Lögrétta


Lögrétta - 25.06.1930, Blaðsíða 12

Lögrétta - 25.06.1930, Blaðsíða 12
12 LÖGRJETTA tveimur deildum, fulltrúadeild \ (Dail Eireann) og öldungadeild (Seanad Eireann). í þeirri fyr- nefndu sitja nú 153 fulltrúar, kosnir almennum kosningum til | 5 ára og er kosningarrjettur J bundinn við 21 árs aldur. í öld- ungadeildinni teru 56 senatorar og 2 að auki fyrir hvern háskóla (nú 60). Senatorar mega ekki vera yngri en hálffertugir og kjósendur ejtki yngri en þrítugir. Þinginu er skylt að taka til með- ferðar hvert það mál, sem 50 þúsund kjósendur beina til þess og lögum frá því má einnig skjóta til þjóðaratkvæðis. Full- trúadeildin ræður mestu um lög- gjöf — og svo að segja ein fjár- málum — og hefur öldunga- deildin einungis frestandi neit- unarvald (í 270 daga). Það er einkennilegt að ráðherrar (sem j ekki mega vera fleiri en 12) eru tvennskonar, sumir sem eru em- í bættismenn að miklu leyti óháðir j þinginu og fást við framkvæmda- stjórnina fyrst og fremst og mega ekki vera þingmenn sjálfir, en aðrir (4—7) sem þurfa að vera þingmenn og bera ábyrgð j gagnvart þinginu á venjulegan þingræðishátt. Þetta á að vera til þess gert, að koma meiri festu í stjórnarfarið og draga úr á- hrifum flokkadráttar og er á- þekt því, sem hjer hefur stundum verið talað um, að hafa fastan landshöfðingja eða landritara jafnframt þingbundnu flokks- ráðherrunum. Þingið á Mön. Manarþingið er athyglisvert að því leyti, að það er eitt af elstu þingum heimsins og eyjan Mön hefur enn í dag stjórnar- farslega sjerstöðu innan bretska ríkisins. Eyjan er allmikið kosta- land vegna málmnáms, íbúarnir eru 50 þúsundir og höfuðstaður- j inn (Douglas) nokkru minni en Reykjavík. Eyjan var norskt land á 9. öld og nokkuð frameft- ir, eða í einar 3 aldir, en fjelí þá undir skotsk yfirráð og loks sló Hinrik III. Bretakonungur eign sinni á eyjuna og gaf hana (1406) Stanley-ættinni, en bretska krúnan keypti hana fyr- ir röskum hundrað árum (1827) fyrir rúml. 414 þúsund pund. í eynni er konunglegur land- ; stjóri, en hið forna þing, sem j nefnt er Tynwall (sem talið er j sama orð og Þ ingvöllur) hefur j enn löggjafarvald, en lög enska j þingsins gilda ekki á Mön nema j þess sje sjerstaklega getið. Þing- ið er í tveimur deildum. I annari situr landsstjórinn og ráð hans, j biskup, dómarar, 2 konungkjöra- j ir (eða af landsstjóra) og 4 J menn kjörnir af hinni deildinni. En hún heitir ,,House of Keys“ j og halda sumir að nafnið, sem j er óljóst, sje norrænt, og skylt j sögninni að kjósa. I þessari deild j sitja 24 þingmenn, kosnir al- i mennum kosningum (höfuðstað- j urinn hefur 5 þingmenn). Þeim j forna sið er enn haldið, að þegar lög þingsins hafa öðlast konung- I lega staðfestingu, eru þau til- kynt, eða sögð upp á Tynwald- i hæð (einskonar Lögbergi) bæði á i keltnesku og ensku og öðlast þau ekki fult lagagildi fyr en þessari uppsögn er lokið. ' Franska þingið. Franska byltingin 1789 hafði mikil áhrif á stjórnmálalíf flestra vestrænna þjóða — um það er alment samkomulag, þótt ósam- komulag sje um hitt, hvernig meta eigi ýms þau áhrif. Síðari byltingar höfðu einnig mikil áhrif, m. a. á íslensk stjórnmál. Þótt einvaldsstjórn hafi verið í Frakklandi fyrir byltinguna 1789 var þinghald gamalt þar í landi, því þing fyrir stjettirnar (états généraux) var kvatt sam- an fyrst 1303 (og síðast 1616, en aldrei afnumið formlega). Yf- irdómstólamir (parlamentin) störfuðu einnig á blómatímum konungsveldisins, sem einskonar þing, sem höfðu eftirlits eða jafnvel neitunarvald gegn- lögum konungs, og var oft reipdráttur r.iilli þeirra og konungsvaldsins. Stjórnarfar og þingskipun Frakka hefur breytst oft og mik- ið á síðustu mannsöldrum og rík- ið verið lýðveldi eða konungs- eða keisaradæmi á víxl. Það skipulag sem nú gildir er frá 1871, með nokkrum breytingum frá 1879 og 1926, einkum 1879. Ríkið er nú lýðveldi og bannað í stjórnar- skránni að bera fram breytingar- tillögur um afnám lýðveldisins. Þingið er í tveimur deildum, öldungaráði (senati) og fulltrúa- deild. í senatinu sitja 314 þing- menn, sem kosnir eru af kjör- mönnum til 9 ára og er rutt þriðjungi þriðja hvert ár. Kosn- ingarjettur er bundinn við fer- tugsaldur. Ýmsir embættismenn mega ekki vera senatorar, eða verða að ganga til nýrra kosn- inga, ef heir taka við vissum meiriháttar embættum. í fulltrúa- deildinni sitja 570—80 þingmenn, kosnir beinum kosningum allra 21 árs gamalla borgara og eldri, karla, en ekki kvenna. Báðar deildir geta komið saman í sam- einað þing (þjóðþing) við forseta- kjör og umræður um stjórnar— skrárbreytingar. Báðar deildir eru jafnrjettháar, þó þannig, að sen- atið er óuppleysanlegt, en full- trúadeildina má leysa upp með samþykki senatsins. Senatið get- ur einnig starfað sem landsdómur ef fulltrúadeildin kærir forseta eða ráðherra og eru Caillaux- málin kunnust af slíkum málum frá seinni árum. Þingið kýs forseta til 7 ára, en hann hefur ekki sjerlega mikil völd, er bundinn í báða skó af þingi og stjórn. Hann er ábyrgð- arlaus og verður ekki krafinn reikningsskapar nema um föður- landssvik sje að ræða. Ábyrgð stjórnarfarsins bera ráðherrarnir, (sem eru 10—14 auk aðstoðar- ráðherra) og tilnefndir af for- setanum úr þingmeirihlutanum á venjulegan þingráeðishátt. Full- trúadeildin ræður mestu um stjórnirnar, en senatið getur einnig ráðið miklu um þær og valdið stjórnarskiftum. Þau eru mjög tíð og flokkar eru varla til í Frakklandi, á enska vísu eða norræna, heldur urmull af per- sónulegum samtökum og klíkum sem mynda og fella stjómir. I I Raftækjaverzlun Isfands h. f. Einkaumboð fyrir hið heimsþekta rafmagnsiirma, ------- Allgemeine Elektricitáts Gesellschaft. -------------------- Skrifstofa: Sambandshúsinu, Reykjavík. Sími 1126. Sínm.: Elektron. Selur alskonar raftæki og efni frá A. E. G., svo sem vjelar, töfluút- búnað allan, mælitæki, jarðstrengi, suðu- og hitaáhðld, ljóskúlur, raf- magnslampa, spenna (transformatora), rafstöðvar af hverskonar gerð og stærð, alt efni í rafmaguslagnir, kvikmyndaútbúnað o. m. 11. Sjerstök athygli skal vakin á vatnsaflstöðvum, alt að 140 kw., með Petersen jafnspennurafal (generator) og sjálfvirkri spennubreytingu, fyrir fallhæð frá 1—150 metra. Pjelagið hefur í þjónustu sinni þýskan sjerfræðing og getur því án tafar gefið allar upplýsingar, er kaupendur þarfnast, gert uppdrætti og n kvæm tilboð. Þýska þingið. Þýskaland á sjer alllanga og eftirtektarverða, en að ýmsu leyti raunalega þingsögu. Á miðöldum var ríkisdagurinn í Regensburg helsta þing Þjóðverja og kaus ein deild þess keisarann. Þetta þing leið undir lok 1806. Síðar, á dögum Rínarsambandsins, varð sambandsþingið í Frankfurt am Main einskonar Alþingi og eftir ríkissameininguna 1871 bættist kosið ríkisþing við. En það keis- aradæmi og þingskipun þess hrundi í byltingunni 1919 og nú- gildandi stjórnarskrá er frá 11. ágúst þess árs. Ríkisþingið fer nú með hið æðsta vald þýska lýðveldisins. Tala ríkisþingsmanna er óá- kveðin og breytileg vegna þess að kosningunum er þannig fyrir komið, að notaðar eru hlutfalls- kosningar um flókkslista, þannig, að hver lisii fær einn þingmanh fyrir hveriar 60 þúsundir kjós- enda, sem kjósa hann. Þing- mannatala fer því eftir því hvern- ig kosningar eru sóttar og hafa þingmenn stundum verið 20—40 færri eða fleiri eitt kjörtímabil, (sem er 4 ár) eil annað. Þingið ræður sjer mjög sjálft, t. d. er það einrátt um það hversu lengi það situr. Forsetinn getur að vísu leyst það upp, en ekki nema einu sinni útaf sama máli. Að minsta kosti tvær fastar þingnefndir eru þó óháðar þingupplausn og starfa einnig sem fastar milliþinga- nefndir og fást við utanríkismál og hafa eftirlit með stjóminni milli þinga. Stjórnir eru meiri- hlutastjórnir með venjulegu þing- ræðissniði, tilnefndar af forseta, en hann er kosinn almennum kosningum um land alt til 7 ára í senn. Ríkiskanslari er leiðtogi stjómarinnar, en hver ráðherra ber sjálfur og einn ábyrgð sinna mála gagnvart þinginu. Laga- samþvktuni þingsins getur ríkis- forseti skotið til úrskurðar þjóð- aratkvæðis og tuttugasti hluti kjósenda getur einnig krafist slíkrar atkvæðagreiðslu. En tí- undi hluti kjósenda getur heimt- að þjóðaratkvæðagreiðslu um hvaða mál sem er, þótt þingið hafi ekki rætt það. Auk ríkisþingsins starfar ríkis- ráð, sem í situr að minsta kosti einn fulltrúi fyrir hvert sam- bandsland. Ríkisráðið hefur frest- andi neitunarvald gegn löggjöf ríkisþingsins og áhrifamikil ítök í alla fjármálastjórn. Loks starf- ar ráðgefandi atvinnuþing (Reichswirtschaftrat), skipað (rúml. 300) fulltrúum atvinnu- greinanna og hefur ráðgjafarat- kvæði um atvinnumál og þjóðnýt- ingarlöggjöf og þessháttar lög má ekki leggja fyrir ríkisþingið, nema fyrst hafi verið leitað álits atvinnuþingsins. Sjálft getur at- vinnuþingið komið málum á fram- færi við ríkisþingið, jafnvel gegn vilja stjórnarinnar og getur þá látið einn sinna manna koma fram í ríkisþinginu, þótt hann sje ekki þingmaður. Þetta atvinnuráð er sj erkennilegt fyrir þýskt þing- skipulag. Þing í Niðurlöndum. I Niðurlöndum er þingbundin konungsstjórn og ráðuneyti sett á venjulega þingræðisvísu. En í þingskipulaginu eru nokkur sjer- kenni, sem hjer verða talin. Deild- imar eru tvær. Sú fyrri (50 manns) er kosin óbeinni kosningu til 6 ára. Hin deildin, aðaldeildin (100 manns) sem ein, ásarnt drottningunni, getur átt frum- kvæði að lögum, er kosin almenn- um hlutfallskosningum karla og kvenna yfir 25 ára að aldri og hvílir kosningaskylda á kjósend- um (og er slíkt líka í lögum í Belgíu). Þingmenn fyrri deildar fá þingfararkaup (10 gyllini á dag), en þingmenn annarar deild- ar föst árslaun, 5000 gyllini og sömuleiðis fá þeir að lokinni þingsetu 150 gyllina eftirlaun fyrir hvert þingár sitt og þing- mannaekkjur og börn fá einnig eftirlaun. Þetta mun hvergi tíðk- ast nema. í Hollandi. Þing í Sviss. ■Sviss er lýðveldasamband 22 ríkja, eða kantóna. Hver kantóna er talin fullvalda ríki, en í raun og veru era þær undirgefnar sam- bandsstjórninni. Æðsta vald rík- j isins er hjá sambandsþinginu og j það þing er einkennilegt að því j le.vti, að það hefur ekki einungis löggjafai’vald, en einnig mikið framkvæmdavald og dómsvald. En þingvaldið er takmarkað af þjóðvaldinu meira en víðast ann- arsstaðar, þar sem ákvæði um málskot til þjóðaratkvæðis era talsvert rúm og getur þjóðarat-

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.