Breiðablik - 01.07.1908, Side 5

Breiðablik - 01.07.1908, Side 5
BREIÐABLIK þeir ekkert, nema ástina til fósturjaröar- innar, sem þeir höföu orðiÖ að yfirgefa. í dag er 19. þjóðminningardagurinn, sem þeir halda, hvert árið eftir annað. Ávalt hefir þeim verið heitt um hjarta, er þeir hafa minst ættjarðar sinnar. En aldrei nokkurn þjóðminningardag hefir oss Vestur-íslendingum verið eins heitt um hjarta og í dag—það þori eg að fullyrða. Hver er ástæðan? Ástæðan er sú, að alt sem íslenzku nafni nefnist, bæði austan hafs og vestan, stendur nú á öndinni. Þegar vér hugs- um til ættjarðar vorrar í dag, finnum vér til þess, að fjöll og dalir, haf og hauður, fífill í túni, álfur í hól, tröll á tindi og landvættir allar — að eg ekki tala um mannfólkið, stendur á öndinni af þrá og eftirvæntingu. Vér heyrum hjartsláttinn. I stjórnarbaráttu þjóðar vorrar er nú komið að tæpasta vaðinu. Á elfarbakkanum stendur þjóðin hugsi og horfir yfir uni. Hinum megin fram- tíðarlandið — fullveðja, sjálfstæð þjóð, sem að öllu leyti á með sig sjálf og lýtur engis manns boði eða banni. En vaðið er hættulegt eins og Maríu- gerði í Eyjafjarðará—og mörg önnurvöð. Þar hafa margir druknað. Straumurinn ér þungur, sandbleyta nokkur, hylur undir bakkanum — og brotið vandratað. Er það vogandi? Fr eigi viturlegra að slá sér hér niður og fara ekki lengra? Oss koma ósjálfrátt í hug orð Þorsteins Erlingssonar: Og týsi þig yfir til framtíðarlands og finnist þú vel .tíeta staSið, þá láttu ekki skelfa þig leiðsög'u hans, sem leggur á tæpasta vaðið. Framtíðarlandið! Ætlar þú að láta þessa elfi aftra þér, íslenzka þjóð, frá að stíga þangað nokkuru sinni fæti? Það er eins og gengur. Leiðsögn er með ýmsu móti. Sumir segja: Þú ratar ekki brotið, verður föst í sandbleytu eða 2 I berst út í bylinn og undir bakkann. Hér hefir margur druknað. Aðrir segja: Hevr á endemi! Hér hafa margir komist yfir heilir á hófi, hundruð og þúsund fyrir hvern, sem druknað hefir. Það er tæpasta vaðið á allri leiðinni. En við leggjum út í — í drottins nafni! Hvað segja Vestur-íslendingar? Hver er leiðsögn þeirra? „Forfeður vorir lögðu á tæpasta vaðið, erþeirflúðu eignirog óðul fyrir ofríki Har- alds hárfagra, lögðu yfii um íslands ál, ,,reistu bygðir og bú í blómguðu dalanna skauti“, — reistu um leið allsherjarríki, meðan aðrar þjóðir voru í áþján og þektu eigi frelsið, nema að nafninu einu. ,,Vestur-íslendingar lögðu á tæpasta vaðið, er þeir slitu sig úr faðmi fóstur- jarðar sinnar, til þess að geta orðið sjálf- stæðir menn, fluttust til fjarlægrar heims- álfu og urpu sér inn í samkepnisstraum- inn með harðfengustu menningarþjóð heimsins. ,,Tæpasta vaðið varð forfeðrum vorum til blessunar. Án þess enginn Gunnar og enginn Njáll, enginn Sæmundur fróði og enginn Snorri Sturluson, enginn Þor- geir Ljósvetningagoði og enginn Einar Þveræringur. Tæpasta vaðið varð Vestur-íslending- um hamingju-vað. Með því að leggja út á það vað, fundu þeir sjálfa sig—fundu, að þeir voru jafnokar annarra — fundu ís- lendinginn og fengu trú á honum. Tæpasta vaðið verður ávalt hamingju- vað, ef farið er gætilega eftir brotinu. Hver sýndi þér það? Hver annar en sá, sem halda vill í hönd þér og leiða þig yfir? Leiðsögn Vestur-íslendinga er því ein- um rómi þessi: íslenzka þjóð, legg þú út á tæpasta vaðið. Lát þér eigi nægja neitt minna en fullkomna sjálfstæði. Full- veðja þjóð, sem ræður sér að öllu leyt sjálf—það er orðtakið—gunnfáninn, sem

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.