét eftir stofndegi sínum. 1. september 1919 háðu svo fé- lögin 17. júní og Framsókn keppni sem lauk með sigri 17. júní 2:1. Eitt fyrsta verk 17. júní var að leigja æfingasvæði af Bjama Er- lendssyni á Víðistöðum og gekk Framsókn síðar inn í þá leigu. Ekki leigðu félögin æfingasvæði að Víðistöðum lengur en til 1. des ember, en hófust handa með vall argerð á Hvaleyrarholti. Völlur- inn var vígður í ágúst 1920. Við það tækifæri kepptu félögin- 17. júní og Framsókn. Lauk leiknum með sigri 17. júní 1:0. Dómari í þessum leik var Ben. G. Waage, fyrverandi forseti ÍSÍ. 1920 fór fram. meistaramót í knattspyrnu í Hafnarfirði. 1920: 17. júní — Framsókn 2:1 1921: 17. júní — Framsókn 7:2 1922: Stofnað til leiks í 3. fl. og sigraði Framsókn. 1923: 17. júní — Framsókn 2:1 Árið 1926 keppa svo félögin Staðan í meistarafl. karla: Fram 5410 87-64 9 ÍR 5 3 1 1 71-74 7 Vík. 5302 60-55 6 Þróttur 6 2 2 2 69-73 6 Ármann 5 2 0 3 53-52 4 KR 5 1 0 4 57-64 2 Valur 6 0 2 3 55-70 2 Markhæstir eru nú: Gunnl. Hjálmarsson ÍR 31 Ingólfur Óskarsson Fram 27 Karl Jóhannsson KR 19 Grétar Guðmundss. Þrótti 18 Reynir Ólafsson KR 18 Axel Axelsson Þrótti 17 Hörður Kristinsson Á. 17 Hermann Samúelsson ÍR 16 Árni Samúelsson Á. 1S Jóhann Gíslason Víking 15 sameiginlega út á við og stofnuðu Knaltspyrnufélag Hafnarfjarðar Keppt var tvisvar við Víking úr Reykjavik. Sigruðu Hafnfirðingar í Reykjavík, en jafntefli varð er leikið var hér. Árið 1927 var svo Knattspymu félagið Þjálfi stofnað. Öll þess i félög unnu knatt- spyrnuíþróttinni hér ómetanlegt gagn, en erfið skilyrði á öllum svið um háðu starfsemi þeirra svo mjög, að þeim varð ekki langra lífdaga auðið. Árið 1929 var stofnað Fimleika félag Hafnarfjarðar, sem æfði eins og nefnið bendir til fimleika og auk þess frjálsar íþróttir. Hinn 12. apríl 1931 var svo stofn að Knattspyrnufélagið Haukar. — Árið 1932 byrja Haukar að æfa og keppa á vellinum á Hvaleyrarholti og gerðist Gísli Sigurðsson þjálfari þeirra um skeið og liefur siðan verið hugsað til hans með þakklæti og hlýhug úr röðum Hauka. Um haustið 1932 hættir Þjálfi starfsemi sinni og virtist um skeið sem þetta myndi trufla starf semi Hauka en vegna góðrar sam- vipnu við félögin í Reykjavík. blómgaðist starfið, og má í því sambandi minnast þess, að Frí- mann Helgason fór þess á leit við' KRR að Haukar fengjust að gerast aðilar að KRR en því var hafnað. 1939 er merkilegt ár í sögu Hauka. Þá voru uppi raddir n það, að sameina FII og Hauka Framhald á 13. síðo. 10 5. des. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 1

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.