Alþýðublaðið - 23.02.1963, Side 14
DAGBÓK laugardagur
Frá Guðspekifélaginu:
Septíma heldur fund í kvöld
kl. 8,30. Gretar Fells svarar
spurningum. Kaffi á eftir.
Föstumessa
á Elliheimilinu Grund kl. 6,30
síðd. Benedikt Jasonarson pré-
dikar.
Félagssamtökin Vernd
halda framhaldsaðalfund að
Stýrimannastíg 9, miðvikudag-
inn 27. febrúar 1963, kl. 9 e. h.
m
Flugfélag íslands
h.f: Hillilanda-
flug: Gullfaxi fer
til Bergen, Osló
og Kaupmannahafnar kl. 10,00
til baka frá Luxemborg kl. 24,0
1 dag. Væntanlegur aftur ti/
Reykjavíkur kl. 16,30 á morgun
Innanlandsflug: í dag er áætl-
'áð að fijúga til Akureyrar (2
'ferðir), Húsavíkur, Egilsstaða,
sVastmannaeyja og ísafjarðar
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar og Vestmanna-
jeyja.
Loftleiðir h.f.:
Eiríkur rauði er væntanlegur
frá New York kl. 06,00. Fer til
Luxemborgar kl. 07,30. Kemur
<%.. til baka frá Luxemborg kl.
24,00. Fer til New York kl.
01,30. — Snorri Sturluson er
væntanlegur frá Hamborg,
Kaupmannahöfn, Gautaborg og
Ösló kl. 23,00. Fer til New York
kl. 00,30.
H.f. Eimskipafélag
íslands: Brúarfoss
fer frá New York
25.2. til Reykjavík
ur. Dettifoss kom til Dublin
21.2. frá New York. Fjallfoss
fór frá Reykjavík 20.2. til Rott-
'Órdam, Kaupmannahafnar o£.
' Gdynia. Goðafoss fer frá Reýkja
vík á morgun til VestmannaeyTa
og þaðan til New York. Gullfoss
-fór frá Leith 21.2. til Reykja-
Víkur. Lagarfoss fer frá Ham-
borg 26.2. til Kristiansand,
'Kaupmannahafnar og Reykja-
víkur. Mánafoss kom til Reykja-
víkur 20.2. frá Hafnarfirði. —
Reykjafoss fór frá Raufarhöfn
21.2. til Akureyrar, Hríseyjar,
Ólafsfjarðar, Siglufjarðar, Vest
fjarða- og Faxaflóahafna. Sel-
foss kom til Reykjavíkur 21.2.
frá New York. Tröllafoss fór
frá Rotterdam 22.2. til Hull,
Leith og Reykjavíkur. Tungu-
foss fór frá Siglufirði 21.2. til
Belfast, Lysekil, Kaupmanna-
hafnar og Gautaborgar.
Skipaútgrerð ríkisins:
Hekla er í Reykjavík. Esja
kom til Borgarfjarðar kl. 14,30
í dag á suðurleið. Herjólfur fer
frá Reykjavík kl. 21,00 í kvöld
til -Vestmannaeyja. Þyrill er í
Reykjavík. Skjaldbreið kom til
Hofsós kl. 9,30 í morgun. Herðu
breið er væntanleg tij Reykja-
víkur kl. 16,00 í dag að austan
úr hringferð.
H.f. Jöklar:
Drangajökull fer- frá Vest-
mannaeyjum í kvöld til Brem-
erhaven, Cuxhaven og Ham-
borgar. Langjökull er á leið til
Reykjavíkur frá Glouster. —
Vatnajökull er í Reykjavík.
Gtlánsdeild:
daga n«
Skipadeild SÍS:
Hvassafell fer frá Limerick í
dag til Rím, Grimsby og Reykja
víkur. Arnarfell er í Middles-
brough. Jökulfell lestar á Norð-
urlandshöfnum. Dísarfell er í
Vestmannaeyjum. Litlafell er í
Reykjavík. Helgafell kemur til
Reykjavíkur í dag frá Odda.
Hamrafell er væntanlegt til
Hafnarfjarðar 28. þ. m. frá
Aruba. Stapafell fór 21. þ. m.
frá Bergen aleiðis til Reykja-
víkur.
Hafskip h.f.:
Laxá fór í gær til Skotlands.
Rangá er væntanleg í dag til
Gautaborgar.
Bæjarbókasafn
Reykjavíkur —
sími 12308 Þing-
holtsstræti 29A.
Opið 2—10 alla
laugardaga 2—7,
sunnudaga 5—7. Lesstofan op-
in frá 10—10 alla daga nema
laugardaga 10—7, sunnudaga
2—7. Útibú Hólmgarði 34, opið
alla daga 5—7 nema laugardaga
og sunnudaga. Útibú við Sól-
heima 27. Opið kl. 16—19 alla
virka daga nema laugardaga. —
Útibú Hofsvallagötu 16, opið
5.30—7.30 aUa daga nema laug-
ardaga og sunnudaga.
Bókasafn Dageorúnar er opið
föstudaga kl. 8- -10 e. h. Laugar
daga kl. 4—7 «*. h. og sunnu-
daga kl. 4—7 e-. h.
Árbæjarsafn er lokað nema fyr-
ir hópferðir tilkynntar áður í
síma 18000.
Ásgrímssafnið, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 13,30—
16,00. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafnið og Listasafn
ríkisins eru opin sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og la ig
ardaga kl. 13,30—16,00.
Minningaspjöld fyrir Heilsuhæl-
issjóð Náttúrulækningafélags
íslands. fást í Hafnarfirði hjá
Jóni Sigurgeirssyni, Hverfis ■
götu j3B. Sími 50433.
KvöId- og
13 Æ k’ f 11V næturvörður
L. R. í dag:
Kvöldvakt
k! 18.00—-00.30. — Á kvöld-
vakt: Björn Júlíusson. Á nætur-
vakt: Ólafur Jónsson.
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni er opin allan sólar-
hringinn. — Næturlæknir kl.
18.00—08.00. — Sími 15030.
Neyðarvaktin sími 11510 hvern
virkan dag nema laugardaga kl.
13.00r-17.00.
Kópavogsapótek er opið alla
Virka daga frá kl. 09.15—08.00,
iaugaidaga frá kl. 09.15—04.00.
Minningarspjöld Kvenfélags Há
teigssóknar eru afgreidd hjá
Ágústu Jóhannsdóttir, Flóka-
götu 35, Áslaugu Sveinsdótt-
ur, Bjarmahlíð 28, Gróu Guð-
jónsdóttur, Stangarholti 8,
Guðrúnu Karlsdóttur, Stiga-
hlíð 4 og Sigríði Benónýsdótt-
ur, Barmahlíð 7.
SAMKOMUR
Hallgrímskirkja:
Bamamessa kl. 10. Séra Jak-
ob Jónsson. Messa kl. 11. Séra
Jakob Jónsson. — Messa og
altarisganga kl. 5. Séra Sigur-
jón t>. Árnason.
Bústaðasókn:
Messa í Réttarholtsskóla kl.
2. — Barnasamkoma í Háagerð-
isskóla kl. 10,30 f. h. Séra Gunn-
ar Árnason.
Fríkirkjan:
Messa kl. 5. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Laugarneskirkja:
Messað kl. 2 e. h. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10,15 . h. — Séra
Garðar Svavarsson.
Háskólakapellan:
Altarisganga kl. 9,30. Sunnu-
dagaskóli fyrlr börn kl. 14,00
(kl. 2 e. h.). Öll börn, 4—12
ára, eru hjartanlega velkomin.
Forstöðumenn.
Sunnudagaskóli
Kirkju Óháðasafnaðarins kl.
10,30 árdegis. Kvikmyndasýn-
ing á eftir, og tekin verður ljós
mynd af börnunum.
Iláteigssókn'-
Bárnasamkoma í Sjómanná-
slcólanum kl. 10,30. Engin messa
kl. 2 vegna starfsfræðsludags-
ins. — Séra Jón Þorvarðarson.
Elliheimilið:
Guðsþjónusta með altaris-
göngu kl. 2. Séra Bragi Friðriks
son annast. (Vinsamlegast at-
hugið breyttan messutíma). —
Heimilispresturinn. v
Aðventkirkjan:
Júlíus Guðmundsson flytur
erindi kl. 5. Kirkjukórinn og
Jón H. Jónsson syngja.
Fríkirkjan í Hafanrfirði:
Messa kl. 2. Séra Kristinn
Stefánsson.
Háatjörn:
Messa kl. 2.
Þorsteinsson.
Séra Garðar
Kvæðamannafélagið Iðunn
heldur fund í Edduhúsinu í
kvöld kl. 8 (laugardag).
Áheit og gjafir til Hallgríms-
kirkju í Reykjavík:
E. S. 50,00; E. K.10,00; N. N.
afhént af frú Guðrúnu.Ryden
300,00; Dúna 25,00; Ó. S. 25,00;
N. N. 101,90; Sjötta gjöf frá
Heddi 100,00; S. J. afh. af frú
Guðrúnu Ryden 1000,00. Sam-
tals kr. 1611,90.
Kærar þakkir,
Féhirðir sóknarnefndar
Hallgrímsprestákalls.
Minningarspjöld Blómasveiga-
sjóðs Þorbjargar Sveinsdóttur
eru seld hjá Áslaugu Ágústs-
dóttur, Lækjargötu 12. b.,
Emiliu Sighvatsdóttur Teiga
gerði 17, Guðfinnu Jónsdótt-
ur, Mýrarholti við Bakkastíg.
Guðrúnu Benediktsdóttur,
Laugarásvegi 49, Guðrúnu Jó-
hannsdóttur, Ásvallag. 24 og
Skóverzlun Lárusar Lúðvíks-
sonar, Bankastræti 5.
BÓKAVERZLUN SIGFÚSAR
EYMUNDSSONAR.
Minningarorð
Framhald af 4. síðu.
húsfrú í Kópavogi og Benjamín,
sem dvelur í sjúkrahúsi. Þá ól
hann upp dótturson sinn Sigur-
björn Hjálmtýsson, búsettann í
Kópavogi og gekk honum í föður-
stað. Um þær mundir, sem Þórð-
ur hóf búskap sinn á Hellissandi
var ekki margra kosta völ í at-
vinnuháttum hjá útnesjamönnum
vestur þar, sem og öðrum lands-
hlutum. Var því sjórinn að;',’vett-
vangur lífsbaráttunnar og árabát-
ar og skútuöldin alls ráðandi,
menn urðu að stunda sjóinn hvort
sem þeim líkaði betur eða verr.
Þórður gerði því sjóinn að lífs-
starfi sínu' og stundaði hann
mestan hluta ævi sinnar. Þótti
hann hinn bezti sjómaður, þjón-
ustuhollur og trúverðugur, sem
voru eiginleikar þeirran kynslóðar,
er hann tilheyrði.
Eftir um 40 ára sambúð eða ár-
ið 1939 missti hann konu sína, og
var það honum mikill harmur, þar
sem börnin voru að heiman farin
og aldurinn farinn að síga á seinni
hlutann. Þórður var kyrrt um
sinn á Hellissandi eftir lát konu
sinnar, þar átti hann sjnar helgustu
stundir lífsins, þar hafði margt á
daganadrifið, skipst á skin og
skúrir, ástvinamissir, aflaleysi og
harðindi, svo sem árið 1918, og oft
þröngt í búi þegar ekki gaf á sjó.
Þannig var það á fyrsta fjórö-
ungi þessarar aldar.
Árið 1943 afréð hann að flytjast
frá Hellissandi, en þar hafði hann
átt heima i rúm 50 ár og var því
erfitt fyrir hann að skilja við
staðinn eftir þetta langa búsetu
bezta liluta ævi sinnar.
Síðan fluttist liann til Hafnar-
fjarðar og var fyrst um sinn sjálf
sín, en síðar um árabil fylgdarmað-
ur tengdadóttur sinnar Karolínu
Þórðardóttur, og sonarbarna sinna,
en þau hjón slitu samvistum. Þórð
ur reyndist tengdadóttur sinni og
sonarbörnum mikil hjálparhélla í
blíðu og stríðu við úfinn sjó á
mannlega vísu, sem oft vill eiga
sér stað við sdmvistarslit, þegar fá
tækt og önnur örbyrgð á sér stað
á velferð fólks, Tengdadóttir og
börn hennar standa í mikilli þakk-
arskuld við Þórð Friðriksson, sem
hlúði að því heimili, eftir því sem
hann gat við komið. Hin síðari ár,
þegar halla tók degi lífsins, dvaldi
hann á heimili dóttur sinnar Ingi-
bjargar, sem var honum mjög kær,
umhyggjusöm og lét honum í té
það sem með þurfti.
Hann mat dóttur sína mikils,
enda veitti hún honum þá aðhlynn
ingu, sem góðum föður hæfði. Öðru
jöfnu dvaldi hann á heimili dótt-
ursonar síns, sem hann ól upp,
og féll þeim mjög vel saman og
var heimili hans mjög kært Þórði.
Á Sigurbjörn góðar og ljúfar minn
ingar um afa sinn, sem hann mun
geyma á spjöldum minninganna
um hann. Þórður Friðriksson var
dagfarsprúður maður, þó glaðsinna
og fór vel með létta kimni, sem
engan meiddi, jafnhliða því, sem
hann hafði útrétta hönd lítilmagn-
afium til hljálpar.
í þjóðmálum var hann einarður
og sannar jafnaðarmaður allt sitt
líf. Ég minnist þess, þegar ég, sem
þessar línur skrifa, var æskumaður
á Hellissandi, að Þórður kom mik-
ið við sögu í verkalýðsmálum stað-
arins. Vildi á allan hátt vinna að
rétti og hagsmunum verkamanna
og sjómanna, að þeirra lífskjör
væru virt og launakjör þeirra við-
urkennd og varð hann að þola eitt
og annað aðkast vegna ákveðinnar
stefnu sinnar, en þó var hann
réttsýnn. Hann þekkti hina lúnu
verkamanns og sjómannshönd, sem
ekki var alltaf virt að verðleikum
hjá yfirstéttum. Hann sá hugsjónir
sigrast og fæðast í tíð Jóns heitins
Baldvinssonar, hins mikla forustu
manns. Þórður lét aldrei á sér
standa á kjörstað, og get ég full-
yrt það, að nú í hárri elli við síð-
ustu- bæjarstjórnarkosningar í
Hafnarfirði, fann hann að því fylgd
a'rmann sinn, sem fór með honum
á kjörstað, að hann hefði átt að
koma strax um morguninn, því
þann sið hefði hann alltaf haft að
ganga snemma til kosninga. Hann
var trúr sinni stefnu í þjöðmálum,
slíka menn á að meta, enda þeirra
gott að geta. Fór hann hina þriðju
ferð til Hellissands og'' var hann
jarðsettur þar við hlið konu sinn-
ar. Nú hefur hann farið sína síð-
ustu siglingu til eilífðar lífsins
stranda. Minning hans lifir.
Guðm. Guðgeirsson,
rakaram., Hafnarfirði.
Góbur afli...
Framh. af 1. síðu
á net fyrr en í miðjum marzmán-
uði, en línubátar þaðan hafa fisk-
að heldur illa sem af er.
Reykjavíkurbátar eru nú sem
óðast að tínast á netaveiðar, og
hafa þeir bátar, sem þegar eru
gerðir út á net,, fiskað ágætlega.
Hannes Hafstein var fyrsti bátur-
inn á netaveiðum gerður út frá
Reykjavílc.
Afli báta þeirra, sem leggja upp
á ísafirði hefur verið nokkuð góð-
ur í febrúar, þrátt fyrir það að
gæftir hafi ekki verið sérlega góð-
ar, og eru nokkrir bátar komnir á
aúnað hundrað tonn það sem af er
mánuðinum.
Togararnir...
Framh. af 16. síffu
eða 729 smálestir, 90 smálestir af
skreið, 19 smálestir af óverkuðum
saltfiski, 34 smálestir af verkuðum
saltfiski og 1.102.718 kg. af lýsi.
Afli togaranna skiptist sem hér
segir: Kaldbakur 165 úthaldsdag-
ar, afli 722.592 kg., 86 veiðidagar,
afli pr. veiðidag 8.450 kg„ lýsi
18.866 kg., veiðiferðir 6 og sigl-
ingar 6.
Svalbakur 235 úthaldsdagar, afli
1.512.669 kg., veiðidagar 148, afli
pr. veiðidag 10.217 kg., lýsi 20.304
kg., veiðiferðir 12 og siglingar 5.
Harðbakur 209 úthaldsdagar, afli
1.335.052 kg., veiðidagar 129, afli
pr. veiðidag 10.309 kg., lýsi 21.855
kg., veiðiferðir 11 og siglingar 5.
Sléttbakur 245 úthaldsdagar, afli
1.479.448 kg., veiðidagar 150, afli
pr. veiðidag 9.830 kg., lýsi 37.470
kg., veiðiferðir 13 og siglingar 6.
Hrímbakur 77 úthaldsdagar, afli
421.809 kg., veiðidagar 54, afli pr.
veiðidag 7.810 kg., lýsi 4.223 kg.,
veiðiferðir 5 og sigling 1.
— Gunnar.
23. febrúar 1963 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ