Lögrétta - 25.06.1930, Page 7
LÖGRJETTA
7
Islenskír þingstaðir
* að fornu og nýju.
This article describes meeting
places of pnlitical assemblies (vor-
þing, leið) in different parts of the
country, both old and new, the form
as well as importance of these
meetings and the relics which are
still to be found at mány of them.
Alþingisstaðurinn við Öxará,
eða í Bláskógum, sem Grímur
geitskór valdi fyrir þúsund ár-
um, hefur orðið einn af frægustu
og fjölsóttustu stöðum þjóðarinn-
ar, enda einskonar höfuðstaður
hennar um margar aldir. Um
þennan stað safnast athyglin fyrst
Þorsteinn Ingólfsson þing. Þcss
er getið í sögum, að vorþing var
sett á nesinu sunnan við vatnið
og heitir þar enn Leiðvöllur. Leið-
hamar er þar einnig til. Búða-
tóftir hafa menn þótst sjá þar,
en aðrir telja þær vafasamar og
ef til vill hafa þær eyðst af á-
gangi sjávar. Annað sunnlenska
þingið var háð í Árnesi í Þjórsá,
rjett hjá Búðafossi. Þar hafa
fundist tóttir af dómhring og
þar heita þinghólar, en búðarúst-
ir hafa ekki fundist áhyggilega í
Árnesi sjálfu (sem er eyja). En
Austfirðingaf jórðungur.
í Austfirðingafjórðungi voru
að fornu Sunnudalsþing, Múla-
þing (eða Kiðjafellsþing) og
Skaftafellsþing. Sunnudalsþingið í
Vopnafirði var flutt 987 vegna
vígaferla milli Krossvíkinga og
Hofverja, sem frá segir í Vopn-
firðingasögu, en nokkuð óvíst um
hinn nýja stað. Múlaþing var
háð í Skriðdalnum, norðan undir
Múla, þar sem enn heitir Þing-
múli. Syðsta austfirðingaþingið
var háð að Skaftafelli í Öræfum
og er fremur lítið getið í sögum
og um þingstaðinn sjálfan vita
menn eiginlega lítið sem ekkert
með vissu. í Austfirðingafjórð-
ungi er einnig getið Krakalækjar-
þings, Lambanesþings og haust-
staðnum frá fyrri tíð, t. d. vatns-
veitu að bænum. Hegranesþing
var háð í Hegranesi norðaustan-
verðu og var þar þingstaður ail-
lengi fram eftir öldum og er get-
ið málaferla þar fram á 14. öld.
Þar hafa fundist ca. 80 búðatótt-
ir. Af málarekstri á Hegranes-
þingi eru athyglisverðar frásagn-
ir í Ljósvetningasögu og Víga
Glúmssögu. Virðast dómar hafa
íarið þar fram að næturlagi og
verið róstusamir, eins og reyndar
oftar á þingum. Vaðlaþing hefur,
að áliti Kálunds, verið háð þar
sem nú er Litla-Eyrarland og þar
eða milli þess og Kaupangs — i
Rúðarlág — eru einu búðatótt-
ir sem fundist hafa í Eyjafirði.
Guðmundur dýri á að hafa tek-
ið af Vaðlaþing. Skyldi þar
eigi sóknarþing heita; þótti
honum þar verða stórdeilur,
sem á Alþingum, segir í sögu
hans íSturlungu.Sumir halda
að Þverárleið, sem líka er
nefnd, 'nafi staðið eitthvað í
sambandi við Vaðlaþing eða
verið framhald þess. Eyjar-
þing var háð í Þingey í
Skjálfandafljóti og er getið í
Vemundarsögu og Víga-
Skútu og við það er einnig
átt í Landnámu, þar sem
sagt er frá druknun Bjarna
Skeggbroddasonar og fjelaga
hans í Skjálfandafljóti á leið
til þings. Nokkur nöfn í
eynni minna einnig á þing-
hald, þar heitir Þinglág og
Þingvellir og nokkrar búðatóttir
hafa fundist.
Önnur minni ey í fljótinu er köll-
uð Skuldaþingsey og hefur verið
talið svo, af Maurar og öðrum, að
í því nafni væru leifar þess
forna skipulags, að vorþingin
voru ekki einungis sóknarþing,
en einnig skuldaþing, þar sem
skuldaskiftum og fjárreiðum var
ráðið til lykta eins og einnig
sjest af heimildum.
Fleiri norðlenskra þingstaða er
getið á ýmsum tímum. I Skaga-
firði er getið um Vallalaugarþing,
í Hólminum, og er talað um
þingstað þar fram á 17. öld
(þriggja hreppa þing). í Svarf-
dælasögu er talað um vorþing í
Blakksgerði og á Höskuldarstöð-
um í Svarfaðardal (nú óþekt
bæjarheiti þar). Á Oddeyri er
allsnemma getið um þing, t. d.
1305 og á siðaskiftatímum og þar
á eftir var oft boðað þar til þing-
samkomu (t. d. eiðatökurnar
1551). Spjaldhagi, skamt frá
Grund, er einnig nefndur sem
þingstaður á 14.—16. öld. Við
Gautsstaði í Suður-Þingey j ai -
sýslu hefur einnig verið þingstað-
ur, en víst ekki mjög gamall.
Þar heitir Þinggerði og eru þar
taldar tóttir af dómhringi. Af
' því þingi segir það m. a., að þar
var eitt sinn drekt konu nokk-
urri fyrir að hafa borið út barn
er hún fæddi á laun. t Fnjóska-
dalnurn eru ýmsar leifar gam-
alla þinga, s. s. í Hálslandi, í
Leiðarnesi og eru þar 20—30
tóttir og máske dómhringur. Þar
telja sumir að Ljósvetningaleið
hafi verið háð. t Fjósatungu á
eimiig að hafa verið haldið þing,
sem menjar eru enn eftir. En
annars eru frásögurnar um þessi
lanjfty)cnj
-V
} )
m.
JSSr ert fer . fárgfcn.
fo-a-s7i faa/Q.
hu&r ttj* Jbifjítn-for xfytfcn. {oýtrtk
■Ukn. 'A'— - .. •
u e -
J
Lautn r Jiifi jic/aln intrf /r , O
-■ -----jNy
jLniaytt.
tr
:
-Ax
Alþingisstaðuriim gamli. Eftir gamalli vatnslitamynd, frá ca. 1780.
og fremst á þúsund ára hátíð-
inni. En samt á ekki að gleyma
því, að þjóðin á einnig aðra þing-
staði þar sem fram hafa farið
ýms mikil störf og merk. —
Hjer er ekki átt við þann Alþing-
isstað, sem við tók af Þingvöll-
um, sem sje Reykjavík, þó að
þau þing, sem þar hafa verið
haldin eftir endurreisnina hafi að
vísu orðið miðstöð í vaxandi
framkvæmdalífi sem á tæpum
hundrað árum hefur breytt þjóð-
lífinu meira en Þingvallaþingið
gerði á 900 árum. Hjer er átt við
þingstaðina út um alt land, leið-
ar- og vorþingsstaðina, sem voru
samskonar miðstöðvar hver í sínu
umdæmi eins og Alþingi var fyrir
alt landið.
Þessir þingstaðir eru margir
og má enn sjá merki þeirra víða
í mannvirkjaleifum og í örnefn-
um, Á þessum fornu þingstöðum
hefði mátt minnast lýðræðisstofn-
unarinnar heima í hverju hjeraði,
því að sjálfsögðu fer nú eins og
ávalt að fomu, að margir eiga
ekki heimangengt eða æskja ekki
Alþingisreiðar, en geta þó sótt
mannfundi nær sjer.
Fornu þingstaðirnir eru kunnir
úr ýmsum heimildum og voru
þingin þrjú í hverjum fjórðungi,
en fjögur í Norðlingafjórðungi.
En þingstaðir eru þektir fleiri og
frá ýmsum tímum, því að þingin
voru alloft flutt um set af ýms-
um ástæðum, vígaferlum, óá-
nægju eða landraski.
Sunnlendingafjórðungur.
í Sunnlendingafjórðungi voru
Kjalarnesþing, Rangárþing og
Árnesþing. Á Kjalarnesi er einn
af elstu og virðulegustu þing-
stöðum þjóðarinnar. Þar setti
vestan við Búðafoss, í dálitlum
dal, taldi Kálund leifar ca. 27
búða og sumra mjög stórra.
Þriðja þingið var háð að Þing-
skálum vð Rangá, ekki langt frá
Odda. Þess þings er iðulega getið
í Njálu og þar var þingstaður
fram á 18. öld. Þar hafa verið
margar búðir, um 100, sem mátt
hefur sjá til skams tíma, en á
öndverðri 19. öld var nýr bær
reistur í hinu forna búðastæði.
Fleii'i þingstaði má rekja sunn-
anlands. Einn er í Þingnesi við
Elliðavatn og hafa fundist þar 15
búðatóttir. Þar í nánd er ör-
nefnið Norðlingaholt. Því fylgdi
sú saga, hversu mikið sem upp
úr henni er leggjandi, að nafnið
stafi frá því fyrir Alþingisstofn-
un og standi í sambandi við þing-
sókn Norðlinga suður (til Kjalar-
nessþings?) áður en allsherjar-
þingið var stofnað við Öxará. Jón-
as Hallgrímsson hjelt að Kjalar-
nesþing hefði verið háð í Þing-
nesi fyrir Alþingisstofnun, en síð-
ari fomfræðingar leggja ekki
trúnað á það. Þinghólanöfn koma
fyrir í Þjóðólfshaga og á Stór-
ólfshvoli og eru af ýmsum talin
vottur um gamla þingstaði. 1
Lambey í nánd við Breiðabólstað
var þingstaður (þriggja hreppa
þing) fram á 14. öld eða lengur.
Loks má geta þess að þingsam-
komur hafa verið háðar í Kópa-
vogi og það sumar hinar örlög-
þyngstu fyrir stjórnarfar þjóðar-
innar, s. s. eiðatökuþingið 1662.
Kópavogur er ungur þingstaður,
en um eitt skeið var þó í ráði að
flytja þangað sjálft Alþingi og
var gefið út konungsbrjef um
það 1574, en kom aldrei til fram-
kvæmda.
þings að Þinghöfða. En frásögur
fornra heimilda um þetta eru
nokkuð í óvissu og virðist svo
sem þingstaðimir hafi stundum
verið nokkuð breytilegir, eða
þingin í fjórðungnum jafnvel ekki
í framkvæmdinni nema tvö. En
annara þingstaða er einnig getið
á ýmsum tímum þó að lítið verði
nú oftast sagt um það með vissu,
hvaða sannfræði er fólgin í slík-
um frásögnum og örnefnum. Á
Bessastöðum í Fljótshlíð er t. d.
til „þingvöllur“ og hefur þar
sennilega verið þing, en ungt. Hjá
Kolfreyjustað eru til nöfnin Lög-
rjetta og Lögrjettuhraun og í
Skaftafellssýslum er til Leiðvöll-
i ur, er minnir á þinghald. I Hauga-
! tungu hafa verið athugaðar tót.t-
ir, sem sumir hafa sett í sam-
band við gamlan dómhring.
Norðlendingafjórðungur.
í Norðlendingafjórðungi voru
að fornu: (Þing)eyjarþing, Vaðla-
þing, Hegranesþing og Húna-
vatnsþing. Hið síðastnefnda var
liáð að Þingeyruni og er alloft
getið. Þar var seinna sett hið
fyrsta klaustur Islands (1133),
samkvæmt áheitum sem Jón bisk-
up Ögmundsson gekst eitt sinn
fyrir þar á vorþingi, er mönnum
gerði óhægt ráð sitt, gnúði á
hallæri mikið og veðrátta köld,
svo að jörð var ekki ígróðra að
vorþingi, en batnaði alt við áheit-
ið. Þingstaðurinn hefur verið
vestan við Þingeyrar, sem nú eru,
norðvestur við Hóp, en búðatótt-
ir eru flestar eða allar eyddar af
sandfoki. Sigurður fornfræðingur
taldi sig hafa fundið menjar dóm-
hrings í Þingeyrartúni, en það
þykir öðrum vafasamt. Annars er
getið ýmsra mannvirkja þar á