Alþýðublaðið - 05.12.1962, Qupperneq 16
Vernd sendir öllum
föngum jólagjafir
Það eru stöðugt miklar annir
hjá fólki því, sem vinnur að
fangahjálp á vegum „Verndar“
Oft koma konur í bækistöð fé-
lagsins seinnipart daga og
vinna í sjálfboðavinnu fyrir fé
lagið, og stundum cr unnið
langt fram á kvöld.
.Myndin hér að ofan var tekin
í gær í stofunni í vistheimili
Verndar við' Stýrimannastíg.
Þar eru frú Þóra Einarsdóttir
formaður félagsins (til vinstri)
og. frú Sigurlaug Sigurðardótt
' ir áð starfi. Sigurlaug er að
saunia, en Vernd fær alltaf mik
ið af fatnaði gefins handa föng
uju og aðstandendum þeivra.
Allt er nýtt. En til þess sað það
sé unnt, koma konurnar á heim
ilið til að breyta og laga fatnað
inn. Það er Sigurlaug að gera.
Vernd stendur fyrir því, að
föngum er útvegað efni í alls
konar smíði og föndur og síð
an tekur félagið gripina og ann
ast sölu á þeim, því að föngun
um vcitir ekki af að koma vinnu
sinni í verð. Flestir eiga lítið
skotsilfur, er þeir koma úr fang
elsinu. Á myndinni sjást kirkja
og bóndabær, jólagripir, sem
fangar hafa smíðað og liggur nú
fyrir að koma þeim á markaðinn
Það er mikil eftirspurn eftir
hjálp Verndar. Félagið sinnir
hvers konar hjálp til þeirra
manna, sem hlotið hala dóm, og
einnig fjölskyldum þcirra, og
á vistheimilinu á Stýrimanna-
stíg dveljast menn, sem ýmist
eiga eftir að taka út fangelsis
dóm eða eru nýlega komnir úr
fangelsi. Heimilið rúmar með
góðu móti níu manns, en þar
er oftast 14-15 manns. Svo mikil
er þörfin.
Nú stendur fyrir dyrum söfn
un í jólagjafir. Vernd gefur
öllum islenzkum föngurn jóla-
gjafir og einnig ýmsum aðstand
endum manna, sem hlotið hafa
fangelsisdóma. Er hvers kyns
gjafir í því skyni vel þegnar.
twwmwwwwwMwtMwwwwwMiWMMwwwHMMiiwmmwtmmimtmimi
aMDÖD
43. árg. — Miðvikudagur 5. desember 1962 - 269. tbl.
Alþingi ræbir
ráðstafanir
gegn geislum
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um
öryggisráðstafanir gegn jónandi
geislum. fá geislavirkum efnum eða
geislatækjum var til 2. umræðu í
neðri deild alþingis í gær.
Heilbrigðis- og félagsmálanefnd
deildarinnar hfaði fjallað um frum
varpið og orðið sammála um að
mæla með samþykkt þess með lítils
háttar breytingu. Gerði Guðlaugur
Gí.slason framsögumaður nefndar-
innar grein íyrir áliti nefndarinnar
FumvarpiS er flutt eamkvæmt
bciðni Kjarnfræðinefndar íslands.
Þykir orðið svo mikið um notkun
röntgentækja lækna tannlækna og
á öðrum sviðum svo sem í málm-
iðnaði, að hættan á misnotkun hafi
stóraukizt. Gerir frumvarpið ráð
fyi’ir, að bannað verði að farmleiða
flytja til landsins eða láta af hendi
geislavirk efni nema fengizt hafi
til þess lcyfi ráðherra.
Blanda flæddi
yfir þjóðveginn
Á mánudag flæddi Blanda yfir
þjóðveginn hjá Æsustöðum í Langa
dal og varð vegurinn ófær öllurn
bifreiðum vegna vatnselgs og jaka
hröngls. í gærdag hafði flóðið tölu
vert sjatnað og var þá hafizt handa
um að ryðja íshröngli af veginum.
Þegar Blanda flæddi yfir veginn
hjá Æsustöðum, var leysing og
ÞRJÚ SLYS Á FIMM TfMUM
Á STUTTUM tíma í gærmorg-
un. eða frá klukkan 7 til klukkan
II, urðu þrjú slys í Reykjavík.
WMtMMMtMWMWMMWWW
Fundur
i kjor-
dæma-
ráði
Fundur verður haldinn í
Kjördæmaráði Alþýðuflokks
ins í Reykjaneskjördæmi,
laugardaginn 8. desember,
kl. 2 e.h. í Alþýðuhúsinu
Hafnarfirði.
Þingmenn flokksins í kjör
dæminu mæta á fundinum,
Fulltrúar eru hvattir til að
mæta vel og stundvíslcga.
mmmmmmmmmwwmmmmm
Tvö þeirra urðu í umferðinni og
eitt um borð í Tungufossi.
Fyrsta slysið varð um kl. 7 í
gærmorgun um borð í Tungufossi.
Sjúki-abifreið sótti þangað mann,
sem hafði hlotið mikið sár á and-
liti. Ekki var kunnugt með hvaða
hætti maðurinn hefði meiðst, en
talið, að lionum hafi orðið fóta-
skortur og haim fallið svo illa á
andlitið. Hann var fluttur á Slysa-
varðstofuna, þar sem gert var að
meiðslum hans.
Annað slysið varð um klukkan
8. Þá var ekið á fullorðin mann í
Borgartúni á móts við Höfðaborg,
(Varð hann þar fyrjr bifhjóli og
kastaðist f götuna. Maöur þessl.
Slökkvibifreiðin
óhreyfö í 3 mánuöi
FYRIR um það bil þrem mánuð-
um kom hingað til lands ný slökkvi
bifreið. Síðan hefur hún staðið á
geymslusvæði Eimskipafélagsins
við Borgartún, og enn hefur ekk-
ert verið gert, sem bent gæti til
þess að viðkomandi yfirvöld ætli
sér að leysa hana út.
Bifreið þessi mun hafa kostað
nær milljón, en nú virðist vanta
peninga til að greiða af henni inn-
flutningsgjöld og flutningskostnað
Bifreiðin er með háþrýstidælum
og mjög góðum stigum, og er mun
fullkomnari en þær slökkvibif-
reiðar, sem Slökkvilið Reykjavík-
ur hefur nú yfir að ráða.
Frh. á 5. síðu.
sem heitir Ámi Guðmundsson,
Rauðarárstíg 9, var fluttur á slysa
varðstofuna, en síðan á Landa-
kotsspítala. Honum mun hafa lið-
ið eftir atvikum í gærkvöldi.
Þriðja slysið varð rétt fyrir kl.
11 á mótum Laugarnesvegar og
Sundlaugavegar. Þar varð lítil
telpa, Gunnhildur Hálfdánardótt-
ir, Hrísateig 17, fyrir bifreið. Mun
hún hafa hlaupið skyndilega út á
götuna og á bifreið, sem þarna átti
leið um. Mun hún hafa hlotið ein-
hver meiðsli.
kom því talsverður ruöningur úr
Svartá og við það mynduðust nokkr.
ar stíflur á eyrunum úti í Langa
dalnum.
Utan við Æsustaði hagar svo til
að vegurinn liggur eftir lágum eýr
um, sem eru litlu hærri en yfir-
borð vatnsins í ánni. Þegar flóð er
og jakaburður á veturm, hefur það
kömið tvisvar til þrisvar sinnum
fyrir á ári að undanfömu að áin
hefur flætt yfir eyrina, þar sem
vegurinn er lægstur.
í gær hafði flóðið sjatnað að
miklum mun og var tekið til við
að reyna að gera veginn færan að
nýju. Meðan ófært er þama fava
bílar um efri Blöndubrú og Ása.
Frost er nú að hverfa með öllu
úr vegum í byggð og hefur það í
för með sér að víða hefur myndazt
slæm hvörf í veginn, sérstaklega
mun vera brögð að þessu á leið
inni inn í Iívalfjörð og á Krýsu-
víkurvegi.
Stofnuð deild
Norræna félagsins
Haldinn verður í Gagnfr.sk. Kópa
vogs í kvold stofnfundur að
félagsdeild Norræna félagsins í
Kópavogi. Fundurinn hefst kl.
20,30. Magnús Gíslason námsstjóri
framkvæmdastjóri Norræna fé-
lagsins heldur erindi á fundinum
og sýnir litkvikmynd frá Nor-
egi. Allir em velkomnir á fundinn.
Danskt sjúkra-
hús í Kongó
Kaupmannahöfn, 4. des.
(NTB-RB).
Ríkisstjórn Danmerkur hefur
ákveðið að snúa sér til Thant, að-
alforstjóra Samcinuðu þjóðanna
vegna ákvörðunar um að byggja
danskt sjúkrahús í Kongó, sagði
Jens Ottó Krag í dag. Kostnaður
af framkvæmd þessari verður bor
inn af Rauða Krossi Danmerkur
og aðstoð Dana við vanþróuð lönd.
Forsætisráðlicrrann kvaðst búast
við, að ákvörðun þessi yrði stað«
fest mcð lagasctningu.