Breiðablik - 01.12.1906, Qupperneq 2

Breiðablik - 01.12.1906, Qupperneq 2
102 B R E I Ð A B L I K. elska það ætlunarverk svo, að vér leg-gjum líf og kraft vorn allan í sölur fyrir það — í þeirri traustu trú, að þá sé ekki til einskis lifað. Hefir þú mikinn fög'nuð í hjarta þínu maður ? Ut af hverju er hann ? Hann sem á jólum fæddist, var ]íf og ljós mannanna. Hann var æðsta opinberan lífsins. Það er fögmuður að líkjast honum — fögnuður að skilja lífið og ætlun- arverk þess á þann hátt sem hann skildi það — fögmuður að verja því eins og hann varði því — fögriuður að hup'sa 'hugfsanir hans — fögnuður að geyma þær í sálu sinni, — fögnuður að bera þær inn til annarra manna, að þeir fái eirn- að sér við þær og orðið glaðir. Sá, sem lífið skoðar eins og hann, skoðar það frá bjartri hlið. Aldrei var hann í efa um sigur. Lífið á að verða öllum sigur. Til að sannfæra mennina um það, varði hann lífi sínu öllu. Skoðum þá lífið í því ljósi, sem hann gaf. Fögnum yfir því að lifa brot af því lífi, sem hann lifði. Hann tók á sig þjónsmynd. Hvernig þjónum vér lífinu ? Skiljum vér erindi lífs vors líkt og hann ? Skilum vér því á sama hátt og hann ? Látum vér það verða mönnunum fagnaðarerindi eins og hann ? Verður fög-nuður lífsins nokkuð meiri af vorum völdum ? Berum vér sáttarorð á rnilli eins 02" hann? TRÚRÆKIN ÞJÓD. pj'YRiR nokkuru síðan var snjöll ræða flutt af einum helzta manni þjóðar vorrar í samkvæmi einu í Reykjavík, sem vér þykj- umst viss um, að mörgum sé enn minnisstæð. Ræðumaðurinn sagði, að ef hann ætti óskastundina, væri það þrjár óskir, er hann hafði fram að bera þjóð vorri til handa, öllum öðrum óskum fremur. Ein óskin var að íslendingar væri t r ú r æ k i n þjóð. Mörgum mun sú óskin minnisstæðust afþví hún er svo óvanaleg. Ef prestur hefði hér átt hlut að máli, myndi flestum hafa þótt hún eðlileg, þó ekki sé það í raun og veru nema tiltölulega fáir íslenzkir prestar, er frarn hafa komið með þá ósk. En í þetta sinn var það mentað- ur leikmaður, sem talaði, — einn þeirra manna, er lengi hefir flest- um mönnum rækileg"ar ritað og" O O hugsað um velferð þjóðar vorrar einkum í stjórnmálum og öðrum veraldlegum framfaramálum. Hve undarlegt og óvanalegt að heyra slíkan mann bera trúrækni þjóðar vorrar fyrir brjósti. Um menn í hans stöðu höfum vér átt því helzt að venjast, að þeir hafi verið allri trúrækni andvígir í hjarta og naumastgetað litið hana réttu auga í fari annarra. Eða þeir hafa látið alt þess konar öldungis afskiftalaust, sagt,

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.