Alþýðublaðið - 13.01.1963, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 13.01.1963, Qupperneq 8
é ER LIFANDI SAM FÉLAG EN DAUTT GUÐSHUS FYRIR þremur árum, var að ráði biskups, samþykkt á alþingi, að stofna skyldi nýtt embætti undir umsjá biskups, er bæri heitið æskulýðsfulltrúi þjóð- kirkjunnar. Til þessa starfs var valinn séra Ólafur Skúlason, enda hafði hann þegar hafið störf í þágu æskulýðsmála innan kirkj- unnar, áður en bókstafurinn var gerður að lögum á þingi. Enn í dag er séra Ólafur æsku lýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, og þar sem hann hefur bezta yfir- sýn yfir það, sem kirkjan er að gera og ætlar að framkvæma í málefnum æskulýðsins í landinu, þótti okkur auðráðið að leita til hans með nokkrar spurningar því að lútandi. — Hvert er hlutverk æskulýðs- fulltrúi í aðalatriðum, séra ÓI- afur? — Hlutverk mitt er að mestu leyti fólgið í að örva samstarf og auka skilning unga fólksins á hinni kristnu kirkju. Einnig að tengja æskuna kirkjunni nánari böndum, með því meðal annars að auka hlutdeild hennar í lífi hvers ungmennis. Eg er fulltrúi íslenzku þjóðkirkjunnar út á við, gagnvart svipuðum deildum inn- an kirkjusamfélaga annarra landa. Ferðalög eru nokkuð ríkur þáttur í starfi mínu, ég ferðast á milli presta og ræði við þá og helztu áhugamenn hvers staðar um nánari tengsl kirkju og ung- menna og skipulegg ásamt þeirn hvernig slíkt muni bezt gert. Á sl. þrem árum fór ég t. d. næstum alveg í kringum landið á ferðum mínum. Hvað snertir dreifingu og gæzlu hjálpargagna við þetta starf kirkjunnar, þá er það í mín- um höndum, ég hefi myndir, bæk- ur og bæklinga, sem notaðir eru. Starfið heyrir að sjálfsögðu beint undir biskup. Séra Ólafur Skúlason. — Telur þú séra Ólafur, að starfið hafi borið mikinn ávöxt? — Jú, það held ég að segja megi, því a, það eru margir, sem 1 hafa lagt hönd í bagga í hjálpar- skyni. Eg hef alls staðar fengið | góðar móttökuh, hvergi vtarið sýnt tómlæti, og flestir hafa ósk- i að eftir því að ég kæmi aftur, þar I sem ég hef farið um skóla, eða ! aðrar svipaðar stofnanir. Eg hef j fundið á þessum þrem árum, sem ég hef starfað sem æskulýðsfull- trúi, hve áhugi manna á meðal hefur aukizt á æskulýðsstarfsemi kirkjunnar. Það er vegna þess að hennar er brýn nauðsyn. Kirkjan hefur alltaf verið sein að semja sig að nýjum siðum, og hún tapaði mjög því hlutverki, sem hún hafði að gegna á árunum um og fyrir aldamót, þegar iðn- væðingin kom, og rót á manns- hugina, sem höfðu legið í ró um aldir. í gamla daga fóru allir til kirkju, vegna guðrækni, og eins vegna þess. að annað var ekki að fara í þá daga til að sýna sig og sjá aðra. En tímarnir breytt- ust og mannfólkið með, en kirkj- an stóð nokkuð í stað. Það er fyrst nú á þessum árum, sem kirkjan er að byrja að vinna aft- ur þau ítök, sem hún átti í hugum alls þorra almennings. Og vegna þess, að nú er æskan frjálsari og sjálfstæðari -en fyr- ir sextíu árum, þá er bezt að leita til hennar og hjálpa henni til að skilja á ný, hvað kirkjan á fyrst og fremst að vera. Kirkj- an á fyrst og fremst að vera lif- andi samfélag, en ekki dautt tákn, sem menn minnast aðeins einu sinni í viku. Nei, kirkjan er meira og á að vera meira. Þess vegna er sú stefna rétt, að byggja guðshús, sem eru til þess gerð, að þau geti komið að notum alla daga vikunnar, en ekki aðeins hluta úr einum. Ýmis konar heil- brigð félagsstarfsemi og kennsla getur orðið ívaf trúarinnar, og þá um leið nær hún til unglinganna og fólksins. Hin nútíma kirkja kemur til móts við fólkið, hún starfar með- al þess og þannig verður trúin eign fólksins. | Að v'su eigum við mikið starf fvrir höndum, en í vissu þess, að kirkian megi verða meðal allra bá getur okkur ekki vaxið það { augum. Nú hafa margir prestar 1 tekið þessa stefnu, og hafa nokkr- ir þeirra þegar komið upp méð frábærum dugnaði kirkjurækn- um söfnuðum og öflugu félagslífi innan þeirra. Þessir pre^tar koma á móts við fólkið og árangur þeirra verður bezta kirkjusókn á landinu. Kjarni trúarinnar er ávallt hinn sami, en með breyttum tím- um hlýtur hún að laga sig eftir aðstæðum, því aðeins þannig er hún lifandi samfélag. Eitt er það mál, sem kirkjan mun á næstunni beita sér fyrir, og gerir sér fyllilega ljóst hve þarflegt er. Það er að hjálpa ung- um hjónum til að ala upp böm þeirra á góðan og kristilegan hátt, og kenna þeim hvernig svara beri fyrstu spurningum þeirra, þegar þar að kemur. Með því að lána ungum hjónum bæk- ur til aflestrar um þessi efni má koma miklu til leiðar, og svo hefur einnig komið til mála, að stofna hjónaklúbba ungra hjóna, þar sem nokkur hjón myndu koma saman tvisvar þrisvar í mánuði og rætt yrði um barna- uppeldi og ýmsar leiðbeiningar gefnar í þeim efnum. Þetta mundi koma sér vel. Þegar mæður fara af fæðingardeildum fá þær lít- inn pésa um hvemig skuli fæða hið unga barn. En í þeim pésa er aðeins rætt um hina líkamlegu fæðu. Við viljum gjarna bæta við öðram pésa þar sem yrði rætt um hina andlegu fæðu, og hún er uppvaxandi manni ekki síður nauðsynleg, — Menn eru sífellt að tönnl- ast á því, hve æskan nú til dags sé óvönduð og ósiðprúðari en áð- ur gerðist; henni sé að fara aft- ur. Hvað telur þú hæft í þessu? — Unga fólkið í dag er að vísu frjálslegra en áður tíðkaðist, en ég veit, að það er þeim ekki til skaða. Breytingin er í því fólgin, að tækifærin, sem æskunni bjóð- ast eru svo miklu fleiri nú en fyrr. Eg er þess viss, að æskan getur lært að nýta þessi tækifæri á réttan hátt, og það á einmitt að vera verkefni kirkjunnar að stuðla að því, að hún geri það. — En hefur ekki eitthvað nei- kvætt komið í ljós í starfi þinu sem æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunn — Jú, vissulega. Þess eru nokk ur dæmi. Nú fyrir nokkru lagði ég litla spurningu fyrir rúmlega 100 börn í einum skóla hér í bæn um. Eg spurði hve mörg þeirra hefðu farið í kirkju yfir hátiðirn- ar. Útkoman varð sú, að aðeins 35% barnanna höfðu farið til kirkju um jólin. Þau höfðu ýms- ar afsakanir: það var of þröngt í kirkjunum, fór svo seint að sofa kvöldið áður, áttaði mig ekki á því fyrr en hátíðin var liðin og allar messur um garð gengnar, fékk svo margar jóla- gjafir, að ég varð að sinna þeim o.s. frv.! En, nota bene, í þessi rilfelli er sökin að miklu leyti hjá foreldrunum. Hvernig foreldrar eru það, sem ekki fara með böm sín til kirkju, svo að þau geti hlýtt á fagnaðarboðskapinn? Enda kom það í ljós við nánari eftir- grennslan, að foreldrar þessarra bama höfðu engin farið sjálf til kirkju á jólunum! 65 fjölskyldur af hundraði fóru ekki til kirkju á jólahátíðinni. Þetta er hryggi- leg tala og færi betur að hún væri ekki sönn. — Og börnin báru því við, að það væri of þröngt í kirkjunum? — Já, það gerðu þau. Nú er það staðreynd, að kirkjusókn var ágæt eftir því sem gerizt hér á íslandi um þessi jól, meira að segja ó- vanalega mikil. Allar kirkjur voru troðfullar en samt sátu svo margir heima. Þetta getur ekki annað en þýtt það, að það vantar enn fleiri kirkjur í Reykjavík, fleiri samkomustaði fyrir kristið fólk. Það er sárt til þess að vita, að kirkjur skuli ekki reistar í útS- hverfunum um leið og þau byggj- ast. Þá, ef svo væri, yrði hægt að starfrækja söfnuð frá grunni. kyrra rótið í hugum fólksins og bókstaflega venja það á að sækja kirkjur. Fyrir ekki löngu síðan ferðað- ist ég um Suðurnes og lagði þá ýmsar spurningar fyrir nemend- ur í gagnfræðaskólum þar. Með- al þeirra spuminga sem ég spurði, var þessi: Hvers vegna sækir þú ekki kirkjur? Svörin voru ákaflega misjöfn. Sumum þykir skemmtilegra að fara eitt- hvað annað. sumir nenna ekki að fara svo snemma á fætur á sunnu dagsmorenum. hafa verið að skemmta sér kvöldið áður, og svo eru bað beir briðiu, sem segjast ekki fara til kirkju, vegna þess að það sé svo langt síðan þeir hafi farið. beir kunni hálfpartinn ekki við að vera að byrja á því aftur. Nóg að fara bara einu sinni á ári. Það er táknræn dæmisagan, sem sára .Takob sagði eitt sinn um kirkiugöngu: í gamla daga fóru menn einu sinni í bað á ári, o" bað var iafnan heilmikið fyr- irtæki. Nú fara flestir oft í bað og þvkir ómöcnilegt að sleppa úr. Eins er bað með kirkjusóknina. Það er heilmikið fyrirtæki, að fara til kirkiu einu sinni á ári, en — ef bú ferð oftar, þá muntu sjá, að bað er ómissandi og þér sem hélzt big trúlítinn mann, mun þvkia fyrir því er fellur ntð- ur! Braudur. RÆTT VIÐ ÆSKULÝÐS- FULLTRÚA KIRKJUNNAR 8 13. jan. 1963 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.