Breiðablik - 01.07.1908, Síða 15

Breiðablik - 01.07.1908, Síða 15
BREIÐABLIK 3i Nóttina eftir drej^mdi Ólaf konung' ljót- an draum. Þaö, sem hann sá fyrir augfum sér, var ekki jörðin, heldur hafsbotninn. Það var grá og grænleit mörk og á henni stóð vatn, margra faðma dýpi. Fiska sá liann sveima í ránserindum, skip sigia fram hjá uppi á mararfletinum eins og dökkleit ský og sólarljósið bar daufa birtu, eins og fölleitur máni. Þá kom konan, er hann hafði séö í kirkjudýrum, gangandi eftir hafsbotnin- um. Hún var álút eins og áður og föt hennar slitin, eins og þegar fundum bar saman áður, og andlit hennar fult hug- arraun. En þegar hún gekk áfram á hafsbotni, greindust vötnin sundur fyrir henni. Það var eins og þau hyrfi frá af óumræðilegri lotningu og myndaði súlur og hvelfingu, kring um hana, svo það var eins og hún gengi í dýrlegu musteri. Alt í einu sá konungur, að vatnið, sem hvelfdist yfir konuna, tók að skifta litum. Fyrst urðu súlur og hvelfingar ljósrauðar, en fljótt varð liturinn dekkri. Alt hafið varð rautt hringinn í kring eins og það hefði breyzt í blóð. Á hafsbotni þar sem konan gekk, sá konungur brotin sverð og örvar, brostna boga og spjót. Fyrst voru ekki mikil brögð að þessu, en eftir því sem hún gekk lengur í rauðu vatninu, fóru hrúg- urnar af þessu vaxandi Óttasleginn varð konungur þess var, að konan veik til hliðar, til að stíga ekki á dauðan mann, sem lá flatur í grænu þanginu. Maðurinn var klæddur brynju, hafði sverð í hönd og sár mikið í höfði. Konungi sýndist konan loka augum, svo hún sæi ekki. Hún var á ferð að ákveðnu markmiði, án þess að tefja eða hika. En hann, sem var að dreyma, gat eigi snúið augum sínum brott. Hafsbotninn sá hann þakinn brotnum skipum. Þung skipsakkeri sá hann, gildir kaðlar lágu í bugðum einsogsnák- ar, skip með brotnum borðum, gylt dreka- höfuð, er setið höfðu í stafni, blíndu á hann rauðum, ægilegum augum. ,,Vita vildi eg hver það er, sem átt hefir í orustu og verið valdur að allri þessari eyðilegging“, hugsaði sá, sem drauminn dreymdi. Hvarvetna sá hann látna menn. Þeir héngu í hliðum skipanna eða höfðu sokk- ið niður í grænt þangið. En hann gaf sér ekki tóm til að veita þeim eftirtekt, því augu hans urðu að fylgja konunri, sem stöðugt hélt göngu sinni áfram. Loks sá konungur hana nema staðar yfir látnum manni. Hann var búinn rauðum kyrtli, hafði fagran hjálmáhöfði, skjöld á armi og hélt á beru sverði í hendi. Konan beygði sig yfir hann og hvíslaði að honum eins og vildi hún ekki vekja hann af svefni: ,, . lafur konungur, Ólaf- ur konungur!“ Þá sá hann, sem drauminn dreymdi, að maðurinn á hafsbotni var hann sjálfur. Hann fann það greinilega, að hann var þessi látni maður. Þegar látni maðurinn hreyfði sig ekki, kraup konan við hlið hans og hvíslaði honum í eyra: ,,Nú hefir Sigríður stórráða sent her- skipaflota sinn gegn þér og hefnt sín. Iðrast þú þess, sem þú hefir gjört, Ólafur konungur?“ Og aftur spurði hún: ,,Nú líður þú beiskju dauðans, af því þú kaustþérmig, eti ekki Sigríði stórráðu. Iðrast þú þess? Iðrast þú þess?“ Þá leit hinn látni loks upp og konan halp honum á fætur. Hann studdist við öxl hennar og hægt gekk hún brott með hann. Aftur sá Ólafur konungur hana á gangi, — á gangi nótt og dag yfir lög og láð. Síðast sá hann, að þau voru lengra kom- in en skýin og hærra en stjörnurnar. Nú komu þau inn í garð, þar sem jörð- in var skínandi björt og blómin voru hrein eins og daggardropar. ,,Konungur sá, að þegar konan kom inn í garðinn, bar hún höfuðið hátt og var léttari í spori. Þegar þau komu lengra inn, tók að lýsa af fötum hennar. Hann sá, að þau lögðust sjálfkrafa gull- bryddingum og lituðust regnboga-litum.

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.