Breiðablik - 01.12.1906, Síða 16

Breiðablik - 01.12.1906, Síða 16
116 BREIÐABLIK hjá okkur í nótt. Æ, svona stór hefði yngri börnin okkar getað verið, ef við hefðum fengið að halda þeim“. ,,En hvað þetta eru lagleg börn“, sagði konan; „svona falleg hefði líka börnin okkar getað verið, ef þau hefði fengið að lifa hjá okkur“. Og gömlu hjónin fóru að gráta. Þá gátu systkinin ekki lengur ráðið við tilfinningar sínar, heldur föðmuðu grátandi foreldra sína að sér og sögðu : ,,Þekkið þið okkur ekki aftur? Við, sem erum börnin ykkar; og guð hefir dá- samlega leitt okkur heim til ykkar frá ókunna landinu“. Og foreldrarnir föðmuðu þau að sér með óumræðilegum kærleika, og þau krupu öll og vegsömuðu guð fyrir það, að hann hefði á sjálfan hvítasunnudag- inn sent þeim öllum svo mikla huggan. Svo urðu börnin að segja foreldrum sínum frá því, sem á dagana hafði drif- ið fyrir þeim, og foreldrarnir eins börn- unum; og þó að mikið andstreymi hefði verið báðum megin, þá fanst þeim það nú alt vera horfið og snúið í fögn- uð. Gamli maðurinn tók á handleggj- um sonar síns, og gladdist af því, hve sterkir þeir voru; og gamla konan strauk höndunum um jarpa hárið á dóttur sinni og kysti hana hvað eftir annað. ,,Já“, sagði hún; ,,það hlaut að vita á eitt- hvað gott, að tveir fuglar sungu svo glatt í björkinni í dag“. ,,Þá þekki eg“, sagði stúlkan; ,,það eru tveir englar í fuglslíki, sem hafa flogið á undan okkur alla leiðina og leiðbeint okkur; og nú gleðjast þeir með okkur af því, að við erum komin heim“. — ,,Komiðþið“, sagði drengurinn; ,,við skulum enn einu sinni heilsa björkinni og stjörnunni. Líttu á systir mín, þarna undir björkinni sofa systkin okkar. Ef það nú værum við, sem svæfum þarna undir græna leiðinu, og systkin okkar stæði hérna í okkar stað hjá leiðunum okkar, hvar værum við þá?“ ,,Þá væruð þið englar guðs á himn- um“, svaraði móðir þeirra blíðlega. ,,Nú veit eg nokkuð “, sagði stúlkan; ,,Englarnir í fuglslíki, sem fylgdu okkur alla leiðina og hafa boðað heimkomu okkar hér í björkinni í dag, það eru systkin okkar, sem sofa í gröfinni þarna. Það eru þau, sem altaf hvísluðu að okkur: Farið heim! Farið þið heim, til þess að hugga pabba og mömmu! Það eru þau, sem vísuðu okkur veg í óbygðunum, svo að við dóum ekki úr hungri, og bjuggu okkur hvílurúm úr mosa, svo að við gátum sofið vært, og sendu okkur bát við straumhörðu árnar, svo að við druknuðum ekki. Það voru líka þau, sem sögðu við okkur: ,,Þetta er björkin, og þetta er stjarnan, sem þið eruð að leita að“. Því guð hefir útvalið þau og sent þau til þess að hjálpa okkur. Þökk sé þeim, blessuð- um systkinunum okkar! og þökk sé þér, góði guð!“ ,,Já“, sagði drengurinn; ,,og líttu á, hve skært blessuð stjarnan skín gegn um lauf bjai karinnar! Nú erum við komirt heim; nú þurfum við ekki að fara lengra, systir mín“. ,,Börnin mín“, sagði gamli maðurinn; ,,líf mannsins hér á jörðu er ferðalag að eilífðarmarkinu. Haldið þið alt af áfram, hafið guð í hjörtum ykkar og markið himneska sífelt fyrir augum. Þið hélduð ótrauð áfram ferð ykkar undir leiðsögn englanna; þeir sé alt af förunautar ykkar! Þið stefnduð að björkinni; hún táknar ættjörð ykkar. Vinnið henni gagn og unnið henni meðan ykkur endist aldur! Þið stefnd- uð á stjörnuua; hún táknar eilífa lífið. Látið hana lýsa ykkur alla æfi!“ ,,Amen, það verði!“ sagði móðirin og börnin, og horfðu til himins. BREIDABLIK. Mánaðarrit til stuðnings íslenzkrí mennlng-. Fridrik J. Bergmann, ritstjórí. Heimili 259 Spence Strreet, Winnípeg. Telephone 6345. Olafur S Thorgeirsson, útgefandi. Heimili og afgreiðslustofa blað- sins 678 Sherbrooke Str., Winnipeg, Canada. Telephone 4342. Verð : Hver árg. 1 doll. Hvert eintak 10 cts. — Borgist fyrirfram. Prentsmidja Ólafs S. Tiiorgeirssonar.

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.