Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 10

Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 10
94 BREIÐABLIK því vaxinn að hug'sa kristilega. Hún er líka heppilega eftir tækifærinu sniðin. Fyrirlestrar eru ávalt álitnir eitt helzta atriðið í sambandi við hvert kirkjuþing. Þykir sumum ofmikill tími til þeirra eyð- ast, en hann er ávalt nokkuð naumur. Ekki getum vér á þeirri skoðan verið. Ög ekki er safnaðarfólk þeirrar skoðunar, þar sem kirkjuþing er haldið. Aldrei fylkir það eins liði og þá. I sumar var rigningartíð um kirkjuþing og veg'ir slæmir. En fyrirlestrar voru sóttir af fleira fólki, en fyrir mátti koma í kirkju. Þeir hafa vakið fólk betur til umhugsun- ar um andleg velferðarmál en flest annað. Erindi síra Björns um íslenzka óbil- girni var orð í tíma talað. Það flettir ofan af þeim íslenzka skaplesti að beita and- stæðinga ofbeldi og yfirgangi, láta þá eigi sannmælis njóta í nokkurum sköpuð- um hlut, en leitast við að kæfa alla mót- spyrnu og skoðanamun með ofstopa og stórum höggum. Því miður megum vér ekki rúmsins vegna taka hér neitt upp úr fyrirlestri þessum; en í þess staö viljum vér biðja menn að lesa hann í samhengi og íhuga efnið vel. Meðan verið var að prenta hann fór blaðamensku ósóminn með oss í algleyming og þess vegna ætti þessi al- vöruorð að falla í góðan jarðveg. Ut af því fann almenningur manna meira til, en nokkuru öðru, er fyrir hefir kornið lengi. Enda erum vér vissir um, að almennings- álitið lætur betur til sín taka í þeim efn- um hér eftir en hingað til. • En í sumum atriðum hefir höf. tekið of djúpt í árinni og með því að oss virðist fremur dregið úr áhrifum ágætrar hug- vekju. Vér fáum ekki séð, að jafn-mikið kveði að illdeilum í blöðum á íslandi nú um langan tíma og gjört er orð á. Það er naumast sanngjarn dómur að ,,aðalein- kenni blaðanna að heiman sé illdeilur og frækorn þau, er þau geti sáð í hjörtu manna aðallega þar af leiðandi frækorn úlfúðar, sundurlyndis og mannhaturs11. Ljótasti blettur á blaðamensku á fóstur- jörð vorri nú nýlega, eru ofsóknir og æs- ingar, er gjörðar voru út af störfum Til- raunafélagsins í Rvík síðastliðinn vetur. Hnippingunum út af sæsímanum og sím- stauraflutningum gjörum vér ekki mikið úr. Að öðru leyti hefir oss fundist blaða- menska á íslandi hafa tekið stórkostleg- um umbótum síðari ár. Svo vel er nú ritað í íslenzk blöð og svo auðug eru þau af alvarlegum hugleiðingum um hag þjóðar vorrar, að oss finst gróði stórmik- ill að lesa þau. Vér gætum ómögulega án þeirra verið og ekki finst oss neinn megi án þeirra vera, er fylgjast vill með í and- legu lífi þjóðar vorrar. Frá öðru sjónarmiði er líka mynd- in, er fyrirlesturinn dregur upp of myrk. Það verða fáir, sem fallast á þá setning ,,að hafi blöðin að heiman annars nokk- ur áhrif hér, geti þau áhrif ekki verið til annars en vekja hér og viðhalda sundr- ung og til að koma inn óbeit á kristin- dóminum“. Vitaskuld er það satt, að' ýmislegt óheilbrigt og óheilnæmt flýtur með í blöðum og tímaritum. Svo vill það verða með öllum þjóðum. En hið góða og heilbrigða yfirgnæfir meir og meir. Á því finst oss nú orðið bera miklu meir en hinu. En út af göllum og öfugstreymi hefir síra Björn fundið svo sárt til, að það hefir vaxið í huga hans og varpað skugga á hina björtu hlið. Svo hefir mörgum góðum manni og göfugum farið, sem við- kvæmur hefir verið fyrir því, er ekki á að vera. Enda vill hann, að þessir gallar sé læknaðir með göfugum áhrifum og kristi- legum á hugsanalíf þjóðar vorrar. í heild sinni er fyrirlesturinn ágæt hug- vekja og mjög nauðsynleg. Það munu allir þeir kannast við, er eitthvað hafa hugsað um íslenzka skaplesti og þá ekki sízt þann, sem hér er um að ræða. Á- rangurinn af lestrinum ætti að vera sá, að vér brendunv arfasátuna á Bergþórs- hvoli og létum slokkna til fulls í rústun-

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.