Alþýðublaðið - 05.02.1963, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.02.1963, Blaðsíða 5
Dagskrá aíþingis ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 5. febrúar 1963 £> EINAR Olgeirsson byrjaöi eina af langlokum sínum í neðri deild Alþingis síðast- liðinn fimmtudag, og hefur ekki lokið henni enn. í ræð- unni gerði hann framsókn aðallega að umræðuefni, eins og frá hefur verið skýrl. áður. Hann sleppti þó ekki venjuiegu oflofi um sinn eig- in flokk. Að þessu sinni hélt hann fram, að kommúnist- ar kynnu að berjast fyrir málstað launafólks jafnt í stjóm sem stjórnarandstöðu. Þetta er djarflega mælt, þar sem allir muna afstöðu kommúnista í tíð vinstri stjómarinnar. Þá var fyrsta verk Hannibals sem ráðherra að gefa út bráðabirgðalög um festingu kaupgjalds, og hafa kommunistar yfirleitt ekki talið slíkt valdboð bar- áttu fyrir launafólki. Þegar þeir sjálfir eiga í hlut, er þó annað uppi á tcningunum. Á Alþingi tóku kommúnistar að sér vörn þessa vaidboðs og töldu jafnvel, að lögbind- ing kaupgjalds væri beinlín- is kjarabót! * Ekki reyndist þetta nóg. Vinstri stjórnin varð eins og aðrar ríkisstjórnir að mæta erfiðleikum efnahagsherfis- ins, og kom í ljós, að ráða- menn hennar kunnu engar nýjar leiðir tii að ráða nið- urlögum þeirra vandamála. Þá datt út úr Hannibal þessi fræga setning: „Er þá ekkert tii.jiema gömlu íhaldsúrræð- in?" Það var gripið til hinna gömlu íhaidsúrræða — með samþykkt og stuðningi kom- múnista. Tollar og gjöld hækkuðu og þjóðin sökk dýpra og dýpra í uppbóta- fenið. Með ráðstöfunum vor ið 1958, sem kommúnistar samþykktu á Alþingi, var sett á yfirfærslugjald, en það var lélegasta dulargervi gengislækkunar, sem upp hefur verið fundíð. Það er víst að berjast fyrir launa- fólk, þegar kommúnistar lækka gengið, eins og þeir gerðu þá ! Verkalýðsfélögin og sjúkrasjóðirnir: Heimilt að taka reiðslur vinnu- veitenda löstaki? B A R A T T A verkalýðsfélaganna hefur á síðari árum verið tví- þætt. Annars vegar hefur verið um að ræða baráttu fyrir hækkuð- um launum en hins vegar baráttu fyrir framgangi ýmissa hags- munamála sem einnig hafa falið í sér miklar kjarabætur. Eitthvað á þessa leið fórust Benedikt Gröndal orð, er hann mælti fyrir frumvarpi um heimild til þess að lögin hefðu samið um á síðustu árum væri framlag frá atvinnurekendum í sjúkra- og styrktarsjóði sína. Inn- heimta á framlögunuro í þessa sjóði hefur gengið misjafnlega og til þess að auðvelda verkalýðsfé-deilum og góða sambúð vinnusala lögunum innheimtuna kvaðst Benedikt hafa flutt frumvarpið á samt þeim Sigurði Ingimundar- syni og Birgi Finnssyni. í greinargerð með frumvarp- inu segir svo: „Undanfarin ár hafa mörg verka lýðsfélög gert samninga við at- vinnurekendur um greiðslur í sjúkra- og styrktarsjóði félaganna. Hafa slíkar greiðslur, sem aðrar félagslegar ráðstafanir haft vax andi þýðingu fyrir lausn á vinnu-1 greiðslu. og vinnukaupenda. Nú hafa kom- ið í'ljós erfiðleikar á innheimtu þessara greiðslna og er þetta frumvarp flutt til þess að greiða úr þeim vanda. Hafa nokkrir for- ráðamenn verkalýðsfélaga farið fram á, að frumvarpið verði flutt á Alþingi. Þar eð samþykkt frum- varpsins mundi tvímælalaust stuðla að auknum vinnufriði í landinu vonast flutningsmenn til þess að það fái vinsamlega af- Sildorskýrslan SKÝRSLA um síldveiðarnar sunn- anlands ög austan. Ógæftir höml- uðu síldveiðum tvær síðastliðnar vikur og má heita, að veiðiveður væri aðeins í fjóra til fimm daga. Þessa daga bárust á land 56 þús. 839 uppmældar tunnur, og er heild araflinn þá orðinn 1.164.554 upp- mældar tunnur, en var á sama tíma í fyrra 880.890 tunnur. — Fimrn hæstu veiðistöðvarnar eru: Vest- mannaeyjar 114.956, Keflavík 189.384, Ilafnarfjörður 129.768, Reykjavík 394.168,- — Akranes 177.804. Fjórir hæstu bátar, sem af er, cru þessir: Víðir II 27.050, Ilaralð- ur, Akranesi, 25.261, Hafrún, Bol- ungarvík, 24.683, og Halldór Jóns- son 22.217 tuunur. Rætt um Bakka sel í Öxnadals- hreppi á þingi FRUMVARP Friðjóns Skarphéð- inssonar og Magnúsar Jónssonar um heimild til þess að selja eyði- jörðina Bakkasel í Öxnadals- hreppi var tekið til fyrstu um- ræðu í efri deild alþingis í gær. Friðjón fylgdi frumvarpinu úr hlaði. Hann sagði, að jörðin Bakka sel væri fremsta jörð í Öxnadal og stæði við þjóðveginn. Ríkið hefði jörðina fyrir rík- ið og hefur verið kappkostað að halda henni í byggð og hafa á bænum greiðasölu og gistingu svo og aðra aðstoð við ferðalanga, er yfir heiðina hafa þurft að fara. Sagði Friðjón, að af þessum sök- um hefði verið mjög mikilvægt að halda jÖrðinni í byggð. Friðjón sagði, að ábúendur á Bakkaseli hafi lengst af haft jörð- ina á leigu endurgjaldslaust og jafnvel notið nokkurs styrks. En sl. 2 ár hefðu ekki fengizt neinir ábúendur þrátt fyrir þessi hlunn- indi, enda væri jörðin fjarri mannabyggðum og ekki búsældar- leg. Hins vegar hefði Öxnadals- hreppur haft jörðina á leigu og notað hana sem afréttarland. Tel- ur hreppurinn bezt að hann eign- ist jörðina og hafi til ráðstöfunar á hverjum tíma, en æskilegt að ríkið reki 'þarna sæluhús vegna vetrarferða yfir Öxnadalsheiði. Og er frumvarpið einmitt flutt samkvæmt ósk hreppsins. Er Friðjón hafði lokið máli sínu tók Björn Jónsson (K) til máls. Lagðist hann gegn því, að jörðin yrði seld og taldi bezt að ríkið ætti hana áfram. Gjarnan má minnast þess, að í tíð vinstri stjórnarinn- ar var mikið um verkföll einstakra stétta. Ekki hlupu ráðherrar kommúnista til a'ð hjálpa þeim félögum, heldur mun hitt sönnu nær, að Hannibal hafi oftar en einu sinni verið búinn að láta semja bráðabirgðalög til að leysa deilur sjómanna með valdboði, þótt önnur lausn fengist, áður en liann gat gefið slík lög út. Þannig var barátta kommúnista fyrir launafólki, þegar þeir voru í ríkisstjórn. 37. fundur. DAGSKRÁ efri deildar Alþingis þriðjudagm ý 5. febr. 1963, kl. 1,30 miðdegis Sala eyðijarðarinnar Lltlagero I í Grýtubakkahreppi, frv. /127. mift, Ed./ (þskj. 233). — 1. umr. 35. fundur. DAGSKRÁ neðri deildar Alþingis þriðjudagú. J 5. febr. 1963, kl. 1,30 miðdegh 1. Landsdómur, frv. — 2. umr- 2. Ráðherraábyrgð, frv. 2. umr. 3. Sala Utanverðuness í Rípu * hreppi, frv. — 1. umr. 4. Framleiðsluráð landbúnaðariiiL, frv. — 1. umr: 5. Áætlunarráð ríkisins, frv. - . 1. umr. ÞAÐ hefur verið fremur ró- legt á Alþingi síðustu dag • ana, þ. e. frá því það tók til starfa á ný eftir jólaleyfið og hléið í janúar. Engin stói' mál hafa verið til umræðu. Hins vegar á ríkisstjómin eftir að leggja nokkur stór- mál fyrir þingið og má bú- ast við miklum umræðum, er þau koma fram. Myndin er frá sameinuðu þingi. Á henni sjást allir ráðherrarn- ir, forseti sameinaðs þings og skrifarar þingsins. Taiið frá vinstri: Emil Jónsson, sjávarútvegsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, dóms- málaráðlierra, Ólafur Thors forsætisráðherra, Matthias Mattliiesen, skrifari, FriðjóT Skarphéðinsson forseti, Skúli Guðmundsson, skrifari, Guð- mundur í. Guðmundsson, ut anríkisráðherra, Gylfi Þ Gíslason, viðskiptamálaráð herra, Gunnar Thoroddse fjármálará'ðherra og Ingó ur Jónsson, landbúnaðarrá

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.