Alþýðublaðið - 11.05.1963, Qupperneq 10
VUH%%%Ui%UUH4HtU^muv I ^
Dauðafæri"
EINN prúðasti off bezti
Ieikmaður Hellas er Horn-
hammer, hann er hér í
„dauðafæri,” en Atli Marin-
ósson, varamarkvörður Fram
hefur hlaupið út og bjargar
glæsilega. — Ljósm. S. Þ.
Ágæt starfsemi
á s. I. ári
Fram sigraði Hellas í
hörkuleik með 18 gegn 16
SÆNSKA liðið Hellas veitti fs-1 ★ Verðskuidaður signr Fram.
landsmeisturunum Fram óvænt I Fram byrjar síðari hálfleik af
mjög harða keppni í leik þessara töluverðu fjöri, Karl Ben. skorar
.liða í fyrrakvöld. Svíarnir sýndu
' nú sinn bezta leik í íslandsför-
tnni og voru harðir bæði vörn
og sókn, e. t. v. fullharðir. Fram
sigraði þó verðskuldað í leiknum
með 18 mörkum gegn 16.
★ Jafnt í fyrri hálfleik.
Fyrirliði Hellas, B. Johannsson
skorar fyrsta mark leiksins með
ágætu skoti, en Guðjón Jónsson
jafnar skömmu síðar. Tvö næstu
mörk skora Svíar, það voru R. Jo-
hansson og Thelander. Nú líður
alllangur tími þar til skorað er,
en það voru Framarar, sem það
géra. Karl Ben. skorar annað
í mark Fram og Ingólfur jafnar á
13. mín. með góðu skoti.
Svíar skora næsta mark og hafa
forystu það sem eftir er hálfleiks-
ihs, það er ekki fyrr en á síð-
ustu mínútunni, sem Fram tekst
að jafna. Staðan í hléi er því
8 gegn 8.
10 11. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ágætt mark af línu, en vinstri
Sigurður Einarsson skorar
handarskyttan Hodin jafnar með
góðu skoti. Aftur nær Fram yfir-
höndinni með marki Guðjóns, en
Hornhammer jafnar. Nú skora
Framarar tvö mörk og missa ekki
forystuna úr því. Fram nær mest
3ja marka forskoti 16-13, en
nokkru fyrir leikslok ér munurinn
aðeins eitt mark 17-16. Þá ér
brotið harkalega á Framara, sém
tekst þó að skora, en dómari flaut
ar, dæmir markið af og Fram fær
aðeins fríkast. Þetta hefur þó eng
in áhrif. Hilmar Ólafsson tryggir
sigur Fram með góðu marki rétt
fyrir leikslok, 18 gegn 16 og verð
skuldaður sigur.
'r. f ' - • v.-^. • • T
Beztur leikur Svíanna.
Sænska liðið átti nú góðan leik,
bæði í vörn og sókn, þeir tefldú
sjaldan í neina tvisýnu i skotum,
og línuspil þeirra var gott. Vörn
þeirra var þétt en mikillar hörku
gætti í Sviunum, dómarinn Frí-
Framh. á 12. úðr
18. ÁRSÞING íþróttabandalags
Akraness var haldið f íþróttahús-
inú 7. apríl sl. Formaður í. A.
Gúðmundar Sveinbjömsson setti
þingið og flutti skýrslu stjómar-
innár. Forseti þingslns var kjör-
inn Láras Ámason og varaforseti
Ólafur I. Jónsson. Ritarar vora
kjörnir Helgi Danielsson og Ein-
ar J. Ólafsson. Hér á eftir fer
útdráttur úr skýrslum stjórnar í.
A. og þeirra sérráða er starfa á
vegum . bandalagsins.
KNATTSPYRNA.
Akumesingar tóku þátt í
landsmótum allra flokka. Meist-
ar'aflokkur varð nr. 3 i keppni I.
deildar, en alls lék flokkurinn 18
leíki á'árinu og unnust 8 þeirra,
6 énduðu með jafntefii og 6 töp-
uðust; :Markatalan 36-46 í. A. í ó-
hag. Enginn yngri flokkanna
komst í úrslit í landsmóti. í lands
liðinu léku þrír Akumesingar,
þeir Ríkharður Jónsson, Helgi
Daníelsson og Þórður Jónsson. í
Brlandsliðinu léku einnig þrír
Akumesingar, þeir Bogi Sigurðs,
Ingvar Elísson og Þórður Jónsson,
3. flokkur fór í keppnisferðalag
til vinabæja Akraness í Noregi og
Svíþjóð. Tókst sú ferð i alla staði
mjög vel. Bæjarkeppni við Rvík
fór engin fram á árinu, en leikin
var bæjarkeppni við Keflavík og
Hafnarfjörð, hin svo kallaða Litla
bikarkeppni. Lauk þeirri orrustu
þannig, að öll liðin urðu jöfn að
stigum.
HANDKNATTLEIKUR.
Handknattleikur á frekar
erfitt uppdráttar á Akranesi og
er það fyrst og fremst óhentugt
húsnæði, sem þar um veldur. —
'Meistaraflokkur tók þátt í lands-
móti II. deildar 1962 og varð fl.
í A. sæti með 4 stig. Nokkrir hand
knattleiksfiokkar frá RevViav{k og
nágrenni komu f heimsóknir til
Ákraness og léku við heimamenn.
Þá fór fram hln árlega hrað-
keppni liða utan Revkiavfkur og
lauk- þeirri keppni með sigri Hafn
firðinga, í öðru sæti urðu Kefl-
víkingar.
SUND.
Sundmenn tóku þátt 1
einni bæjarkeppni á árinu og var
það við Hafnfirðinga. Keppnin
vár mjög jöfn. en henni lauk með
sigri Hafnfirðinga. 45 stigum
gegn 43. Akurnesingar tóku þátt
í nokkrum mótum f Revkiavfk og
nagrenni. Eitt Akranesmet var
sétt á árinu, en það var Sigrún
.Jóhannsdóttir, er synti 50 m.
skriðsund á 34.1 sek.
Síðastliðið ár var eitt erfiðasta
f sögu sundfþróttarinnar á Akra-
nesi. Margár helztu sundstjörn-
urnar eins og Sigurður Sigurðs-
son, Guðmundur Samúelsson o.
fl. hættu æfingum og keppni og
eftir vora aðeins unglingar, marg-
ir að vfsu efnilegir. svo minna
varð um þátttöku f mótum, en á
undanförnum árum. Einnig hef-
ur þjálfaraskortur mjög háð eðli-
legum framgangi sundíþróttarinn-
ar.
STJÓRNARKJÖR.
Guðmundur Sveinbjömsson
baðst eindregið undan endur-
kjöri sem formaður, og var for-
maður kjörinn Lárus Ámason. —
Aðrir í stjóm í. A. eru Garðar
Óskarsson varaformaður, Ólafur
I. Jóhsson ritari, Eiríkur Þor-
valdsson gjaldkeri og meðstjórn-
endur þeir Björgvin Hjaltason og
Ársæll Jónsson.
í lok þingsins voru Guð-
mundi Sveinbjörnssyni sérstak-
lega þökkuð störf hans í þágu I.
A. og íþróttamála á Akranesi, en
Guðmundur hefur manna lengst
og bezt starfað að íþróttamálum
í bænum, en hann var m. a. einn
af stofnendum knattspyrnufélags-
ins Kára árið 1922 og setið í
stjórn í. A. frá stofnun þess og
mörg bin síðari ár formaður.
Mörg innanfé-
lagsmóf í
frjálsít»róttum
Á miðvik"dag og fimmtudag
héldu frinVhrnttadeildir ÍR og'
KR innanfélagsmót.
Fyrri da"inn var keppt í kast-
greinum hiá ÍR-ingum. í kúlu-
varpi sigra'ii Arthúr Ólafsson, Á.
14.34 m., Biörgvin Hólm. ÍR 14.02
m. Valbiörn t’orláksson, KR,
13,31 m. í kringlukasti sigraði
Björgvin Hnlm með 44.60 m.
í fyrradag var kennt í lilaupum
hjá KR. í 100 m. boðhlaupi sigr-
aði Einar Frtmannsson. KR 11,1
sek. Ólafur Guðm.. KR 11,5 og
Einar Gislason KR 11.6 sek. Þess-
ir sömu hlumi aftur og þá hljóp
Ólafur á 11 3 Einar Frím. á 11,5
og Einar Gísiason á 11,6.
í 400 m. hlaupi sigraði Valur
Guðm. KR. 53.7 sek. Kristleifur
Guðbjörnsson KR. 54.5, Agnar
Leví, KR. 54.7. Halldór Jóhann-
esson, KR, 56.8 sék. f öðrum riðli
hljóp Kristi-in Mik.. ÍR á 54,0 sek.
í 800 m. hlaupi sigraði Krist-
leifur á 2.02.2 og Agnar hljóp á
2.02,3. í dae kl. 14 verður háð
innanfélagsmót á vegum ÍR.
Hellas •
SV-úrval
kl. 4 í dag
f DA6 kl. 16 mætir
sænska RðSð Hvllas SV-úr-
vali ok f«*r ie'kurinn fram í
íþróttahúsinn á Keflavíkur-
flug-velli. *Tnkknr forföll hafa
orðið í SV-úrvalinu frá því
sem áður hefur vérið til-
kynnt.
Liðið er skipað sem hér
seglr:
Þorsteinn Biömsson, Á.,
Brynjar Rrajr3Son, Vík.,
Gunnl. Hiálm. ÍR,
Einar StgvrAsson, F. H.
Karl Jöhannsson. KR,
Kristján Stpfánsson, F. H.
Sig. Einarsson, Fram,
Sig. Óskarsson, KR,
Hörður Kristinsson, Á.,
Guðjón J-msson, Fram og
Ingólfur Óskarsson, Fram,
scm verður fyrirliði.
tWWWttwwwiwwwwvi