Alþýðublaðið - 03.01.1963, Blaðsíða 13
FLUTTUM ÚT
VerSmaeti útflutnings okkar nam
í lok nóvember sl. 3,2 milljörðum
króna fyrir þá 11 mánuði ársins
■ 19G2, sem þá voru liðnir. Útflutn-
ingsverðmætið í desember nemur
sjálfsagt a.m.k. 400 milljónum þann
ifiT, að alls mununi við hafa flutt
út vörur fyrir rúmlega 3Vj milljarð
allt árið 1962.
Samkvæmt bráðabirgðayfirliti
Hagstofu íslands nam heilarinn-
flutningurinn til nóvemberloka sl.
GAMLA BIO: Prófessorinn er við-
utan. Ameríslt með Fred Mac .Mur-
ray og Nancy Olson.
Prófessorinn (Fred Mac Murray)
finnur upp efni, sem er óháð
þyngdarlögmálinu og með hjálp
þess gerir hann alls konar kúnstir,
meðal annars þær, að hann lætur
bíl slnn fljúga. Einstaklingar og
hið opinbera komast í spiliö og
minnstu munar að illa fari fyrir
uppfinningamanninum. — Lokin
verða þó hin beztu.
Þetta er science fiction r.iynd
færð niður á farsa stig.
Með efnið er þó þannig farið og
öll tækni við myndagerðina það
fullkomin, að margur hressiiegur
lilátur er vakinn mitt í allri bann-
settri vitleysunni.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: — Pétur
verður pabbi. Dönsk gamaumynd
með Ghita Nörby, Ebbe Langberg
og Dirch Passer.
Pétur (Ebbe Langbergl verður
fyrir - því að eignast barn með
stúlku í París. Þau elskast, en
móðirin vill þó ekki giftast og ætl-
ar að gefa bamið. Pétur tekur þá
til þess ráðs að stela frumburðin-
um, og lendir við það f kasti við
lögregluna. Vinur hans reynir að
hjálpa, eh gerir aðeins illt verra
(Passer). Lokin verða þau, að þeir
lenda í klóm lögreglunnar, en viö
það opnast nýjar leiðir og allt fer
vel að lokum.
Zebradýrið-j
og vatnið
ÞRAUTIN, sem blaðið birti
síðastliðinn sunnudag, liefur
vakið mikla athygli. Hafa
margir lesendur sezt niður
og bcitt rökvísi sinni til að
finna lausnina: Hverjir af
herrunum fimm drykkju
vatn og settu zebradýrið.
Eins og við skýrðum frá,
er þrautin úr tímaritinu Life
og hefnr það enn ekki birt
lausnina. Hins.vegar cr ein-
sýnt, aö hún er þessi: Norð-
maðurinn drekkur vatn og
Japaninn á zebradýrið. —
Vafalaust er hægt að fara
ýmsar mismunandi lciðir tii
að rökstyðja þetta, en niöur
staðan hlýtur að verða hin
sama.
IWHMMMMMHmWtWHHW!
Ghita Nörby fékk fyrir skömmu
Gösta Ekman verðlaunin fyrir
kvikmyndaleik og er vel að þeim
komin. Hún er afar geðþekk leik-
kona, eins og íslendingum er vel
kunnugt, því að segja má, að hún
gangi eins og rauður þráður gegn-
um allar danskar myndir, sem héi
hafa sést að undanfömu.
Myíidin í Hafnarfjarðarbíó tr
annars glettin og góður hláturvak,,
auk þess að hún ber samevrópsk-
ara yfirbragð en flestar aðrar
danskar myndir. Báðar myndirn-
ar, sem nú eru sýndar í Hafnar-
firði, bera þó eitt danskt ein
kenni. Endirinn er óþarflega
alnubbóttur, það er eins og Danir
taki stundum að geispa undir lok-
in og hraði þá öllum framkvæmd-
um til óþurftar, áður en þeir logn-
ast alveg út af.
BÆJARBÍÓ: Héraðslæknirinn.
Dönsk mynd eftir sögu Cavlings,
sem verið hefur vinsæl hér. Ghita
Nörby, Ebbe Langberg o<fl.
Sögur Cavlings hafa notið mik-
illa vinsælda hér, einkum hjá viss-
um, ónefndum aldursflokki og
kyiii.
Danir vita því ósköp vel, að það
er góð fjárfesting að gera kvik-
myndir eftir sögum hans. Því er
það og, að erfitt er að átta sig á
því, hvað valdið hefur því í gerð
þessarar myndar, að ekki er fylgt
meir söguþræðinum, en gert er.
Það eru ekki hema örfá atriði
myndarinnar, sem minna verulega
á fyrirmyndina— bókina.
Nýr læknir kemur í þorp eltt,
kaupir praxis gamals læknis þar
og á eftir það i höggi við hinin
lækni þorpsins, sem er óvandur að
meðulum. Auk þess á hann í
höggi við ásæknar ungmeyjar —
þrjár alls, að ógleymdum slaður-
skjóðum þorpsins.
Vandamálin leysast þó flest af
sjálfu sér. Hann verður vinsæll
læknir, ein stúlkan verður afhuga
honum. Hinar tvær láta sig þó
ekki, ein eiga ólíka aðstöðu. til
sóknar. Loks vinnur þó sú, sem
verri aðstöðuna hefur og hin sætt-
ir sig við orðinn hlut.
í myndinni koma fram ágætir
leikarar, eins og Johannes Mayer
og Helge Kjærluff -Schmidt, auk
fegurðardísamia, Malene Sch-
warts og Hanne Borchenius.
Margt er vél gert í mýndinni og
betur, en maður á að venjast, en
sem heild er myndin ekki gerð af
nógri alúð, of tætt og endirinn allt
of afsleppur, eins og fyrr er sagt.
H. E.
árs 3.310.064 kr, en heildarútflutn-
ingurinn 3.225.009 kr.. Á þessu
tímabili er vöruskiptajöfnuðurinn
því óhagstæður um 85 millj. kr.
í nóvember sl. fluttum við út fjnir
322.4 millj. en inn fyrir 323 millj.
í desember 1961 fluttum við út
fyrir 399.9 millj. og má telja víst
að útflutningsverðmæti fyrir des-
ember 1962 verði ekki undir þeirri
upphæð.
Stærsti liðurinn í útflutningi okk
ar er eins og áður freðfiskurinn. í
lok nóvember sl. nam útflutningur
frystra fiskflaka 47.748 tonnum að
verðmæti 839.1 millj. kr. Til sam
anburðar má geta þess að á sama
tímabili 1961 nam útflutningur
frystra fiskflaka 36.874 tonnum
fyrir 577.4 millj. kr. En allt árið
1961 nam útflutningur freðfisks
44.598 tonnum, að verðmæti 694
millj. kr. Freðfiskútflutningurinn
var því í lok nóvember sl. orðinn
meiri en allt árið 1961.
Aðrir stórir útflutningsliðir á sl.
ári eru þessir (í lok nóv.):
Skreið 10.019 tonn fyrir 262.9
millj., saltsíild, venjuleg, 21.241
tonn fyrir 199.2 millj., saltsfld, sér-
verkuð, 16.716 tonn fyrir 175.5
millj., síldarlýsi 45.097 tonn fyrir
193.4 millj., síldarmjöl 43.286
tonn fyrir 281.4 millj.
utafé E.l
tífaldast
Aukafundur h.f. Eimskipafélags
íslands var lialdinn Iaugardaginn
29. des. 1962.
Fyrir fundinum lágu tillögur
frá félagsstjórninni, sem allar voru
samþykktar af fundinum.
í fyrsta lagi voru tillögur til
breytinga á samþykktum félagsins.
Samkvæmt þeim tillögum verða
einkum þær breytingar á sam-
þykktunum að hlutafé félagsins
'ífaldast, verður kr. 16.807.500. —
og að félagsstjórn getur ákveðið
að félagið takist á hendur at-
vinnurekstur eða þátttöku í at-
vinnurekstri, sem félagsstjóm tel
ur, að yrði til að tryggja afkomu
félagsins.
t öðru lagi var tillaga um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa í samræmi við
hækkun hlutafjársins, þannig að
í stað núgildandi hlutabréfa fá hlut
hafar afhent ný hlutabréf með tí-
földu verðgildi gömlu bréfanna
Eru jöfnunarhlutabréf þessi gefi
út samkvæmt heimild f lögum nr
70 28. apríl 1962 um tekju- og eigna
skatt.
í þriðja lagi var tillaga um heim
ild fyrir félagsstjórnina til aukn-
ingar sklpastólsins, en samkvæm'
þeirri tillögu veitist félagsstjórn-
Gjöf til Ólctfs-
vikurkirkju
Frétt frá Ólafsvík.
VIÐ guðsþjónustu á aðfanga-
dag var tilkynnt, að kirkjunni
hefði borizt að gjöf ljósprentuð
Guðbrandsbiblía til minningar um
Guðmund Óskar Ólafsson, f. 22.
október árið 1897, d. 8. marz árið
1955. Gefendur eru Karl Ó. Ósk-
arsson, Guðlaug Magnúsdóttir og
börn.
Á titilblaði stendur skrifað:
Guð blessi byggð og söfnuð.
Ó. Á.
inni heimild til þess að láta smfði
eða kaupa nú eða síðar allt aí
þremur flutningaskipum.
Óttarr Möller forstjóri Eimskipa
félagsins gaf fundinum lýsingu
skipi því, m.s. Ketti Danielsen.
sem hann hefur nýverið undirritað
kaupsamning um, eins og áður
hefur verið sagt frá í fréttum.
Hann gat þess að verð skipsins
væri nálega 13 milljón krónur
sem vissulega mætti' teljast hag-
kvæmt þar sem skipið væri aðeins
3ja ára vandað og hefði verið vel
við haldið.
Þegar nauðsynlegum undirbún-
ingi að útgáfu jöfnunarhlutabréf-
anna er lokið, mun verða nánar til
kynnt um innköllun og afhendingu
hlutabréfanna.
Sex sæmdir *
riddarakrossi v
fáikaorðunnar t
FORSETI ÍSLANDS liefur í dág
að tillögu orðunefndar sæmt eftir-
farandi menn riddarakrossi liinn-
ar íslenzku fálkaorðu:
Árna J. Johnsen, Vestmannaeyjum,
fyrir björgunarstörf og braut-
ryðjandastarf í garðrækt.
Friðrik A. Friðriksson, fyrrv. pró-
fast, Húsavík, fyrir embættis-; og
félagsstörf.
Hafstein Bergþórsson, fram-
kvæmdastjóra, Reykjavík, fyrir
störf að sjávarútvegstnálum.
Hermann Jónasson, lireppstjóra,
Yzta-Móa, Fljótum i Skagafjarð-
arsýslu, fyrir búnaðar- og fé-
lagsstörf.
Jóhann Hafstein, bankastjóra,
Reykjavík, fyrir embættisstörf.
Sigurð Þórðarson, óðalsbónda,
Laugabóli, Nauteyrarhreppi, N,-
ísafjarðarsýslu, fyrir búnaðar-
störf.
Reykjavílc, 1. janúar 1963.
(Orðuritari). 1'%
Fóru 5 ferðir
til Akureyrar
MJÖG mikið var að gera við
innanlandsflug hjá Flugfélagi ís-
lands í gær. Voru m. a. farnar
fimm ferðir til Akureýrar, þrjár
með Viscountvél og tvær með Da-
kotavélum. Mikill fjöldi af náms-
fólki er nú að koma til bæjarins
eftir fríin yfir hátíðarnar, og eins
fólk, sem hefur verið í heimsókn-
um hjá vinum og ættingjum.
Á gamlaársdag var flogið fram
eftir degi, en ekkert á nýársdag.
í gær var mjög gott flugveður og
fært til allra staða. Var ein ferð
farin til ísafjarðar með Viscount-
vél, fimm ferðir til Akureyrar, 2
til Vestmannaeyja og ein til Sauð-
árkróks. Gekk flugið mjög vel, og í
gærkvöldi var búið að sinna mestu
af þeim farbeiðnum, sem lágu
fyrir.
Gjöí til
Hraínisiu
GÍSLI J. JOHNSEN stórkaup-
maður hefur afhent Hrafnistu D.
A. S. kr. 5000,00 að gjöf frá for-
stjóra A. B. Jönköbing Motorfab-
rik, en það hefur verið venja fyrir
tækisins að gera þetta árlega und-
anfarin ár um jólaleytið. Samkv.
meðfylgjandi bréfi er fylgdi gjöf-
inni, ber fyrirtækið fram þá ósk,
að með þessari gjöf og áframhald-
andi gjöfum verði myndaður her-
bergissjóður — þannig, að eitt
herbergi í heimillnu verði látið
bera nafn þessa sænska vélsölu-
firma, er á margan hátt hefur
sýnt þessum samtökum sjómanna
velvilja, og er þess jafnframt ósk-
að, að forgangsvist að herberginu
fái að öllu jöfnu, mótorvélstjórar
er unnið hafa við June Munktell
vélar, en þær eru margar hér í
notkun eins og kunnugt er, og
munu flestir mótorvélstjórar ein-
hvern tíma hafa unnið við þá teg-
und véla.
Ekkert Grænlandsflug hefur
verið hjá F. í. yfir hátíðirnar.
Tímarit
TÍMARITIÐ Sveitastjómarmál,
5. hefti er komið út. í því er m. a.
grein, sem Sigvaldi Hjálmarsson,
fréttastjóri, skrifar um Grunna-
víkurhrepp í Strandasýslu, sem
lagzt hefur í eyði á þessu ári. —
Páll Líndal, skrifstofustjóri skrif-
ar greinina „í höfuðborg Evrópu'1
og Jón Pálsson kennari skrifar Um
unga fólkið og tómstundastörfin.
Þá eru í héftinu frásagnir um
nýja skipan í framkvæmd skatta-
mála, um sameiginlega innheimtú
oplnberra gjalda, af fulltrúafundi
kaupstaðanna á Vestur-, Norður-
og Austurlandi, birt reglugerð um
kjarasamninga starfsmanna sveit-
arfélaga og kynntlr eru nýir bæj-
arstjórar í fjórum kaupstöðum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. janúar 1963 |,3