Breiðablik - 01.07.1908, Síða 2

Breiðablik - 01.07.1908, Síða 2
i8 BREIÐABLIK ugur, málamynda-konungur, held- ur fullveðja einvaldur, er engan á yfir höfði, nema herra himins og jarðar. Nú er aumingja þjóðin vor að sveitast blóði til að ná fótfestu í tölu þjóðanna í þessum skilningi. Það er henni skilyrði þess, að hún fái hreyft veröldina—lagt fram sinn litla skerf til heimsmenning- arinnar. Heyrið nú, allir þér sem sveizt hafið blóði til að verða sjálfstæðir menn! Viljið þér nú ekki verða samtaka og lyfta móður vorri upp í hásæti sjálfstæðrar, fullveðja drotningar, er engum lávarði lúti, — nema lávarði sannleikans sjálfum. Er eigi þess vert að sveitast blóði, svo hún fái stigið fæti upp á síðasta riðið ? I4. í„ MYRK LÍFSSKOÐAN. UMUM mönnum er gjarnt til að láta sér verða dimt fyrir augum. Dálítinn bjartan blett sjá þeir cring um sig. En þar fyrir utan liggur landið alt í myrkri. Osjald- an tala þeir eins og komið sé að dagsetri. Bráðum grúfi niðdimm nótt yfir öllu,—nema þá sjálfum þeim og þeim fáu, sem eins kunna að hugsa og þeir. Þessi myrka lífsskoðan kemur helzt fram hjá þeim mönnum, sem S hárvissir eru um, að þeirra skoð- anir og sannfæring sé hið eina rétta. Þeir sjái ljós sannleikans kring um sig. En menn, sem hafi aðrar skoðanir, sjái það annaðhvort alls ekki, eða eigi nema svolitla glætu. Kring um þá annað hvort hálfdimt eða nið- dimt. Þótt undarlegt sé, hefir þessi óumræðilega myrka lífsskoðan helzt komið fram í sambandi við trúarbrögðin og það einmitt krist- indóminn sjálfan. í raun réttri felur kristindóm- urinn í sér hina björtustu lífs- skoðan, sem mennirnir hafa komið auga á. Hvað er bjart- sýnna en kærleikurinn, sem sigrar alt, þolir alt, umber alt—fórnar sjálfum sér, kveikir ljós í myrkri, seilist æ lengra og lengra, þangað til hann heldur öllu í sínum bjarta faðmi ? Enginn hefir litið jafn-björtum augum á tilveruna og frelsari mannan na. En út af kenningu hans hafa myndast ýmsar frábrugðnar skoð- anir. Menn hafa gjört sér ýmsa grein fyrir sama sannleiksatriði. Og þá hefir hver þózt svo viss um að hafa sannleikann allan sín meg- in,að hann hefir ekkert getað séð, nema villu og svartnætti hjá hin- um. Seint yrði sá búinn, sem alt ætlaði að telja. Fáein dæmi má benda á til skilningsauka. Snemma á öldum klofnaði kristn-

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.