Alþýðublaðið - 11.05.1963, Qupperneq 5
Þefiar Tíminn
treysti GuíVmundi í.
Höfuðháttur í kosningabar
áttu Framsóknarmanna eru
árásir þeirra á Guðmnnd í.
Guðmundsson utanríkisráð-
herra og viðleitni Tímans til
að vekja tortryggni í garð
hans.
★
Sú var tíðin, að Tírninn
og Framsóknarmenn treystu
Guðmundi í. og tötdu hann
verðskulda allt annað en ó-
hróður fyrir starf hans að i
Iandhelgismálinu. Þetta kom I
bezt fram í dálkinum „Skrif-
að og skrafað“ í Tímanum
7. september 1958, þar stóð
þá:
„Fyrir málstað' ís’.anrts ei
það ómetanlegur sigur, að
allar viðkomandi þjóftir hafa
beint og óbeint viínrkennt
nýju fiskveiðilandl.elgina,
nema Bretar, þótt margar
hverjar hefðu mótinælt
henni áður. Þetta er mikill
sigur fyrir Guðmund í. Guð-
mundsson utanríkisráö-
herra, sem hefur unnið að
því í sumar, ásamt starfs-
mönnum utanríkisþjónust-
unnar, að kynna öörum þjóð
um útfærsluna. Árangur af
þessu starfi hefur vissulega
orðið mikilvægur, þó ekki
tækist. að sigrast á hinum
brezka þráa.“
★
Nokkru síðar segir í sömu
grein:
„Þennan árangur af starfi
utanríkisráðherira og sam-
verkamanna hans ber vissu-
lega að meta og viðurkenn?..
Svo mikinn árangur hefur
starf þetta borið, að utanrík-
isráðherra verðskuldar allt
annað en að vera borinn -
hróðri og röngum sök <m i
sambandi við þetta m il. 1
Svona var þetta 1958. Þá
hafði Framsóknarflokkurinn
forustu rnn ríkisst/.rn og bar
fyllsta traust til Guömv'^ar
í., sem var utanríkisráðherra
þeirrar stjórnar. Tíminn
varði Guðmund fyrir árásum
og tilraunum til tortryggni.
★
Nú er Framsóknarflokkur
inn utan stjórnar, en G il'-
mundur er enn utaríkisráð-
herra og stefna hans er hin
sama og fyrr. En nú gengur
Tíminn fram fyrir skjöldu í
árásum á Guðmund og beit
ir öllum mætti sínum til
að reyna að gera hann tor-
tryggilegan.
Hvort skyldi meira mark
lakandi á afstöðu Tímans
til Guðmundar í., þegar
Framsóknarmenn báru á-
byrgð á stjórn landsins —
eða þegar þeir eru ábyrgða/-
lausir síjórnarandstæðingar?
BANN
á byggingarfrairíkvæmdum.
Af gefnu tilefni skal það skýrt tekið fram, að bann er Iagt
við öllum byggihgarframkvæmdum í Vatnsendalandi —
sem og annars staðar innan lögsagnarumdæmis Kópavogs-
kaupstaðar, nema að fengnu samþykki byggingarnefndar
kaupstaðarins.
Ekki verður leyft að tengja hús byggð án leyfis, við raf-
veitukerfið.
Þá skal vakin athygli á því, að slík hús er heimilt að fjar-
lægja á kostnað eiganda.
Kópavogi, 8. maí 1963
Bæjarstjórinn.
Aðalfundur
LOFTLEIÐA H.F. verður haldinn á annarri hæð Oddfellow
hussins föstudaginn 14. júní n.k. Fundurinn hefst kl. 2. e.h.
D A G S K R Á
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Hluthafar eru vinsamlega beðnir að vitja atkvæðaseðla
sinna í aðalskrifsofu félagsins, Reykjanesbraut 6, fimmtu
daginn 13. júní n.k. kl. 9—5 e. h.
Stjórn LOFTLEIÐA H.F.
ögtak
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangegnum
úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyrir-
vara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftir
töldum gjöldum:
Bifreiðaskatti, skoðunargjaldi af bifreiðum og tryggingar-
iðgjaldi ökumanna bifreiða fyrir árið 1962, áföllnum og ó-
greiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, gjöldum af inn-
lendum tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi
til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbygging-
um, söluskatti 1. ársfjórðungs 1963 og hækkunum á sölu-
skatti á söluskatti eldri timabila, lesta- og vita- og skoðun
argjalda af skipum, svo og tryggingaiðgjöldum af skips-
höfnum ásamt skráningargjöldum.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 10. maí 1963.
Kr. Kristjánsson.
Kosningaskrifstofur
ins é
Reykjavík:
Kosningaskrifstofan er í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, símar 15020, 16724.
Opin kl. 10—22.
Vesturland:
Aðalskrifstofan er í Félagsheimili Alþýðu*
flokksins, Vesturgötu 53, Akranesi, sími 716»
Skrifstofan er opin kl. 10—19 (kl. 10—7l
Norðvesturland:
Aðalskrifstofan er í Borgarkaffi, Siglufirði,
sími 302. Skrifstofan er opin kl. 5—7.
Norðausturland:
Aðalskrifstofan er að Strandgötu 9, Akureyri,
sími 1399. Skrifsíofan er opin kl. 10—22.
Suöurland:
Aðalskrifstofan fyrir Suðurlandsundirlendiö
er að Grænuvöllum 2, Selfossi, sími 273„
Skrifstoton er opin kl. 20—22. Skrifstofa
floldcsins í Vestmannaeyjum er að Ðrekastíg
24, sími 490 og er opin kl. 20—22.
Reykjanes:
Aðalskrifstofa kjördæmisins er í Alþýðuhús=*
inu, Hafnarfirði, sími 50499. Skrifstofan ev
opin kl. 14—19 og 20—22.
Svæðisskrifstofan fyrir Keflavík og Suðurnes
er að Hringbraut 99, Keflavík, sími 1940
(92-1940). Opin kl. 17—22.
1 Kópavogi er flokksskrifstofan í Alþýðuhús=>
inu, Auðbrekku 50, sími 38130.
Opin kl. 10—19.
Landsskrifstofur
flokksins eru í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötm
símar 15020, 16724, opnar kl. 10—22.
Flokksmenn eru beðnir að hafa samband vi<5
starfsfólk þeirra um allt er lýtur að kosning-*
unum.
Flokksfólk um land allt er beðið að hafa sem
bezt samband við flokksskrifstofur sínar 0£f
veita þeim allt það lið sem unnt er.
RÚMAR
FJÖLSKYLDUNJ
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1963
_ Sími 2420$!
‘S*,elM,i=»BJÖRNSSON 4 CO. p.O. BOX 1M4 - REYOAVlK
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 11. maí 1963 §