Breiðablik - 01.12.1906, Síða 10

Breiðablik - 01.12.1906, Síða 10
I IO BREIÐABLIK. lega t. d. frú Patrick. Öll þau gælunöfn! Það hefðimátt komast af með helminginn. Hér í landi, þar sem hneykslanlegar skáldsögur eru á hverju strái, er skáld- saga sem þessi blátt áfram nauðsynleg. Af engum bókum er eins mikið lesið eins og skáldsögum, — sumum skaðlegum bæði oð efni og máli. Þessi skáldsaga, — eins og alt sem Magnús ritar,er þann- ig úr garði ger, að það hlýtur að hafa bætandi áhrif á börn þau og unglinga,er lesa. Að því leyti er sagan beinlínis eftir- sóknarverð, jafnvel sumum fræðibókum fremur. Og }'firleitt er stíll höfuudarins eins lipur og laðandi eins og tilfinningar hans eru mannúðlegar og viðkvæmar. Seinast skal eg minnast á „Brazilíu- farana“. Af þeim er nú búið að prer.ta fyrsta kaflann fyrir nokkuru, og lítur út fyrir, að það verði hið bezta ritverk Mágnúsar. Sumt í þeirri sögu er lítilsvirði, ekki svo mjög vegna þess,að það sé óskemti- legt, — og það er það alls ekki, — heldur fyrir þá sök, að það er ólíklegt. Sem dæmi þess mætti minnast á viðskifti þeirra Senoritu og Skúla, og þetta marg- endurtekna ,,eg hvgg“ sem Ólafi er lagt í munn. Aftur er margt í sögunni,sem er aðdáanlega sagt. Eg vil benda á í því sambandi samræðu þeirra Cajo’s og Bastillhos. Eg get ekki betur séð, en það sé sálarfræðislega hárrétt hugsað. Hitt er þó enn listfengara, hvernig haldið er á efni, þegar Haraldur er í lífshættunni í gljúfrunum, og eins frásagan um björgun hans. Svo ritar enginn viðvaningur. Verði það sem eftir er þeirrar sögu eins vel gert og það sem komið er fyrir almennings augu, verður sagan sem heild kærkominn gest- ur með Vestur-íslendingum. Hugsjón hvers manns, er háu og göf- ugu takmarki nær, er sú: að vaxa. Flest- unr Vestur-lslendingum fremur heflr Magnús sýnt einlægni og staðfastan á- setning í að láta sér fara fram. Jafnvel um hið Ianga og þungbæra veikinda tíma- bil sitt hefir hann áorkað meiru í þá átt en þeir, sem stálhraustir eru. Og þar sem svo langt er komið, vil eg segja við hann eins og Hannes Hafstein sagði við annað og meira íslenzkt skáld: „HvaS dvelst þér? Syng, því mikið eftir er, og enn þá vér hins beza frá þér vonum“. Eg hefi reynt að gleyma því meðan eg ritaði línur þessar, að Magnús er vinur minn, en að eins segja eins og Cracknell: ,,Palmam qui meruit ferat“. Hjörtur Leó. ÍSLENZKUR ÖLDURMADU R. LL þau ár, er Islendingar hafa átt L/ heima hér í Winnipeg, hefir einung- is einn öldurmaður setið í bæjar- stjórn úr flokki þeirra, og sætir það eigi lítilli furðu. Auðvitað eru til þess ýmsar orsakir og margar eðlilegar. Það er launalaust embætti, en til þess getigur tími all-mikill. Islendingar sem til þess myndi hæfir, hafa hingað til verið svo önnum kafnir með að sinna eigin störfum, að þeir hafa naumast séð sér fært, að færast annað í fang. Eini Islendingurinn, er setið hefir áður í öldurmannaráði bæjarins, er Árni Frið- riksson, kaupmaður. Og heyrt höfum vér hann segja, að hann hafi alls ekki lang- að til að hafa það embætti lengur á hendi. Samt sem áður virðist það nærri brýn nauðsyn, að Islendingar eigi þar einhvern ötulan og málsmetandi mann að fulltrúa. Bæði er þeim það sjálfum sómi og hagur, þar sem svo margt fólk þjóðar vorrar á hér eignir og bólfestu. Við síðustu kosningar 13. þ. nt. var Arni Eggertsson, fasteignasali, kosinn öldurmaður í 4. kjördæmi bæjarins. Er öllum, er þann mann þekkja, þetta hið mesta gleðiefni, því hann er sérlega fær

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.