Alþýðublaðið - 03.04.1963, Side 9
um það bil 7 þúsund krónur. Um
það þriðjihluti teknanna fer í
skatta, og þá er húsaleigan reikn-
uð með.
— Húsaleigan er þó ekki skatt-
ur?
— Flestir þeldökkir líta þannig
á málið, að húsaleigan sé skattur.
Hver einasti bær í Suður Afríku
er tvískiptur. Annars vegar er
hverfi þeldökkra. Hvítu mennirnir
eiga flestir lóðir sinar. Hvað okk-
ur viðvíkur er þessu öðruvísi far-
ið. Allt landrými, sem þeldökkir
byggja heyrir undir sérstaka
stjórnarskrifstofu. Við borgum
húsaleigu beint til hins opinbera.
Það má því með sanni segja að
þeldökkir í Suður Afríku séu eigna
lausir þrælar.
— Hvað um önnur útgjöld fjöl-
skyldunnar?
— Á ári verðum við að eyða
næstum þrjú þúsund krónum í
strætisvagnagjöld, svo að það sést
glöggt að ekki verður mikið eftir
til að lifa af.
— Hvað kostar það mikið að
ganga í skóla fyrir þeldökka?
Meðan ég var í menntaskóla
urðu foreldrar mínir að borga fyr-
ir það tæplega átta þúsund krónur
á ári. Þau urðu einnig að borga
skólagjöld fyrir yngri bróður
minn, sem gekk á lýðháskóla. —
Þannig urðu þau að spara og halda
í við sig á öllum sviðum vegna þess
að þau vildu að böm s!n hlytu
nokkra menntun?
— Hversvegna vildu þau það?
— Foreldrar mínir gengu hvor-
ugt í skóla, og eru bæði ólæs. Þau
geta að vísu aðeins dregið til
stafs og stautað sig fram úr Zulu-
máli, en það er líka allt og sumt.
En foreldrar mínir, — og sama er
um flesta þeirra líka — þrá frelsi
og manngildi. Þessu marki er að-
eins hægt að ná með því að
mennta æskulýðinn í Suður Afr-
íku. Þessvegna fórnuðu þau ýmsu,
— frelsisþráin knýr þau .eins og
óteljandi marga aðra í heimalandi
mínu.
— Hvemig fannst þér að búa í
Suður Afríku?
— Það er erfitt að finna orð til
að lýsa því. Kynþáttaágreiningur-
inn elur af sér hatur, biturleika
og mótþróa. Ég skal nefna dæmi
um þetta.
í Noregi em lögregluþjónamir
kurteisir og hjálpfúsir. Þetta veit
ég að sjálfsögðu, að er gott og
blessað. En harðstjórnin 1 Suður
Afríku hefur gert mig þannig að
ósjálfrátt óttast ég þá, sem klæð'
ast einkennisbúningum og em
laganna verðir. Þótt ég hafi nú
búið hér í eitt ár á ég það til að
fara þvert ýfir götu ef sé sé lög-
regluþjón nálgast. Svona á þetta
sér djúpar rætur.
— Hvað hyggstu gera, þegar þú
hefur lokið námi?
— Þá ætla ég heim til Suður
Afríku, — heim í kúgunina, ótt-
ann og fangelsin. Ég verð að taka
þátt í frelsisbaráttunni. Við verð-
um að berjast til að öðlast rétt-
indi vor.
WMWMtlMtWWWMMWIWtWWWWWWHWIWWWMMHMWWWWWIWWWWW WMWWMWW
SAVANNAH VIÐ SJÓINN
ÞETTA er hið víðfræga Savannah-tríó, sem syngur og spilar sig inn í hjörtu ungra sem gamalla
íslendinga. Þessir ungu menn láta sér ekki fyrir brjósti brenna, þótt þjóðlögin okkar fái dálítið
annarlegan svip, —- nútímihn er nú einu sinni dálítið abstrakt í allri túlkun sinni. — Og því
ekki að heyra, hvernig hljómburðurinn er við sjóinn?!
Hljómplötur
seldar fyrir
flóttamenn
HLJÓMPLATA S.Þ. „All Star
Festival“ seldist strax fyrstu vik-
una, eftir að húri kom á markað-
inn, í 365.000 eintökum í einum
tólf Evrópulönjdum. Svíþjóð á
vinninginn með 155.000 eintok,
næst kemur Holland með 40.00C
eintök. Eftirspurnin hingað lil,
fer fram úr öllum vonum, og ei.m '
formælandi flóttamannahjálpar
SÞ. lét svo ummælt, að þf>. si
hljómplata gæti orðið bezt he > -n
aða fjáröflunarleið flóttamauna-
starfsins. Næst á eftir Svíþjóð
og Hollandi koma Noregur með
35.000 eintök, Ítalía og Bretland
með 30.000 eintök hvort, Belgía
með 15.000, Frakkland með 12.000
og Grikkland með 1000. í löndum
sem seinna komu til sögunnar
eru aðeins til tölur yfir fyrsta
söludaginn, og er þar Vestur-
Þýzkaland efst með 25.000 eintök
næst Sviss með 7.700 og Austur-
riki með 3.500. Þrettán heims-
frægir listamenn koma fram á
plötunni þ.á.m. Louis Armstrong,
; Bing Crosby, Maurice Chevaiicr
I og Catarina Valente.
)
æskulýðsleiðtogar hér / heimsókn
Blaðamaður Alþýðublaðsins
hitti þá sem snöggvast að máli
í fyrri viku og greindu þeir
Stuttlega frá æskulýðsstarfsem-
inni í Slésvík-Holstein.
Þar eru eins og áður er sagt
1) æskulýössambönd, sem hafa
innan sinna vébanda margs
konar klúbba og félög, og eru
meðlimirnir á aldrinum 10-21
árs.
Giinther skýrði svo frá, að
æskulýðsstarfsemin hefði haf-
izt strax að stríðinu loknu, enda
hefði þörfin þá verið mikil að
hjálpa unglingunum á einhvern
hátt.
í fyrstu hefði verið mikið at-
vinnuleysi í landinu og hefði
þá æskulýðsstarfsemin mjög
beinzt að því að reyna að greiða
úr fyrir ungu fólki á því sviði.
Meðal annars var þá komið á
fót eins konar þjálfunarstöðv-
um þar sem ungu fólki gafst
kostur á að læra undirstöðuat-
riði ýmissa iðngreina og var
greitt nokkuð kaup fyrir. Nú
er málum hins vegar þannig
háttað að skortur er á vinnu-
afli og tómstundir unglinga
fara vaxandi og hefur því starf-
semin síðustu ár einkum beinzt
að því, að koma upp æskulýðs-
heimilum, þar sem ungt fólk
getur eytt tómstundum sínum
á heilbrigðan hátt, við hagnýt
störf eða skemmtanir.
Þeir félagar sögðu, að í hverj
um einasta bæ og öllum þorp-
um í Slésvík-Holstein væru
æskulýðsheimili í einhverri
mynd, og væru þau mjög vel
sótt og vinsæl meðal ungs fólks.
Æskulýðsheimilin eru ivenns
konar. Gistiheimili fyrir ringt
fólk á ferðalögum og svö tóm-
stundaheimili.
í þessum heimilum eru oft
haldnir dai^sleikir fyrir ungt
fólk, og er þá að sjálfsögðu
aldrei haft áfengi um hönd.
Þessa dansleiki sögðu þeir injög
vinsæla.
Einnig er það snar þáttur í
starfi æskulýðsfélaganna að
gefa ungu fólki kost á að dvelj-
ast í sumarbúðum í Ieyfum sin-
uni.
Á árinu 1961 fór hópur resku-
lýðsleiðtoga héðan af íslandi tsl
Slésvík-Holstein og kynnti sér
æskulýðsmál. Fararstjóri þess
hóþs var séra Bragi Friðriksson.
í sumar mun svo koma hingao
hópup frá Slésvíla-Holstein £
sömu erindagjörðum undir for-
ystu séra Krafts.
Giinther og séra Kraft kváðu
æskulýð í heimalandi únu
mjög áhugasaman um ísland og
hefðu þeir haft mjög ánægju-
legt samstarf við Æskulýðsráð
Reykjavíkur, sem þeir teldu
vinna mjög vel að málefnum
æskunnar hér í Reykjavík.
í haust munu æskulýðssa.n-
bönd í Slésvík-Holstein gaiig-
ast fyrlr fundi með unglinga-
leiðtogum á Norðurlöndum, og
hefur íslandi þegar verið ln i?n
þátttaka.
Þeir Giinther og sér Kraft
héldu héðan áleiðis til Þýzka-
Iands á mánudagsmorgun, og
létu þeir hið bezta yfir dvöl
sinni hér í hvívetna.
‘ALÞÝÐUBLAÖIÐ — 3. apríl 1063 $