Frækorn


Frækorn - 27.03.1907, Blaðsíða 7

Frækorn - 27.03.1907, Blaðsíða 7
FRÆKORN 91 að 7 árum líðnum (þar frá) þá yrðu »aldamót«. Sennilega álíta flestir menn báðar þessar spár markleysu. En hjátrúar- fullir menn geta sumir hverjir gert »númer« út af því. Án þess að dæma neitt um þær skulum vér taka það fram, að um heimsenda hefir Kristur sagt þessi skýru orð: »En þann dag og tima veit enginn fyrir*. »Mannsins sonur mun koma þegar þér sízt ætlið«. Matt. 24, 36. 44. »Himinn og jörð mun forganga, en mín orð munu aldrei forganga. »En þann dag eður stund veit enginn«. Mark. 13, 31. 32. »Pað er ekki yðar að vita tiðir eða tima, sem faðirinn hefir sett i sjálfs síns vald«. Postg. 1, 7. Hins vegar ítrekar orðið, að dagur drottins er nálægur, og við endalok hinnar helgu opinberunar segir herra tímans og eilífðarinnar: >Sá, sem þetta vottar, segir: já, egkem skfótt«. Op. 22, 20. Verið því viðbúnir! F*ví mannsins sonur kemur ekki á þeim tíma, sem nokkur maður segir. En hann kemur skjótt. Og hafi það verið satt, þegar sjáarinn heyrði þau orð á eyjunni Pat- mus, þá eru þau engu að síður sönn í dag. Hugsanir. Pá sit eg einn og halla hönd að kinn og hugsjón leiði æviferil minn, mighrygðin slær, því harla margt þar er sem harðan dóm og sakir á mig ber. Og það var- sælum sumardegi á er sólarljósið skein mér fyrst á brá, þá fold var reifð í unað, yl og skrúð og upp mót sólu horfðu blómin prúð. Og tíminn leið, — og vetrar höndin hörð í harðan klaka greipti blóm og svörð. Já, tíminn leið, — og Ijósbjört sumartíð því lífið gaf, seni deyddi vetrarhríð. Já, þannig alt er umbreytingu háð þó eitt ei breytist: drottins mikla náð, og sérhvað lúta verður valdi hans — hans vilji’ er ofar hyggju’ og ráði manns. Mig langar, guð, að ganga’ á vegum þín, svo gæfan mætti signa sporin mín, og þreyttur síðast falla’ í faðminn þinn nær feigðargustur leikur mérumkinn. T. O. 4. Hvildardagur - Sunnudagur. (Aðsent.) Hvíldardagurinn er ætlaður og tilsettur af guði, mönnum og skepnum til hvíldar, ánægju og blessunar. En hvernig notum vér kristnir menn hinn eina hvíldardag vikunnar, sem vér að nafninu til höldum helgan? Pað virðist að helst til mikið kæruleysi eigi sér stað hjá ærið mörgum með van- brúkun hans. Pað er orðið víða, að flest dagleg störf, hverju nafni er nefnast, eru ekki síður unnin á sunnudögum en hina dagana. Parf þetta nú endilega að eiga sér stað? Flest fólk þykist fullþreytt eftir erfiði vikunnar einkum í sveitunum á sumrin, meðan sláttur stendur yfir, og er það von, því það er erfiður starfstími bæði fyrir menn og skepnur. Það er auðvitað ekki takandi til þess, þó eitthvað lítilfjörlegt sé gjört, ef endi- lega nauðsyn krefði þess, en alt, hvað meira er gjört, er ófyrirgefanlegt kæruleysi og lýsir mjög mikilli vanþóknun gagn- vart deginum.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.