Alþýðublaðið - 17.08.1963, Qupperneq 9
arkorn í gamla kirkju- og skrúð
garðinum við Aðalstræti. Hérna
í miðdepli gamla bæjarins stend-
ur Skúli fógeti í herraveldi sínu.
Hann er sterklegur á að líta og
gæti borið vandamál allra ís-
lendinga á herðunum. Guðmund
ur Einarsson myndhöggvari frá
Miðdal gerði styttuna að tilhlut
an Verzlunasamtakanna. Hún var
sett upp um 1950.
Stytta af Héðni Valdimarssyni,
formanni Dagsbrúnar og forustu
manni Alþýðuflokksins í Reykja
vík, stendur við barnaleikvöll-
inn á Hringbraut. Héðinn átti
frumkvæði að byggingu verka-
mannabústaða í Reykjavík.
Stjórn Byggingafélags verka-
manna gekkst fyrir, að styttan
var sett upp árið 1956. Mynd-
höggVarinn var Sigurjón Ólafs-
son.
Nú er haldið niður eftir Hring
brautinni. Vindhaninn, verk Ás-
mundar, á turni Melaskólans
blasir við okkur í fjarska. Stöðv-
að er við litla hólmann syðst í
Tjörninni. Þar er mikið líf. End
urnar bítast um matarbitana, sem
börnin varpa til þeirra. í miðj-
um hólmanum mátti fyrir
skömmu sjá styttu Þorfinns
karlsefnis. Styttan var fiutt í'
burtu, þar sem staðurinn virtist
vera óheppilegur. Satt er það,
að Þorfinnur hlaut litla virð-
ingu af andarkvakinu. Erfitt var
að átta sig á, hvort styttan væri
að sökkva í hólmanum eða
sökkva honum.
Upphaf styttunnar er það, að
Einari Jónssyni var boðið til
Ameríku til að gera listaverk í
skrúðgarð Philadelphíuborgar.
Tilefnið var að minnast fyrstu
landnámsmannanna’'í Ameríku.
Styttan var gerð og sett þar upp.
Annarri afsteypu hennar var kom
ið fyrir í hólmanum syðst í Tjörn
inni um 1945. Ennþá er ekki bú-
ið að finna styttunni nýjan stað.
Nú er haldið inn í Tjarnar-
garð. í fagurnæmu og laufi
prýddu umhverfi má sjá Thor-
valdsens-styttuna og styttuna af
Jónasi Hallgrímssyni.
Thorvaldsens-styttan var af-
hjúpuð á Austurvelli 19. nóv.
1875 á afmælisdegi myndhöggv
arans. Hún var gjöf Kaupmanna
hafnarborgar til Reykjavíkur á
1000 ára afmæli íslandsbyggð-
ar. í tilefni þess var Austurvöll-
ur hækkaður upp og honum
skipt í fjóra jafnstóra reiti með
sandstígum út frá myndinni,
sem staðsett var á miðjum vell-
inum. Sérstakur maður var send
ur frá Kaupmannahöfn til að sjá
um upþsetningu hennar. Girð-
ing var sett umhverfis völlinn til
varnar ágengni skepna. Þar með
tók fyrir, að lestamenn gætu sett
upp tjöld sín þar í kauptíðinni,
og mæltist þessi ráðstöfun að
sjálfsögðu misjafnlega fyrir.
Árið 1931 var styttan fiutt í
Tjarnargarð, en mynd Jóns for-
seta sett upp á Austurvelli.
Stytta af okkar merka skáldi
Jónasi Hallgrímssyni stendur í
rómantisku umhverfi í garðinum,
sem hæfir vel persónuleika hans.
Einar Jónsson gerði styttuna.
Hún var afhjúpuð 16. nóv. 1907
á hundrað ára afmæli Jónasar á
Læknistúninu á horni Lækjar-
götu og Amtmannsstígs. Árið
1947 var hún flutt í Tjarnar-
garð.
Enn önnur stytta er í Tjarnar
garði. Hún er um þessar mundir
hálf-hulin skógarþykkni. Stytt-
an nefnist „Maður og kona“ og
er gjöf Ludviks Guðmundssonar
skólastjóra til Reykjavíkurborg-
ar. Hún var sett upp árið 1958.
Myndhöggvarinn er Tove Ólafs-
son.
Nú höldum við inn í Fríkirkju
vegargarðinn. Þar blasir við okk
ur í einu horninu stytta Ásmund
ar Sveinssonar, er nefnist „Pilt-
ur og stúlka". Hún var sett upp
Myndin er af Thorvaldsens-styttunni í Tjarnargarði. Þetta er eina styttan eftir hinn merka dansk--
íslenzka Iistamann, sem er sett upp í Reykjavík. Styttan er af myndhöggvaranum. Hann gerði einnig
skírnarfontinn í Dómkirkjunni.
Styttan „Piltur og stúlka* ‘stendiu-
ofarlega í Fríkirkjuvegargarðin-
um.
árið 1957. Styttan er mjög ljúf
næm á að líta, þar sem hún stend
ur í grenilundi gegn tjörninni.
Okkur hlýnar um hjartarætur
við að horfa á hana og höldum
glöð og kát niður eftir garðin-
um.
í blómagarði Lækjargötunnar
gnæfir uppi á stöpli stytta Nínu
Sæmundsson, er nefnist „Móð-
urást“. Hún var keypt af List-
vinafélagi Reykjavíkur og sett
upp árið 1945. Styttan er af nak
inni konu, er ruggar barni sínu
uppi við eyx-að til þess að heyra
hvert minnsta hljóð, sem frá því
kemur.
Á grasvelli í Lækjargötunni
má ennfx'emur sjá styttu af Frið
íriki Friðrikssyni trúarleiðtoga.
KFUM-samtökin og vinir Frið-
riks gengust fyrir því, að hún
væri sett upp. Það var um 1955.
Sigurjón Ólafsson gerði stytt-
una. Hún er mjög táknræn fyr-
ir starf og hugarfar Friðriks.
Á Skólavörðustíg blasir við
stærðar stytta. Iíún er af atgerv-
ismanninum Leifi heppna. Mætti
halda, að myndin tákni það
augnablik, er Leifur sér Ame-
ríku í fyrsta sinn. Listaverkið
nýtur sín vel á stöplinum þar.
Það er svo tígulegt, að okkur
verður ósjálfrátt- léttara um gang.
þótt upp í móti sé. Styttan er
gjöf Bandaríkjanna í tilefni af
Alþingishátíðinni 1930. Þá var
gamla skólavarðan rifin og stytt
an sett á hennar stað.
Frá Skólavörðutúni má sjá
lágmyndirnar á Austurbæjarskól
anum og Kúluna á Heilsuvernd
arstöðinni, - sem eru verk Ás-
mundar Sveinssonar.
í Einarsgarði hefur ávaxta
gyðjan Pomona aðsetur. Stytt-
an er gerð af danska listamann-
inum Johannes C. Bjerg og var
sett upp árið 1945. Hún er gjöf
Foghts stórkaupsmanns.
Ávaxtagyðjan er stórfalleg
stytta. Hún tekur sig mjög vel
út í Einarsgarði. Margir eru svo
hugulsamir hér í bæ að klæða
hana í sjal, brjósthaldara og
fleira, þegar illa viðrar. Já, ís-
lendingar eru hjartagott fólk.
Járnsmiðurinn, táknmynd iðn
aðarins og verk Ásmundar má
sjá á grasbletti einum við
Snorrabraut. Styttan var sett
upp árið 1952. Hún gefur vel til
kynna erfiði og strit mannsins
fyrir lífsnauðsynjum. Járnsmið-
urinn styður við steðjann með
öllum þunga sínum og orku. Á
þessari orku byggist hcilbrigt
þjóðfélag.
Næst komum við að Skúla-
túni 2. Þar situr Hermes í djúp-
um þönkum umvafinn blómum.
Þetta er frægt grískt listavei-k
eftir Lysippos-. íslenzkur skip-
stjóri keypti það í Englandi í
lok stríðsins. Fyrir milligöngu
Lárusar Sigurbjörnssonar var
styttan keypt af Reykjavíkur-
borg og sett upp árið 1959.
Nú er lialdið til Sjómanna-
skólans, sem útskrifar mikilvæg
urstu stétt þjóðarinnar. Við
hann var „Fiskstöpullinn", verk
Sigurjóns Ólafssonar, komið
Framli. á 13. síðu
Styttan af Hannesi Hafsteini stendur á Stjórnarráðsblettinum. Hún
er öllum íslendingum vel kunnug, þar sem hún stendur við eina f jöl-
förnustu götu bæjarins.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 17. ágúst 1963 9