Alþýðublaðið - 05.02.1963, Blaðsíða 1
(
Við viljum vekja athygli á því miili sviga, að næsti HAB-dagur er á
daginn kemur, sem er 7. febrúar. Aðalumboðið er á Hverfisgötu 4 —
Sími 17459 — SJÁ NÆSTA SVIGA
fimmtu- ^
)
(HAB-vinningurinn næsta
fimmtudag er Taunus
12 M., CARDINAL
Féll af hest-
baki, liggur
þungt haldin
ÞAÐ slys varð í Hverag'crði á
laugardagskvöldið, að þýzk hjúkr-
unarkona við Heilsuhaeli Náttúru-
lækningafélagsins féll af hestbaki
og slasaðist mikið. Hún var flutt
til uppskurðar á Landakotsspítala
í Reykjavík og er enn ekki vitað,
hvort hún lifir þetta af. Hún var
ekki komin til meðvitnndar í gær.
Slysið vildi til með þeim hætti,
að hjúkrunarkonan, sem er 38 ára
og heitir Rosemarie Kunze, var á
ferð með hálfsystur sinni, sem er
nuddkona á heilsuhælinu. Þter
höfðu verið á útreiðatúr systumar
og voru nú á heimlelð. Þá skildi
með þeim og ætlaði Rosemarie að
fara heim með annan hestinn, en
systir hennar bað hana lengstra
orða, að fara ekkl á bak hestin-
um, því að hann var hvumpinn.
Systirin vissi svo ekki fyrr til, en
hún sér að hesturinn kemur gang-
andi utan úr myrkrinu. Fór hún
Framh. á 14. síðu
■■
SOKK
LÓÐSBÁTURINN Jötunn sökk
í fyrrinótt, þar sem han lá f
vari við togarann Þormóð goða
við togarabryggjuna. Ekki er
vitað með hvaða hætti bátur-
inn sökk, en í gærmorgun, er
hafnsögumenn ætluðu að sækja
hann, sást hann hvergi. Var þá
strax gert ráð fyrir, að hann
hefði sokkið, og ráðstafanir
gerðar til að ná honum upp.
Var kafari fenginn og dráttar-
báturinn Magni. Tókst-fljótlega
að ná Jötni upp, og var hann '
fluttur í Slippinn. Myndin er
tekin í gær í þann mund, að
báturinn kemur upp á yfirborð-
ið, en sterkar dælur voru not-
aðar tU að tæma hann af sjó.
M Ó Ð IR 1N heít-
ir Irene Barrie og
er 32 ára gömul
leikkona, brezk. Cn
það er ekki aðal-
atriðið. Ef þið eruð
eins þenkjaudi og
liún, stendur ykk-
ur rétt á sama hvað
stúlkan heitir, hvað
hún er og hvaðan
hún kemur. Aðal-
atriðið að okkar
dómi er þetta: —
Gæfan lýsir úr aug
um móðurinnar,
sem á þessn augna
bliki er tveimur
sonum rikari en
hún var fyrir f jór-
um stundum.
Hrapaði og
beið bana
Höfn f Homafirði í gær.
ÞAB slys varð hér í gær, að flug-
Iiði úr bandaríska hernum, sem hef
ur bækistöðvar hér úti á Stokks-
nesi, hrapaði á göngu í Litla-Horni
og léat áður en hjálp barst.
Ekki er talið, að hann hafi meiðzt
mikið, er hann hrapaði, en heljar-
kuldi var og hafði hann kvartað
um kulda fyrr á göngunni. Honum
skrikaði svo fótur í fjallinu og
hrapaði nokkra leið niðúr,
en félagi hans, sem með
honum var, reyndi að koma hon-
um til hjálpar. Þegar læknir kom
á staðinn var hann látinn, og er
talið, að hann hafi fyrst og fremst
króknað af kulda.
Mikið frost var og rok þar eystra
þennan dag og éljagangur öðru
hvoru.
í gær tók jeppa upp af Lónsveg-
inum í rokinu. Jeppínn fauk út af i
veginum og hvolfdi þar. Stúlka,
sem var í bílnum, meiddist nokk-
uð, en aðra sakaði ekki. — K. I.
LANDLECA
ENGIN síldvciði var í gær.
Síldarbátarnir liggja flcstir í
vari undan Dyrhólaey, eu
nokkrir eru komnir til Vest-
mannaeyja og liggja þar í
höfninni. Ekki gaf á sjó fyrir
línubáta, og reri eng.nn í
gær. Eínn togari er í Vest-
mannaeyjum, Neptúnus, og
lestar hann síld fyrir Þýzka-
landsmarkað. í gæ.íniorgun
var ofsarok í Vestmannaeyj-
um, komst vindhraðinn upp í
12 vindstig. Engar sken mdir
urðu þó né skakkaföll.