Breiðablik - 01.01.1912, Qupperneq 10

Breiðablik - 01.01.1912, Qupperneq 10
122 BREIÐABLIK yfirgefinn af guöi. Og loks þaö seni gjörir dauöa Krists svo mikilvægan og ábrifaríkan er ekki það eitt, að hann líö- ur saklaus, heldur og að hant) liður af takmarkalausri sonar-hlýðni, sem hann að vísu hafði auðsýnt í lífi sínu öllu, en nær sínu hæsta stígi í dauðanum ákross- inum. Hitt er hvorki hinum miklu sið- bótarfrömuðum né sporgöngumönnum þeirra, lútersku trúfræðingunum á 16. og 17. öld, neitt rannsóknarefni, hvort þessi kirkjulega erfðaketining sé fyllilega sam- hljóða ritningunni eða öllu heldur s' oðun nýja testamentisins á dauða frelsarans. Og verulega verður það ekki rannsóknar- efni guðfræðinganna fyr en kemur fram á næstliðna öld og meira að segja seinni hluta hennar. Þetta er líka skiljanlegt. Meðan inn- blásturskenningin gamla var enn í fullu gildi og alment viðurkend hlaut svo að virðast sem hér væri um fullkomna sam- hljóðan við ritninguna að ræða. Því að samkvæmt þessari innblástutskenningu bar að skoða ritninguna sem eina sam- stæða heild, sem á hverri blaðsíðu birti oss jafnfullkomna guðlega opinberun án tillits til mismunandi aldurs hinna ein- stöku rita. En frá því augnabliki sem menn hætta að lesa ritninguna með gler- augum þeirrar kenningar, horfir alt þeg- ar í stað öðruvísi við. Menn fara að koma auga á all-greinilegan þróunarferil í opinberunarsögunni og mönnum tekur að skiljast, að ekki tjáir lengur að gjöra jafn-hátt undir höfði því sem tilheyrir fyrsta skeiði þessa þróunarferlls og 'ninu síðasta. Mönnum skilst að eins og ekki má blanda hugmyndum prestaritsins svo nefnda, um nauðsyn og áhrif helgisiða- legra friðþægingarmeðala, inn í skoðanir spámanna gamlatestamentisins á skilyrð- unum fyrir því að öðlast fyrirgefning synda sinna, svo má enn þá miklu síður láta þessar hugmyndir prestaritsins móta skoðanir vorar á endurlausnarverki Jesú Krists. Og innan nýja testamentisins sjálfs verður ekki síður að greina hvað frá öðru, hugsanir Jesú sjálfs, er birta oss guðsopinberunina á sínu hæsta stigi, og hins vegar tilraunir hinna postullegu höfunda til að gjöra sér grein fyrir sálu- hjálplegri þýðingu dauða Krisls. (Framhald). HRINGUR FISKIMANNSINS. Eftir SELMU LAGERLÖF. r T stjórnartíð Gradenigo hertoga átti gamall fiskimaður heima í Feneyja- borg, Cecco að nafni, Hann var krafta- rumur og hraustmenni á þeim aldri; en á seinni árum var hann þó hættur vinnu og lét sonu sína tvo, er hann átti, sjá fyrir sér. Hann var mjög upp með með sér af sona eigninni, og elskaði þá,o signore! Eins og hann elskaði þá! En það hafði atvikast svo, að hann hafði verið nærri einn um uppeldi þeirra. Móðir þeirra hafði snemma dáið og Cecco varð einn að ala önn fyrir þeim. Föt og fæði hafði hann séð um handa þeimjhann hafði setið með nál og spotta í bátnum og bætt og staglað. Ekkert hafði hann grenslast eftir, hvort hlegið væri að hon- um fyrir þetta. Aleinn hafði hann líka kent þeim alt, sem þeir þurftu að vita. Hann hafði gert þá að duglegum sjó- mönnum og kent þeim að bera lotningu fyrir guði og San Marco. ,,Minnist þess“, sagði hann við þá, ,,að aldrei, geeti Feneyjaborg haldist við

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.