Alþýðublaðið - 26.07.1963, Síða 7
HIN SlÐAN
Anarkistar og
ambassadórinn
ELLEFU æsingamenn ruddust fyrir skömmu inn í kúb-
anska sendiráðið' í London og lögðu hendur á ambassadorinn,
dr. Federico De Cordova Castro, brutu gleraugu hans og
börðu hann hér og þar. Ambassadorinn kærði atburðinn og
telur að þarna hafi átt hlut að máli félagar úr samtökum stjórn
leysingja (anarkista).
Æsingamennirnir Iétu sér ekkí nægja að berja á ambassa
dornum heldur ruddust um húsið, brutu og brömluðu og rót-
uðu í hirzlum. — Talsmaður anarkista hefur játað að þeir
hafi komið hér við sögu. Hafi þeir viljað mótmæla „mis-
höndlun pólitískra fauga á Kúbu“.
Maðurinn með gleraugun á myndinnl hér fyrir ofan er
dr. Cordava Castro.
Kærastan ekki til!
í FIMM dýrleg ár hélt Antonio
Abreu í Lisbon að hann skrifaðist
á við unnustu sína. Þau skiptust
á ástabréfum og' Antonio sendi
sinni heittelskuðu dýrar gjafir og
GÓÐ
SALA
MEIRA en ein milljón ein-
taka af hljómplötunni „All
star festival“ hefur selzt í
heiminum. í Vestur-Þýzka-
'landi hefur hún selzt mest
eða í 175 000 eintökum, í
öðru sæti er Svíþjóð með 170
000 plötur, þá kemur Hol-
land með 110 000 plötur,
Bretland með 67 000, Sviss
með 53 700, Japan meö 51
300 og Norcgur með 50 000
eintök. „All star festivall“,
sem gefin er út til ágóða
fyrir flóttamannahjáfp SÞ
hefur selzt sérstaklega vel á
Norfðurlöndum að sögn út-
gefendanna.
Vinsælust
í Israel
,LAG Gerrys og The Pacemakers,
„How do you do it“ er um þessar
mundir efst á vinsældalistanum í
ísrael. Um plötusöluna þar í landi
er það annars að segja, að þar selj
ast mest amerískar og enskar
hljómplötur.
Af öðrum lögum, sem unglingarn
ir í ísrael eru hrifnastir af núna
má nefna „Puff“ (Peter, Paul og
Mary), „Like Ive never been
gone“ (Billy Fury) og „I will fol-
low him“ (Little Peggy March).
Sígaunum
mismunað
KYNÞÁTTAHISRÉTTI
tíðkast í Ungverjalandi engu
síður en til dæmis í Banda-
ríkjunum, segir útvarpið í
Budapest. Hér eru fórnar-
lömbin að vísu ekki litað
fólk heldur sígaunar.
ógrynni af peningum. Það var að-
eins eitt í fari unnustunnar —
hinnar ímynduðu Marie Freitas —
sem Antonio gat ekki sætt sig við:
Öll þeirra bréf fóru um hendur
kunningja Antonios, Leca aö nafni
en hann hafði komið þeim í bréfa
samband. Auk þess var Marie svo
leiðinleg að draga giftingu þeirra
alltaf á langinn.
Loks kom þar, að Antonlo gat
ekki unað þessu lengur. Hann
sneri sér til lögreglunnar og bað
hana að rannsaka málið, þar sem
hann óttaðist að ekki væri allt
með felldu. Kom þá í ljós að
Leca, kunningi Antonios, hafði
staðið fyrir „bréfablöffinu”, hirt
gjafir og peninga ástkonunnar í-
mynduðu — og auðvitað logið upp
allri sólarsögunni af kvenmannin
Smygiuðu
i fangelsi
SCOTLAND YARD hefur kom-
ið upp um bófaflokk, sem hafði
með höndum að smygla hvers kyns
góssl eins og sfgarettum, tóbaki,
útvarpstækjum og fleiri hlutum
inn í ýmis brezk fangelsi. Talin
var hætta á að bófar þessir smygl
uðu inn fyrir múrana áfengi og
jafnvel skotvopnum, svo að flýtt
hefur verið rannsókn málsins.
GEÐSJUKDOMAR eru eitt al-
varlegasta vandamál Japana nú á
dögum. Félagsmálaráðuneytið jap
anska reiknar með því að hvorki
rneira né minna en 1.300.00 geð-
sýkistilfelli finnist í Japan. Er það
1,4 pct. af íbúum Japans og er því
1 af hverjum 71 íbúanna andlega
veill. Óttast ráðuneytið að þessar
tölur muni stíga á næstu árum og
andlegir sjúkdómar færast mjög
í vöxt.
í Japan eru nú 571 geðveikra-
hæli og 283 tauga- og geðsjúk-
dómadeildir á annars konar sjúkra
húsum. Samanlögð sjúkrarúm fyr-
ir geðveika eru þó ekki nema
116.000 í öllu Japan eða aðeins
120 rúm á hverja 100.000 íbúa.
Af framantöldum ástæðum taka
geðveikrahælin í Japan við fleiri
sjúklingum en þau raunverulega
geta. Þetta skapar glundroða og
ringulreið og veldur mikilli þröng
á þingi.
Ríkið þykir ekki standa sig vel
í þessum málum í Japan. Það eru
aðeins 24 stofnanir fyrir vangefna,
sem ríkið rekur upp á eigin spýt-
ur og auk þess 162 hæli og 41
skóli fyrir andlega vanþroskuð
börn. Færri komast á þessar stofn
anir hins opinbera en æskilegt er
og bíða því um 800.000 árangurs-
laust eftir slíkri vist.
Fjöldi afbrota, sem framin eru
af geðveikissjúklingum, fer mjög
vaxandi í Japan. Þeir myrða fólk,
leggja eld í hús og mannvirki og
beita sakláusa samborgara of-
beldi. Er það mikið áhyggjuefni
hugsandi mönnum, hvert ófremd-
arástand rikir í þeim efnum.
Japanir hafa talsvert aðra skoð
un á geöveiki en Vesturlandabúar.
Til dæmis er drykkjuhneigð, sem
nú er almennt farið að telja til
geðveiki á Vesturlönduni, ekki tal
in til geðsjúkdóma í Japari. Hinst
vegar er þar engu síður reynt að
hjálpa drykkjusjúklingum með
hælisvist áður en það er um sein-
an.
Lungu flutt
milli manns
BANDARISKIR Iæknar
unnu það þrekvirki öðru
sinni í síðastliðinni viku að
flytja Iungu úr látnum manni
yfir í lifandi mann. Sá látni
var 33 ára gamall en hinn lif
andi 44 ára. Aðgerðin, sem er
mjög erfið og vandasöm, virð
ist ætla að heppnast.
Bandarískir læknar unnu
hliðstætt þrekvirki í fyrsta
sinn í sögu læknavísindanna
fyrir um það mánuði en
sjúklingurinn lézt skömmu
eftir aðgerðina úr öðrum og
óskyldum sjúkdómi.
ff
KALLA
KJÖR
áá
8.00
12.00
13.00
15.00
18.30
19.20
20.00
20.30
20.50
21.30
21.30
22.00
22.10
— Hannes er alveg í öngum sín-
um vegna þess aö konan hans ætl-
ar að vera í burtu í hálfan mánuð.22-30
— Já, hann bjóst við, að hún
yrði allan mánuðinn að heiman. 23-15
Föstudagur 26. júlí
_____ 1
Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 830 Fréttir. <—»
8.35 Tónl. — 10.00 Veðurfregnir).
Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
„Við vinnuna": Tónleikar.
Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.30 Veð-
urfr. Tónleikar. — 17.00 Fréttir. — Endurt. tónlistarefni).
Harmonikulög. — 18.50 Tilkynningar.
Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
Efst á baugi (Björgvin Guðmundsson og Tómas Karlsson).
Einsöngur: Sigurveig Hjaltested syngur lög eftir norðlenzka
höfunda.
Erindi: Hlóðahella Hallveigar (Helgi Hjörvar rithöfundur).
Gítarleikur: Andrés Ségovia leikur lög eftir Bach.
Útvarpssagan: „Alberta og Jakob“ eítir Coru Sandel; XVII.
(Hannes Sigfússon).
Fréttir og veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Keistarinn í Alaska" eftir Peter Groma;
XVIII. (Hersteinn Pálsson).
Menn og músik; VI. þáttur: Brahms (Ólafur Ragnar Grímsscr*
hefur umsjón með höndum).
Dagskrárlok.
HIN SfÐAN
ALÞÝSUBLAÐI0 — 26. júlf 1?63.: JS