Breiðablik - 01.01.1912, Qupperneq 9

Breiðablik - 01.01.1912, Qupperneq 9
BREIÐABLIK I 2 I hátigriar sinnar, sem hér setnr frjálsræBi guðs og gæzku takmörk. Hátign (dig- nitas) guðs heimtar, að maöurinn annað- hvort bæti tyrir brot sín eða líði hegn- ingu fyrir þau. Hið s í ð a r a getur ekki orðið, því að þá mundi alt mannkynið fyrirfarast, sem aftur rækist tilfinnanlega á það, sem var tiigangur guðs með sköp- un mannanna. En hann á, eftir skoðun Anselmusar, að hafa verið sá, að fylla það rúm á himnum, sem autt sé síðan er englarnir syndguðu. Þessum tilgangi sköpunarinnar yrði ekki náð ef guð léti verðskuldaða hegning ganga yfir menn- ina, en hinsvegar væri það ósamboðið vegsemd guðs, ef þeim tilgangi yrði ekki náð. Hvað fyrra atrifið snertir, að bæta fyrir brotin, þá leiði af sjálfu sér, að það geti mennirnir ekki, því að annars vegar séu þeir þegar fyrir í skuld við guð um alt það gott, sem þeir geti í té látið, en hins vegar sé skuldin við guð óendankg, með því að jafnvel hver hin minsta synd hafi svo sem móðgun við guð algjört sak- næmi í för með sér. Til þess því að kröf- um guðs hátignar verði fullnægt án þess að það komi í bág við áður nefndan til- gang hans með sköpun mannanna, verð- ur guð sjálfur að inna af hendi þá full- nægjugjörð, sem hátign hans heimtar. En það gjörir hann með því að senda guðmanninn í heiminn þ. e. með því sjálf- ur að gjörast maður. Og þetta er nauð- synlegt af tveim ástæðum: Annars veg- ar er einungis sá, sem sjálfur er guð, þess megnugur að láta í té fullnægju- gjörð, sem að mæti taki fram ,,öllu því sem til er fyrir utan guð“ — en svo mik- il er skuldin! — og hins vegar getur að eins maður gjört fullnægju fyrir syndir mannanna. Af því leiðir að fullnægju- gjörðin verður ekki með öðrum hætti í té látin, en þeim, að guð sjálfur gjörist maður í Jesú Kristi. En nú nægði ekki starfhlýðni guðmannsins til fullnægju- gjörðar, því að um hana var hann sem maður guði skyldugur. Þess vegna varð hann að deyja og það frjálsum og fúsum vilja. Með dauða sínum á krossinum hefir guðmaðurinn fullnægju gjört fyrir syndir mannanna. En þegar nú guðmaðurinn sem vegna syndleysis síns ekki þurfti að deyja, af takmarkalausri elsku sinni legg- ur sitt heilaga og fiekklausa líf í sölurnar svo sem friðþægingarfórn fyrir syndir mannanna, þá er slík lífs-fórn óendanlega miklu meira verð en öll veröldin og því ekki að eins nægileg til bóta fyrir syndir allra manna, heldur og svo mikils virði að guð hlýtur að endurgjalda hana. En hér myndast nýr árekstur. Guðmaðurinn annars vegar á alla hluti og þarf því einskis við,og þá heldur ekki launa. Guð hins vegar getur hátignar sinnar vegna ekki látið skuldina ógreidda. Fram úr þessu ræðst á þá leið,að guð í speki sinni ályktar, að verðleika Krists skuli tilreikna mönnunum þ. e. öllum þeim sem taka sér til fyrirmyndar réttlæti það, sem guðs sonur sýndi með því að leggja lífið í söl- urnar fyrir oss. Hér höfum vér þá öll meginatriði end- urlausnarlærdóms kirkjunnar fyrir oss. Frá Anselm erkibiskupi er hann til vor kominn í þeirri mynd, sem vér eigum hann nú— í öllum aðaldráttunum. Hinir miklu siðbótamenn 16. aldarinn- ar voru svo mjög börn miðaldarkirkjunn- ar, að þeim voru engir sýnilegir erfiöleik- ar á að tileinka sér kenningu þessa í meginatriðunum. Breytingarnar, sem þeir gjöra á henni eru óverulegar og snerta aðallega hinn ytri búning eða útfærslu hugsunarinnar hjá skólaspek- ingnum mikla. Þeir setja heilagleika guðs og réttlæti í stað hátignar guðs. Þeir skoða friðþæginguna fremur sem fórn en sem móðgunarbætur eftir laga- legum mælikvarða. Þeir gjöra enga grein milli fullnægjugjörðar og refsingar; Kristur hefir ekki að eins fullnægju gjört ir.eð dauða sínum, heldur og liðið refs- ingu, meira að segja liðið kvalir helvítis, er honum fanst hann á krossinum vera

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.