Breiðablik - 01.12.1906, Qupperneq 4

Breiðablik - 01.12.1906, Qupperneq 4
BREIÐABLIK barnanna. Það sé aðalatriði barnakenslu með kristinni þjóð. Eitt blaðið hefir minst á ræðu þessa og- gjört það mjög vingjarn- lega. En það hefir á það bent, að þetta væri ofætlan, að ætlast til þess af alþýðukennurum, að þeir kæmi kristindómi inn hjá börnun- um. Þeir muni naumast gjöra það með nokkurri þjóð. Víster um það, að illa færi, ef nokkur þjóð varpaði allri áhyggju í þessu efni upp á alþýðukenrtara. Ætlunarverk þeirra er of örðugt og margbrotið til þess. Og tíma mest öllum verða þeir að verja til að koma undirstöðu atriðum ver- aldlegrar þekkingar inn í hugann. Samt sem áður er það hverri þjóð óumræðilegur ávinningur í kristilegu tilliti að hafa kristilega hugsandi alþýðukennara, — trú- rækna menn og konur, er sann- færð eru um það í hjarta sínu, að hverjum manni sé það skilyrði velferðar og lífsgæfu, að vera trú- rækinn maðuf í orðsins bezta skilningi. Með öðrum orðum : Af öllu því,sem kent er á alþýðuskólum,er lífsskoðanin aðalatriðið. Og henn- ar verður ósjálfrátt vart, hvað sem verið er að kenna. Með trúræknum mönnum er það álitið óumræðilegt tjón, þegar svo ber við, að kennarinn virðir trú- ræknina vettugi. Það er þá litið svo á sem frækornum lotningar- leysis og óhamingju verði ósjálf- rátt sáð í barnssálirnar, jafnvel þó það sé ekki gjört með ásetningi. Hér í landi er trúrækni foreldra víðast hvar svo viðkvæm, að þeir þora eigi að trúa slíkum kennur- um fyrir börnum sínum. Þeim er vanalega hafnað, enda oftast ann- arra kostur. Allur þorri lýðskólakennara hér er sérlega vel kristið fólk. Lífs- skoðan kristindómsins er eindreg- ið haldið að börnunum á lýðskól- um lands þessa nokkurn veginn undantekningarlaust. Á þetta er alveg jafnmikil á- herzla lögð, þó hér sé engin krist- indómsfræðsla í skólunum. Þjóð- in hefir svo eindregna sannfær- ingu fyrir því, að kristileg lífs- skoðan sé velferðarskilyrði, að hún þolir ekki að börnunum sé annað boðið. Hvernig er nú þetta með oss ? Er oss ant um þetta ? Eða stend- ur oss á sama ? Hvað álítum vér börnum vorum hollast í þessu efni ? Trúrækni eða ræktarleysi ? Er eigi tími til kominn, að þjóð gjöri sjer þetta fyllilega ljóst ? Enhve mikilsvert semþettakann að vera, er hitt víst að engin trú- rækin þjóð varpar allri áhyggju sinni í þessu efni upp á lýðskóla- kennara eina. Hvorki eiga þeir að vera helztu kennarar barnannaí kristindómi, né heldur geta þeir það, svo í lagi sé. Það verða foreldrar þeirra að vera annars vegar og kirkjan hins vegar. Lýðskólinn veitir því að eins óbeinlínis stuðning og að- hlynning, sem heimilið og kirkjan

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.