Alþýðublaðið - 11.05.1963, Side 4

Alþýðublaðið - 11.05.1963, Side 4
Kópavogsbúar - Kópavogsbúar - Kópavogsbúar Almennur kjósendafundur verður haldinn í Félagsheimilinu að Auðbrekku 50 í dag, laugardaginn 11. anaí, og hefet kl. 4 e. h. Ræðumenn: Stefán Júlíusson, rithöfundur, Ásgeir Jóhannesson, fulltrúi, Eyjólfur Sigurðsson, prent- ari, Hclgi Sæmundsson, formaður Menntamálaráðs. Ásgeir Jóhannessou Eyjólfur Sigurðsson Heigi Sæmundsson Höröur Ingólfsson Fundarstjóri: Hörður Ingólfsson, kennari. Frjálsar umræður að framsoguræðum loknum. — Kópavogsbúar eru hvattir til að f jölmenna. SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA. Hafnfiröingar - Hafnfiröingar - Hafnfirðingar Almennur kjósendafundur í í verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Strandgötu á morgun, sunnud. 12. maí, og hefst kl. 4 e. h. Í Ræður flytja: Stefán Júlíusson, rithöfundur, Hörður Zophaniasson, kennari, Sigurður Guðmundsson, 1 framkvæmdastjóri og Karl Steinar Guðnason, kennari. Stefán Júlíusson Yngvi R. Baldvinsson Karl Steinar Guðnason Sigurður Guðmundsson Fundarstjóri: Yngvi Rafn Baldvinsson, sundhallarstjóri. Frjálsar umræður að framsöguræðiun loknum. Hafnfirðingar! Fjölmennið á fundinn og mætið stundvíslega. SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA. INGIGERÐUR 8RYNJÓLFSDÓTTIR Framh. af 2. síðu Ragnavs, hér í Reykjavík, en á Fellsmúla á sumrum hjá séra Hannesi Guð'mundssyni, sem nú er prestur þar. Mun sjaldgæft, að sami maður eða kona veiti sömu fjölskyldu jafn langvarandi þjón- ustu og Ingigerður hefur gert. Af hinu stutta yfirliti, sem hér hefur verið skráð, sést, að líf Ingigerðar liefur ekki verið marg- brotið eða viðburðaríkt, en ekki er það sama sem að segja, að það hafi . verið snautt að innihaldi. Ég held, að Gerða (eins og hún var kölluð af kunningjum sínum) hafi fundið meiri hamingju og lífsfyllingu í sinni kyrrlátu og staðbundnu þjón- ustu en margir aðrir í fjölbreytt- ara lífi og starfi og frjálsari verka- hring, enda var hún engin yfir- borðsmanneskja eða fiðrildissál. Skapgerð hennar var heil og traust. Að eðlisfari mun hún hafa verið dálítið íhaldssöm, en heil- brigð skynsemi var henni í blóð borin, og á örlagastundum var hún æðrulaus. Hún var híbýlaprúð kona og gestglöð, enda kom það sér betur, því að um nokkurra ára skeið var hiin ráðskona þeirra feðga, séra Ófeigs og séra Ragn- ars á Fellsmúla, en þar var gest- koma mikil og mörgu að sinna innanhúss, bæði sumar og vetur. Um trúarskoðanir Gerðu vissi ég aldrei mikið. Hún var þögul í þeim efnum. Hygg ég, að hún hafi verið trúhneigð, en engar öfgar aðhyllt- ist hún í trúarefnum eða tilfinn- ingaýkjur, enda var hún of heil- brigð kona til þess. Ég hygg, að þá sé merkileg ör- lagastund í lífi einstaklingsins, er hann sannfærist um það, að ham- ingjunnar sé ekki að leita á veg- um þröngrar sjálfshyggju, heldur í göfugu starfi fyrir aðra, í sjálf- gleymi og fórn. Sem betur fer eru noitkrir menn og konur, sem virð- ast vita þetta af eðlishvöt sinni og haga sér samkvæmt því. Venju- lega er þetta fólk þó heldur fáort um þennan mikla sannleika. Þetta er of sjálfsagt til þess að um það þui-fi að hafa mörg orð. Gerða til- heyrði þessum flokki manna, en mundi þó aldrei hafa viðurkennt það sjálf. Til þess var liún of lítil- lát. Að lokum vil ég flytja séra Hannesi Guðmundssyni, sem nú er prestur á Fellsmula, einlægar þakkir fyrir það, live vel hann reyndist Gerðu síðustu ár hennar, þegar ævidegi hennar var tekið að halla og kvöldskuggar ýmislegir sóttu að henni. Var þar sannur „guðsmaður” að verki. Ennfrem- ur vil ég þakka frú Önnu Krist- jánsdóttur fyrir þann góða hlut, sem hún átti í því, að gera ævi- kvöld Gerðu friðsælt, hlýtt og bjart. Og mörgum öðrum vil ég þakka, þó að ég nefni ekki nöfn þeirra allra. En ekki kemst ég hjá því að minnast yfirlækna og starfs liðs á Vífilsstöðum í þessu sam- bandi, því að þar naut Gerða frá bærrar aðhlynningar og viðmóts, svo sem bezt varð á kosið. Nú er útför Ingigerðar Brynj- ólfsdóttur gerð að Skarði í Lands sveit í dag, 11. maí 1963, en þá liefði hún orðið 85 ára, ef henns hefði orðið lífs auðið. Líkamsteif- um hennar er búlnn hvílustaður á afmælisdegi hennar, og afmælis- gleði hennar rennur nú saman við upprisugleði á nýju tilverusviði, og ég trúi því, að hamingja henn- 'ar sé mikil. Grctar Fells. 4 11. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.