Breiðablik - 01.01.1912, Síða 5

Breiðablik - 01.01.1912, Síða 5
BREIÐABLIK leyti hefi eg aldrei haft að föruneyti. Var auösætt a8 uppeldið hafði veriö gott og eg spurði sjálfan mig, hvort þaö heföi oröið jafn-gott, ef þessi ungi maÖur hefði verið borinn og barnfæddur vestan hafs. Er skipið var komið út af höfninni, var fyrsti viðburðurinn sá, að hvert Marconi- skeytiö kom á fætur öðru, frá öðru skipi, er lagt hafði af stað litlu fyrr. Þau skeyti voru eigi um nein stórmál. Þau voru ekki um nein stórvægileg tíðindi eða við- skitti milii þjóða. Síður en svo. Þó komu þau eins ótt og skæða-drífa félli. Það voru konur tvær, sín með hverju skipi, sem skiftust þessum skeytum á. Tilefn- ið var, að þeim hafði báðum verið sendir blómvendir af vinum í borginni, en þeir farist á víxl; sá, sem fara átti til Mrs. A. fór til Mrs. B. og svo vice versa. Ut af þessu merkismáli spunnust skeyta- sendingar þessar. Fyrst hugsaði eg: hve hégóminn er mikill í heiminum. En þar næst hugsaði eg lengi um þessa dásam- legu uppt'undning nútímans, sem að vissu leyti er furðulegust þeirra allra. Og þá ekki sízt um hitt, að menn eru farnir að láta sér skiljast, aö nákvæmlega sama undrið eigi sér staö í andans heimi. Þar sé líka um þráðlausar skeytasendingar að ræða úr einum mannshuga til annars. Nú erþaö alment viöurkent mál,að sálarfræði- rannsóknir vorra tíma hafi bætt inn í þekkingarkerfi mannanna því mikilsverða atriði, sem táknaö er með orðinu t e 1 e- pathy — fjarskynjan. Það er í því fólgið,að hugsanaflutningur verði á milli, án þess eiginlega að unt sé að hugsa sér nokkurt flutningsfæri. Á þenna hátt getur það boriö við, að þú segir einhverjum vini þínum í Ame- ríku eða á íslandi leyndarmál. Og áður varir er þaö flogið inn í huga einhvers í Ástralíu eða Kína eða Parísarborg, án þess sá, er þú talaðir við, hafi ferðast hið allra minsta. Það er eins konar samúð í fjarska. Enginn skilur. Hvert getur getur flutningsfærið verið? Er það loftið, >17 eins og þegar tónkvisl er snortin? Eða er það Ijósvakinn, eins og þar sem um segulaflið er að ræða? Eða er það eitt- hvað, sem ekkert á skiltvið efnisheiminn, algerlega sálarlegs eðlis? Eöa er sam- bandinu milli andans og efnisins alt ann- an veg farið en menn hafa gert sér í hug- arlund og takmörkin annað hvort engin eða þá mjög óljós? Um þetta er engum manni unt að segja, enn sem komið er. Miklu meira verða menn að vita, áður þeim spurningum verður svarað. Það bendir oss á heilarálfur í þekkingar heim- inum, sem enn eru öldungis ónumið land. En um leið á það, hve óumræðilega líkt lögmálið í andans heimi virðist vera nátt- úrulögmálinu í efnisheiminum. Hve ynd- islegt verður að vera uppi -á þeirri öld, er jafn-mikinn gaum gefurandans heimi eða hinni ósýnilegu hlið tilverunnar, og sú öld, er vér nú erum uppi á, hefir gefiö efnisheiminum, Hvílík dýrð uppgötvan- anna! Hvílíkan fögnuð mannssálin hlýt- ur aö eiga framundan, er hún lærir betur að þekkja sjálfa sig. Skipiö hét Carmania og er eitt af mörg- um skipum C u n a r d-línunnar. Það fer á sjö dögum yfir pollinn. Hraðskreið- ustu skipin fara frá New-York og eru eign þessarrar línu. Þau stærstu og fljót- ustu eru Mauritania og Lusitania. Þau fara á fimm dögum. Fremur var mér ráðið frá aö taka fari með þeim, nema ef eg væri að flýta mér mjög mikið. Hrist- ingurinn væri svo mikill af vélunum, að lítið væri betri en mikið hatrót á miklu minna skipi. Hvað satt er í, veit eg ekki. En hitt veit eg, að aldrei hefir betur um mig farið á hafinu en þetta skifti. Alt var frámunalega þægilegt og rúmgolt á SKÍpinu. Og borðhaldið sérlega gott, enda er línan orðlögð fyrir. En eitt þótti mér að. Eg tek það fram, af því eg býst við, aö flestum öðrum hafi fundist aðdá- anleg nærgætni. Einn svertingi var í förinni. Það var snyrtimaður hið ytra á borð við allan þorrann, virtist mér. En

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.