Alþýðublaðið - 03.04.1963, Qupperneq 3
Byggingarhapp-
drætti blindra
BLINDRAFÉLAGH) er að hrinda
af sta'ð' happdrætti til ágó'ða fyrir
byggingarsjóð félagsins. Áætlað
er að byggja nýja álmn út frá
jieirri byggingu, sem blindrafélag-
ið hefur yfir að ráða að Hamra-
hlíð 17, þar sem eru íbúðir og
verkstæði blindra. Þar í húsi búa
nú 16 manns, þar af 12 blindir.
Blindraheimilið var opnað fyrir
tveim árum, og er þegar orðið of
lítið. Nú á að byggja viðbyggingu
og til þess að sú bygging rísi af
grunni er farið af stað með happ-
drætti það, sem fyrr frá segir.
Blaðamenn komu í gær í heim-'
sókn í Blindraheimilið. Var þeim
sýnt starfið þar og íveruherbergi
vistmanna. Þeim var til dæmis
sýnt heimili blindra hjóna, sem
þarna búa. Frúin hirðir sjálf að
öllu leyti heimili sitt, en þar sést
livergi rykkorn, þótt húsmóðirin
sjái ekki það, sem höndin finnur.
Öll umgengni var til slíkrar fyrir-
myndar, að hinir sjáandi mættu
mikið af læra.
Á verkstæðum á Blindraheimil-
inu er unnið við ýmislegt svo sem
SÖNGSKEMMTUN
burstagerð og plastiðju svo og
prentiðn. Ung kona stóð við að
prenta blindraletur. Henni fipaðist
ekki, er hún var að þvi spurð,
hvaða bækur væru í bókahillunum.
Hún þreifaði á hverri bók og lét
ekki standa á svari. Margar bók-
anna í bókahillum blinda fólksins
eru á dönsku, en unga konan vinn-
ur að því að prenta íslenzkar
biindraletursbækur eftir upp-
lestri af segulbandi.
Vinningar i happdrætti blinda
fólksins eru: Volkswagen station-
bifreið, flugfar til London fyrir
tvo, hlutir eftir eigin vali fyrir
allt að 10.000 kr. og hringferð
kringum landið fyrir tvo með m. s.
Esju.
Dráttur fer fram 5. júlí í sumar.
flokkurinn
UMRÆÐUFUNDUR með
nýju sniði verður haldinn í
kvöld kl. 9 í Burst, og er ÖU-
um FUJ-félögxun heimill að-
gangur.
SPILAÐ í Iðnó á föstudags-
kvöld kl. 8.30. Síðasta spila-
kvöldið á þessum vetri. —
Ávarp flytur Gylfi Þ. Gísla-
son, menntamálaráðh. Upp-
lestur: Herdis Þorvaldsdóttir,
leikkona. — Sérlega vönduð
verölaun.
Ástandið óljóst
eftir uppreisnina
í Argentínu
SIGURÐUR BJÖRNSSON söng
lagaflokkinn Die Schöne Muhlerin
oftir Schubert á vegum tónlistar-
félagsins í Austurbæjarbíói í gær-
kvöldi, og var Guðrún Kristins-
dóttir við hljóðfærið. Flutningur
lagaflokksins var af hálfu beggja
flytjenda einstaklega menningar-
legur og fágaður og ákaflega á-
nægjulegur á að hlýða. Sigurður
hefur fallega rödd og mjög vel
þjálfaða. Um eitt skeið virtist svo
sem Sigurði hætti til eins konar
yfirfágunar, en hann hefur nú
sveigt hjá þeirri hættu og nálgast
hinn gullna meðalveg. Hann hefur
fallega rödd, sem hann beitir af
óvenjulegu músíkalíteti.
Guðrún Kristinsdóttir er löngu
kunn sem afburða píanóleikari, og
hún gerði sitt til að gera þessa
söngskemmtun sérlega ánægju-
lega. G. G.
Tðugaveiki
í Danmörku
BUENOS AIRES, 3. apríl. — Á-
standið í Argentínu er enn mjög
óljóst, en uppreisnarmenn úr
hernum, undir forystu Benjamin
ALGEIRSBORG, 2. apríl. — Frá
því hcfur verið skýrt í Algeirsborg,
að 65 hótel í landinu séu nú komin
í eigu stjórnarinnar. Stjórnin á
ekki fjögur stærstu hótelin I AI-
geirsborg.
í fyrri viku skýrði Ben Bella,
forsætisráðherra frá því, að marg-
ir búgarðar hefðu verið þjóðnýttir,
svo og 500 iðnfyrirtæki. Verka-
menn hafa ákveðið að efna til úti
fundar á morgun til þess að fagna
þessum aðgerðum.
VIENTIANE, 3. aprfl_____Hermað-
ur úr her hlutlausra í Laos játaði
í dag að hafa ráðið utanríkisráð-
herra landsins af dögum og sært
konu hans.
Menendez, hershöfðingja, segja,
að þeir njóti stuðnings mikils hluta
herafla landsins. Uppreisnarmenn-
irnir, sem hafa bækistöð við ána
La Plata, segjast hafa náð nokkr-
um útvarpsstöðvum í landinu á
sitt vald.
Uppreisnarmennirnir eru and-
stæðingar stuðningsmanna Juan
Perons, fyrrverandi einræðisherra.
Þeir vilja tryggja það, að Peron-
istar fái ekki að bjóða fram í kosn
ingunum, sem fyrirhugað er að
efna til í júní n. k.
Ekki er vitað, hve mikils fylgis
uppreisnarmenn njóta f heráfíán-
um. Uppreisnarmennirnir lýstu
því yfir í útvarpi í nótt, að þeir
hefðu gert uppreisn, en seinna
sagði Guido, forseti, að þeir hefðu
verið sigraðir. .— Uppreisnarmenn
kváðust njóta fylgis hersins, flot-
ans, stórskotaliðssveita og hluta af
flughernum.
Guido sagði fyrr um daginn, að
herafli landsins héldi tryggð við
stjómina og hótaði því, að gerð
yrði loftárás á flugvöll, sem upp-
reisnarmenn hafa á sinu valdi í
nágrenni höfuðborgarinnar, Bus-
nos Aires. Seinna kvað hann upp-
reisnarmenn sigraða.
TAUGAVEIKIN, sem kom upp í
skiðabænum Zermatt í Sviss, hef-
ur borizt til Danmerkur, að því
er fréttir frá Kaupmannahöfn
herma. Ung stúlka, frá Næstved,
flutti með sér veikina. Hún var ný-
komin úr skemmtiferð til Sviss
og hafði m. a. komið við í Zer-
inatt. Þegar hún kom aftur heim
til Danmerkur, fannst henni hún
vera hálf lasin og fór til læknis.
Það var þá þegar uppgötvað, að
stúlkan var sýkt af taugaveiki og
var hún þegar sett í sóttkví á
sjúkrahús.
Aðrir þeir, sem þátt tóku í ferð
ínui, hafa verið einangraðir, þótt
enginn þeirra hafi sýnt minnstu
merki taugaveiki. Ileilbrigðisyfir-
völdin vonast til að þcir hafi ekki
orðið fyrir smitun.
Hermaðurinn var úr lífvarðar-
sveit utanríkisráðherrans og var á
verði við heimili hans, er hann
myrti ráðherrann.
Hermaðurinn kveðst liafa myrt
ráðherrann af föðurlandsást. Ut-
anríkisráðherrann hefði gert þjóð-
inni tjón.
NÝJU DELHI, 2. apríl. — Kín-
versk yfirvöld hafa greint frá því,
að 3 þúsund indverskir hermenn
sem teknir voru til fanga í landa
mærabardögunum í haust, verði
látnir lausir og sendir til Indlands.
Þetta múl verður athugað nánar,
þar eð hermönnunum verður
sleppt á ýmsum stöðum og tím-
um. Meðal þeirra, er einn hers-
höfðingi. í desember sl. slepptu
Kínverjar særðum mönnum úr
haldi og sendu þá til Indlands.
Málið sent
saksóknara
MÁL brezka togarans St. Apollo
frá Grimsby, sem sjómenn á vél-
bátnum Ólafi Tryggvasyni, kærðu
fyrir landhelgisbrot £ fyrradag,
hefur verið sent saksóknara til
athugunar. Blaðið ræddi við Pét-
nir S’trurðSson, forstjóra Land-
helgisgæzlunnar, og sagði hann,
að þegar SIF flaug yfir svæði það,
sem togarinn var á, hefði ekki
orðið vart við einn einasta tog-
ara allt frá Skarðsfjöruvita og
austur fyrir Hvalbak.
4. tunglflaug
Rússa skotið
Moskva, 3. aprfl
SOVÉZKIR vísindamenn skutu í
morgun eldflaug til tunglsins, —
þeirri fjórðu á fjórum árum. Að
sögn Tass á hún að vinna að frek-
ari rannsóknum í geimnum. Talið
er, að eldflaugin verði 3—4 sólar-
hringa á leiðinni.
Eldflaugin kallast Lunik IV. og
vegur 142 kg. Ekki hefur verið til-
kynnt hvort hún eigi að lenda á
tunglinu eða fara á braut umhverf-
is það. Lunik IV. var skotið frá
gervihnetti, sem var á braut um-
hverfis jörðu.
Tæki Lunik IV. eru sögð vinna
samkvæmt áætlun. Vísindamenn
telja, að næsti áfangi Rússa verði
að senda vísindatæki til tunglsins
eða á braut umhverfis tunglið. í
fyrra gerðu Bandaríkjamenn til-
raun til að senda tæki til tunglsins,
en hún mistókst.
Fyrstu tunglflaug Rússa, Lunik
I. var skotið í ársbyrjun 1939. Lu-
nik II. lenti á tunglinu í septem-
ber sama ár og samkvæmt upplýs-
ingum, sem þá fengust hefur
tunglið ekkert segulsvið. í októ-
ber 1959 tók Lunik III. myndir af
þeirri hlið tunglsins, sem snýr
frá jörðu.
Alþýðuf lokks-
félagar
STOFNAÐUR verður ferða-
og dansklúbbur í Burst, n. k.
fimmtudag, 4. apríl kl. 8.30.
AHt ungt fólk er velkomið.
*
MEÐLIMIR á verkalýðsmála
námskeiði Verkalýðsmála-
nefndar eru minntir á fund-
inn í kvöld kl. 8.30 í Alþýðn-
húsinu, uppi.
Aðstoð USA við
útlönd lækkuð
WASHINGTON, 2. apríl. — Kenne
dy forseti fór þess á leit við þjóð
þingið í dag, að samþykkt yrði að
4VÍ: milljörðum dala yrði varið til
aðstoðar við erlend ríki á næsta
fjárhagsári. Þetta er minna en áð-
ur hafði verið Iagt til, en samt
verður aðstoðin við erlend ríki
meiri á þessu ári en í fyrra, ef
frumvarpið verður samþykkt.
Helmingi fjárins á að verja til
efnahagslegrar aðstoðar, hinu til
hernaðarlegrar. Alls nemur lækk
unin 400 milljónum dala miðað við
það, sem áætlað var í fyrri tillög-
um.
Tilmæli Kennedys til Þjóðþings
ins eru byggð á tillögum sérstakr-
ar nefndar undir forsæti Lucius
Clay hershöfðingja. Nefnd þessi
lagði til í síðustu viku, að aðstoð
við sjö ákveðin ríki yrði minnkuð.
Kennedy kvaðst háfa fallizt á til-
lögur nefndarinnar. Fyrri tillögur
hefðu gert ráð fyrir of háum fjár-
upphæðum.
Forsetinn fer fram á, að aðstoð-
in við Indland verði aukin, svo að
landið geti varizt ásókn kínverskra
kommúnista. Einnig gerir hann ráð
fyrir aukinni aðstoð við ríki latn-
esku Ameríku og lönd eins og Pak-
istan og Nígeríu. Hann skýrði þing
heimi svo frá, að markmiðið væri
að gera löndum, sem aðstoðuð
verða, kleift að standa á eigin fót-
um; gera þeim kleift að hjálpa
sér sjálfum á braut til framfara.
Lokatakmarkið væri, að löndin
yrðu sjálfum sér nóg.
Kennedy sagði enn fremur, að
tilgangurinn með aðstoð við erlend
ríki væri ekki að auka Bandaríkj-
unum fylgi, heldur að stuðla að
varðveizlu friðarins.
Fréttamenn í Washington telja,
afi þingmenn muni reyna að kóma
því til leiðar, að aðstoðin vérði
minnkuð enn meir.
/ VERINU
Framh. af 1. síffu
Handfærabátar hafa mokað upp
fiski á vertíðinni, og þegar bezt
hefur veiðzt, þá hefur afli þeirra
verið tvö tonn á mann. Handfæra-
bátamir em þrír, Ester, Kristín
og Milly. Hefur Ester fengið 16
tonn 1 róðri, þegar mest hefur
veiðzt.
Þessir bátar höfðu tilkynnt afla
sinn til Þorlákshafnar um kl. 7.30
í gærkvöldi: Gjafar 25 tonn,
Klængur 16, Björg 13, Cap VE 34
tonn, Páll Jónsson 30 tonn.
Fiskurinn fæst allur á Selvogs-
banka, og er það mjög stór og
vænn þorskur. Auk hans hefiu-
dálítið slæðzt inn af ufsa, sem
einnig er ágætur.
Vestmannaeyjabátar öfluðu
minna í gær en undanfama daga,
en ýmsir öfluðu þó vel. Nokkrir
Eyjabátar lönduðu í Þorlákshöfn
og í Grindavík, því að ekki hafðist
undan með fiskverkunina í Eyjum.
Höfum fil sölu
steypu-mottur.
Sölunefnd v»” 'má.
ALÞÝBUBLA9IS -
963 A