Breiðablik - 01.11.1908, Blaðsíða 2

Breiðablik - 01.11.1908, Blaðsíða 2
82 BREIÐABLIK mentasög'u Gyðinga. Af andlegu lífi Gyðinga-þjóðarinnar eru allar bækur biblíunnar runnar, bæði gamla og nýja testamentið. Bæk- ur þessar hljóta að eiga einhverja sögu eins og aðrar bækur frá gömlum tímum. Sé þær eftir þá höfunda, sem menn hafa haldið, hlýtur að vera hægt að finna sönnur fyrir því. Sé eigfi hægt að finna sönnur fyrir því, hljóta þær að vera eftir aðra höfunda. Og þá hverja ? Af hverjum er hver bók rituð ? A hvaða öld ? I hverjum tilgangi? Þetta eru spurningarnar, sem biblíufræðingarnir eru að leit- ast við að svara. Eins og tek- ið var fram, eru þeir að leitast við að fá yfirlit yfir bókmentasögu Gyðinga; þeir vilja ekki láta hana byggjast á munnmælum einumog gömlum sögum, er gengið hafa í arf, heldur fá eins fastan grund- völl undir fætur og menn hafa, þegar ræða skal um tilorðning, aldur og ætlunarverk annarra bóka, sem fram hafa komið í heiminum. Bókmentasaga nýja testament- isins er mönnum miklu betur kunn og hefir lengi verið. Þar er auð- veldara við alt að fást. Það bgg- ur nær oss í tímanum, enda verið veitt athygli miklu meiri, sökum þess, hve nýja testamentið skipar háan sess í hugfum manna. Gamla testamentið er miklu tor- veldara viðfangs. Það liggur oss svo miklu fjær að því, er tíma og tildrög snertir. Menn hafa þar yfirleitt numið staðar við gamlar staðhæfingar um hverja bók fram að síðustu tíð. Það hefir verið á- litið sjálfsagt, að Móse-bækurnar væri bækur eftir Móse, Jósúa-bók- in eftir Jósúa og Daníels-bók eftir spámanninn Daníel o. s. frv. Biblíurannsóknin nýja er nú í því fólgin að langrnestu leyti að rannsaka, hvort sé nú svo sem menn hafa haldið eða ekki. Hún hefir komist að nokkuð annarri niðurstöðu í þessum efnum en þeirri, sem gamlar erfisagnir hafa haldið við í hugum manna. Sú niðurstaða er í sem allra styztu máli þessi : Bókmentum gamla testamentis- ins hefir frágamalli tíð verið skift í þrent: Lögmál, spámannarit, skáldskaparrit. Til lögmáls töld- ust sögulegu bækurnar allar. En af þeim þóttu Móse-bækur og Jó- súabók merkastar. Með þeim hetði bókmentir Gyðinga byrjað. Þess- ar bækur væri elztar, enda standa þær fyrst í safninu. Nú hafa menn komist að þeirri niðurstöðu, að spámannaritin sé elzt. Með þeim hafi eiginlega bókmentaöld Gyðinga hafist,þó til hafi verið áður fáein drögtil skáld- skapar, sagnaritunar og laga. Flokkaröðin verður þá þessi : Spámenn, lögmál, skáldskaparrit. Samkvæmt þessu verða spá- mennirnir elztu rithöfundarnir með Gyðingum, sem vér þekkjum. Starfsemi þeirra hefst á 8. öld fyrir Kr. og nær yfir þriggja alda bil eða niður á 5. öld ofanverða og er Maleakí síðastur,um 4Ó0 f.Kr., að Daníel frátöldum. Svokallað Móse-lögmál (eða fimm bækur Móse og Jósúa-bók) álíta menn eigi á einum tíma til orðið, heldur sé þar fleiri rit flétt- uð saman í eina heild á líkan hátt og píslarsaga frelsarans hefir verið fléttuð saman ettir öllum guð- spjallamönnunum fjórum í hand- bók presta og er sú samsteypta frá-

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.