Breiðablik - 01.07.1908, Blaðsíða 1
BREIÐABLIK.
Mánaöarrit til stuðning’s íslenzkri menning.
FRIÐRIK J. BERGMANN
RITSTJÓRI
III. Ar.
JÚLI 1908.
Nr. 2.
AD SVEITAST BLÓDI.
Ú er komið á síð-
asta mánuð, áður
kosningar farafram
á fósturjörðu vorri.
io. september verð-
ur kosið til þings um alt land.
Stjórnarbarátta þjóðarinnar næsta
aldarfjórðung" verður að líkindum
að mjög" miklu leyti undir kosn-
ing"aúrslitum þessum komin.
Aldrei hefir alvaran verið jafn-
mikil og" nú. Áður hefir mönnum
oft fundist, að nokkurn vegfinn á
sama myndi standa, hver úrslit
yrði. Nú finst öllum, sem teflt
muni um hærra veðmál en nokkuru
sinni áður.
Betur og" betur komast menn í
skilning- um, að stjórnarbaráttan
er eigi leikur. Hún er háalvar-
legt mál. Hún er það í stórum
stíl, sem sjálfstæðisbarátta ein-
staklingsins er í smáum s'tíl.
Allrar orku til lífs og sálar þarf
hver maður að neyta til að veiða
sjálfstæður maður. Gef mérblett,
þar sem eg fái staðið, og eg skal
hreyfa veröldina, sagði spekingur-
inn gríski.
Lífsbarátta flestra manna miðar
til þess að ná slíkri fótfestu. Til
þess sveitast þeir blóði. Heimili,
sem enginn fær frá manni tekið,
veitir þessa fótfestu. Það er ein-
staklingnum skilyrði þess, að
hann fái notið sín. Þar er hann
konungur.
Skyldi heilli þjóð þá eigi vera
það fylsta lífsskilyrði að fá þessa
fótfestu, til að njóta sín? Skyldi
hún eigi þurfa að eignast heimili,
sem enginn fær frá henni tekið —
þar sem enginn annar á með að
segja henni, hvernig hún á að
sitja og standa? Heimili, þar sem
hún er konungur,—eigi ómynd-