Alþýðublaðið - 11.05.1963, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 11.05.1963, Qupperneq 16
ms ^FRR' fÍG|jsr^ 3S.51H.oóc'0a. * 1156 50.23i5.ooo.6o 1157 A /*) < S'im.ooó^. 1958 A • 34.203i.oöo.oð 1959 AA AC1 35.0lo .OOO.oo »%0 A A f) '71. 473.000.bo Í9éi <*> <*> <*> f*> <*><*> f* * 4 5 45.9í1.ooo. 06 1962. Af5) A A <*><*> <®> <*) f* 84.135ooo.oð I96S A . ÍT\L LQKfl fiPRÍQ . jgtjgt-gLjft A <*> A t 85.0 öO.ÖOO.oo 5 ára drengur fyrir bifreið ÞAÐ slys varð í gær um kl. 12,15 á móts við Sundlaugraveg 25, að fimm ára gamall drengur að nafni Sigurjón Sveinsson til heimilis að Laugarnesvegi 54 varð fyrir bifreið og slasaðist al- varlega. Var hann fyrst fluttur á Slysavarðstofuna, en síðan á Landsspítalann. Hann mun ekki vera í lífshættu. Tildrög slyssins voru þau, að lítil stationbifreið var á hægrl ferð austur Sundlaugaveginn, er Sigurjón litli hljóp allt í eiml yfir götuna og í veg fyrir hílinn. Ökumaðurinn sá drenginn ekki fyrr en um seinan, og skall hann á hægra framhorni bílsins. Var höggið það mikið, að stuðari bif- reiðarinnar beygðist inn að fram- brettinu. Mun aðalhöggið hafa lent á fótleggjum Sigurjóns litla. Skemmdarverk hjá Strætó Stórsigur krata í Bretlandi \ ILondon, 10. maí. NTB-Reuter. Brezki Verkamannaflokk H urinu vann yfirburða sigur í 1 bæjar- og sveitarstjórna- W kosningum víðs vegar í Bret- f| landi. Flokkurinn vann 541 sæti og fékk stjórnina í 30 |l mikilvægum bæjum og borg um í sínar liendur. Alls var kosið um 2.973 fulltrúa, I>. e. þriðjung sæta ' í bæjarstjórnunum. . íhaldsmenn töpuðu 547 siefúm Og óháðir 72. Frjáls- lyndir, sem liafa unnið tals- ■ vert á í síðustu aukakosning- um, unnu 80 sæti og heiri- hluta í tveim bæjarstjórn- um en misstu hanu í annarri bæjarstjórn. Þrefalt meira en í tíð vinstri stjórnar FRÁ því aS HúsnæSismáiastofnun in tók ti! starfa í ágúst 1955 og til iprílloka 1963 hafa lánveitingar á hennar vegum þ. e. A- og B-ián til landsins aíis (80-90 bæja og kaup túna) numiS 518.3 milljónum. Á tíma hiíi núverandi ríkisstjórnar hafa lán veitingarnar numiS 308,7 milljónum en í tíS vinstri stjórnarinnar námu þær 138.1 milijón og er allt áriS 1956 þá reiknaS vinstri stjórninni. ÞaS er fyrst og fremst aS þakka Emil Jónssyni félagsmálaráSherra, aS unnt hefur veriS aS auka svo myndar lega iánveitingar í tíS núverandi stjérnar. . Hér fer á eftir yfirlit yfir lán- veitingarnar frá byrjun: 1955 (frá ágúst) kr. 35.574.000 1956 kr. 50.235.000 1957 kr. 53.699.000 1958 kr. 34.203.000 1959 kr. 35.906.000 1960 kr. 71.673.000 1961 kr. 65.919.000 1962 kr. 86.135.000 1963 (t. aprílloka) kr. 85.000.000 Samtals kr. 518.344.000 Það skal skýrt tekið fram, að hér er eingöngu um A og B lán Húsnæðismálastofnunarinnar að ræða, en auk þess hafa lán til verkamannabústaða stóraukist svo og lán til útrýmingar heilsu- spillandi húsnæðis. UNDANFARNA daga liafa verið mikil brögð að því, að sæíi í nokkrum strætisvögn um hafa vcrið eyðilögð með bitjárni. Hafa á nokkrum dög um verið skorið þvers og kruss 33 setur, svo þær eru al veg ónýtar. Ekki liefur tekizt að hafa upp á sökudólgunum ennþá. Þeir vagnar, sem verða helzt fyrir barðinu á þessum skemmdarvörguni eru: Leið 6-7-8 og leiðir 18 og 20. Það eru vinsamleg til- mæii til fólks, sem hefur orðið vart við skenimdarverk af þessu tagi, að það til- kynni það þegar vagnstjór- anum og mun hann þá gera nauðsynlegar ráöstafanir. MISJÖFN AFLABRÖGÐ BÁTA Á VESTFJÖRÐUI AFLI línubáta á Vestfjörðum í apríl varð afar rýr, einkum vegna gæftaleysis og einnig vegna þess, að steinbítur hvarf að mestu leyti af miðunum wn páska. Netabátar, sem sóttu afla suður á Breiðafjörð fengu aftur á móti ágætan afla. Á Hólmavík bárust aðeins á land 65 lestir í mánuð- inum. Á ísafirði fóru línubátar 10-12 róðra og var afli þeirra frá 50-80 lestir, mestmegnis stein- bítur. Vélbáturinn Guðbjörg var aftur á móti á netaveiðum og fékk liún 280.3 lestir í mánuðinum í net, og er það mjög góður afli. Heildarafli vestfirzka bátaflot- ans í apríl varð 5148 lestir, og er afli bátanna frá áramótum þá orðinn 25081 lest. Aflahæstur báta, sem gerðir eru út frá Vest- fjörðum í vetur og jafnframt hæstur yfir landið er Helgi Helga- son með 1430 lestir. Er það mesti afli, sem einn bátur hefur fengið á vetrarvertíð á íslandi svp vitað sé. Gullborgin frá Vestmanha- eyjum á fyrra metið. í apríl stunduðu 48 bátar veið- ar með línu frá Vestfjörðum, 18 bátar veiddu með netum, 11 með færum og 6 voru á síldveiðum við Suðurland. Skiptust þeir þannig milli verstöðva: Frá Tálknafirði 2, i frá Bolungarvik 3 og einn frá ísa firði. Sex hátar hættu veiðum í máh- uðinum og eru ýmsir komnir á stað eða að útbúa sig til sild- veiða. Þeir bátar eru frá Flat- eyri, Suðureyri, Hnífsdal og ísa- firði. Eftir verstöðvum skiptist heild- arafli Vestfjarðabáta þannig: Patreksfjörður 3775 lestir, Tálknafjörður 1485, Bíldudalur 1337, Þingeyri 2170, Flateyri 1883, Suðureyri 2793, Bolungaiv vík 2800, Hnífsdalur 1894, ísa- fjörður 5345, Súðavík 881, Hólma- Frh. á 14. síðu. SAMBAND UNGRA JÁFNAÐARMANNA efnir til tveggja stjórnmálafunda um helgiha. Fyrri fundurinn verður í dag kl. 4 í Kópavogi í félagsheimili Alþýðuflokksfélags Kópavogs, Auð- brekku 50. Á þeim fundi'yerða ræðumenn þessir: Stefán Júlíus- son, rithöfundur, Ásgeir Jóhannesson, fulltrúi, Eyjólfur Sig- urðsson, prentari og Helgi Sæmundsson, ritstjóri. Fundarstjóri verður Hörður Ingólfsson, kennari. Á morgun, sunnudag verð- ur fundur í Hafnarfirði í Alþýðuhúsinu við Strandgötu og liefst hann kl. 4. Ræðumelin verða: Stefán Júlíusson, rithöf- fundur, Hörður Zophaniasson, kennari, Sigurður Guðmundssoiy framkvæmdastjóri og Karl Steinar Guðnason, kennari. Fundar- stjóri verður Ingvi R. Baldvjnsson, sundhallarforstjóri.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.