Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 13

Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 13
BREIÐABLIK 97 AST. Æðsta sæla allra manna, alskær sól í tímans geimi, lífsins afl og hug'sjón hæsta, helg og einlæg, djúp og sterk. Þú átt alt sem augað lítur, efst frá stjörnum, hafs að botnum, eilífð er þinn undrasalur, alheimur þín þín handaverk. Hví var egfrá dular-djúpi dreginn upp á lífsins ströndu ? Að eins til að elska, skilja, — ást! að geta fundið þig. Ar var minnar æfistundar er þú fyrsta lézt mig drekka bikar fyltan lífs' úr lindum Lofnarmiði á Sunnustig. Síðan hefi’ eg drukkið, drukkið, daga, morgna, kveld og nætur, boðsgestur að Sjafnarsumbli, sumar, vetur, haust og vor. Þar eg heíi hjá þér unað, horft á þína yndisfegurð, leikið mér að lokkum þínum, ljúfust stigið með þér spor. Oft eg hefi brunnið, brunnið, bæði’ í hjarta og sálu minni, bálað upp í ljósum loga, Lofn, við undra-snertingjþinn. Titrað hafa taugar mínar tilfinningu unaðssælli, og í logans geislagulli Glaðsheim lífs séð hugur minn Þú hefir veitt frá ölduirfalda öllu fögru líf og næring, göfgað, blessað, hafið hærra himni móti, land og þjóð. Þú hefir ótal þungum stundum þokað fjær með brosi mildu, vakið framsókn, frelsi, krafta, fyrirhyggju, þol og móð. Eins og verndarvættir endur vötðu börn sín tryggum mundum, þannig hylurðu’ unaðsörmum alla þá, sem treysta þér. — Það er traustið, trygðin sanna, töfrahöll, sem opnar þína, tendrar vorsins eld í anda, útilokar vetrar her. Ei vil eg þig böndum binda, — böndin vilja lýja’ og særa, frjáls við mættumst fyrsta sinni, fjöturlaus við unum bezt. Ef að þú ert bundin böndum burtu hverfa töfrar þínir. Sorgir öllum fjötrum fylgja. — Frelsi’ er allri sælu mest. Frjáls við saman fara ætlum fram á efstu lífsins dali, fram og upp til öræfanna upp í myrkblá Huldulönd. Upp á fjallið, upp á tindinn, efst á gljáa jökulskallann, þar sem alt er þoku hulið þeim, sem byggja lífsins strönd. Þar að skilja? — Aldrei, aldrei! Yfir hæsta jökultindinn brosir sólarhiminn heiður, hulin veröld opnast ný. Upp á tindinn, saman, saman, sumarljósi móti höldum, Yfir þunga, þunga vegi þokupall og myrkurský. Út í geyminn bjarta, bláa, berumst við á loftsins öldum, siglum dýrum sólarknerri, seglin fyllir hugarblær. Minnninganna myndir kærar munu’ í kring um okkur vaka, alla kærstu æskudrauma endurspegla himnasær. Þá mun djúpa þráin fyllast, þá mun von og löngun skoða hugmyndanna heima víða, hugur fyr sem óglögt sá. Þá munu’ augun þungu opnuð þegar sjónum skína móti nýir himnar, nýjar jarðir, — nýrrar ástar festing blá. Sæl við þá í samást lifum, sækjum hærra, dýpra, lengra. Eilíflega lengra, lengra — leita, finna, skilja, sjá. Fram og upp til fullkomnunar, fegri, dýrri myndum safna, sem að röðull rúms og tíma regingeislum stafar á. Ast, eg fel þér æfi mína, yndisfrjálsa draumabrúður,

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.