Alþýðublaðið - 03.04.1963, Qupperneq 10
RitStjéri: ÖRN EIÐSSON
MYNDIRNAR á síðunni í
dag eru frá hinum sögulega
leik Ármanns og Vals í II.
deild í fyrrakvöld. Á þeirri
efri er Ármenningnr að
skjóta, en Bergar Guðnason
reynir árangurslanst að
hindra. Á neðri mynd er það
Valsmaður, sem sendir bolt-
ann í netið.
fs!ýtt sveinamet í
hrístökki án atrennu
FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓT KA
nnanhúss, 27. marz 1963
_ Keppendur voru alls 10 frá 7
télögum og héraðssamböndum.
Hlutaverðlaun voru veitt að
Iþessu sinni, en það voru bókaverð-
iaim, sem eftirtalin fyrirtæki gáfu:
Bókabúð Rikku, BókaverzL Jóh.
Valdimarss. og Prentverk Odds
Björnssonar.
Þetta er í fyrsta skipti sem
keppt er í kúluvarpi hér innan-
húss á Akureyri, en íþróttasalur-
inn má ekki minni vera. (og er
Framh. á 15. síðu.
PÁSKAVIKA
IR SKALANUM
SÖGULEGUR ÚRSLITALEIKUR í 2. DEILD:
Dómarinn sleit leiknum
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR
Alþýðublaðsins átti stutt viðtal
við höfuðpersónurnar i hinum
sögdegu leikslokum í leik Vals
og Ármanns og spurði þá hvað
þeim hafði farið á mUU.
Dómarinn Gunnlaugur
Hjálmarsson segir svo frá: „Ég
dæmdi vítakast á Val og var það
varið, en þar sem ég áleit að
markvörður Vals hefði verið í
minna en 3 m. fjarlægð frá
þeim, sem framkvæmdi víta-
kastið þá ákvað ég að kastið
skyldi endurtekið og benti á
vitakastlínuna. Þá kom inn á
völlinn þjálfari Vals, Birgir
Björnsson og spurði á hvað ég
hefði dæmt. Sagði ég honum
ástæðuna fyrir ákvörðun minni,
en hann mótmælti og sagði að
markvörður Vals hefði staðið
á þeim stað, sem hann síðan
benti á. Bað ég hann um að
víkjá af leikvelli svo að leikur-
inn gæti haldið áfram. Neitaðl
hann þvi og vísaði ég honum þá
út úr húsinn, en hann sagðist
hvergi mundu fara. — Þar sem
ég áleit, að ekki væri eðlilegt
að halda leiknum áfram að svo
komnu máli, þá sleit ég Ieikn-
um. Ritaði ég síðan athuga-
semd á leikskýrslu um þessi
leikslok og mun skýrslan ganga
tU Dómstóla HKRR“.
Birgir Björnsson segir svo
frá: „Er dómarinn hafði bent á
vitakastlínuna og ákveðið, að
vitakastið skvldi endurtekið fór
ég inn á völlinn og sagði við
dömarann, að ég áliti að mark-
vörðurinn hefði a. m. k. verið í
3 m. fjarlægð frá Herði. Benti
ég á þann s+að. sem markvörð-
urinn hafði verið á, þegar hann
varði. Skipti bá engum togum,
dómarinn skinaðj mér að fara
út úr húsinu. Ég neitaði því,
því ég taldi dómarann ekki hafa
heimild til að vísa mér úr hús-
inu fyrir þess'ir »*<-or<v<r mín-
ar. Stjakaði þá dómarinn við
mér lítillpirn og s’rit síðan
leiknum e'~ í fússi“.
AÐ VANDA gangast ÍR-ingar
fyrir páskaviku við sinn ný-
byggða og glæsilega skíðaskála
í Ilararagili við Kolviðarhól.
Þar sem aðeins er svefnpláss
fyrir 46 manns má búast við að
færri geti dvalið þar en þess
óska, en dvalarleyfin vgrða
seld í ÍR-húsinu við Túngötu
nk. fimmtudag og föstudkg kl.
5-7 e. h.
Gestiun verður séð fyrir
fæði allan tímann og þurfa þvi
aðeins að hafa með sér svefn-
poka, skíði og fatnað, en gestir
þeir, sem aðeins dvelja á dag-
inn við skálann geta fengið
keyptar veitingar.
Ferðir verða frá BSR á mið-
vikudagskvöld og á hverjum
morgni og til baka að kvöldi.
Skíðasnjór er sæmilegur f
Hamragili og á Skarðsmýrar-
fjalli, þá er nægur snjór I
Innstadal og á Hengsli, en þang
að verða famar gönguferðir, ef
veður Ieyfir undir stjórn kunn-
ugs manns.
Skíðakennsla verður fyrir þá
sem þess óska og að lokum
verðnr skiðakeppni.
Á kvöldin verða haldnar
kvöldvökur fyrir dvalargesti og
e. t. v. dansað.
LEIK Ármanns og Vals f 2 deild
íslandsmótsins í handknattleik
lauk með nokkuð sérstæðum hætti,
þar sem dómarinn, Gunnlaugur
Hjálmarsson sleit leiknum 4 mín.
áður en lögákveðinn leiktíml
var leikinn. Aðdragandi þess var
með þeim hætti, að dæmt var víta-
kast á Val, Hörður framkvæmir
kastið, en Egill markvörður Vals
ver. Dómarinn flautar og bendir á
vítakastlínuna, en í því felst að
kastið skuli endurtekið vegna þess
að markvörður Vals hafi eigi ver-
ið tilsldlda 3 metra frá Herði, er
hann framkværadi kastið. Þá geng
ur þjálfari Vals, Birgir Björnsson. i
inn á völlinn og tekur dómarann,
tali. Þvf samtali lyktar svo með
því að dómarinn bendir með hend-
inni í átt til útidyranna, en Birgir
sinnir því ekki og slítur dómarinn
síðan leiknum. Þetta voru fremur
leiðinleg leikslok, þvi leikurinn
hafði verið fremur góður af beggja
hálfu og ekki harðari en gengur
Framh. á 15. síðu.
Viðtöl við Birgi' og Gunnlaug
4
9 •
10 3. apríl 1963 — ALÞYÐUBLAÐIÐ
,ij;K '«i-i f- -