Lögrétta - 25.06.1930, Síða 8
8
LÖGRJETTA
Ferðafólk!
Þégar þjer þurfið að kaupa klæðn-
að hvort heldur það á að vera
handa kveníólki, karlmönnum
eða börnum, þá komið fyrst
•
til okkar. Viðhöfum stærsta
úrvalið af allskonar fatn-
aði, bæði yzt og innst.
Tvo góða kosti hef-
ir það að verzla
við o k k u r.
Góðar vörur fyrir gott verð
Vöruhúsið
þing (einkum í Ljósvetninga-
sögu) nokkuð óljósar. 1 norðlensk-
um örnefnum eru einnig fólgnar
fleiri minningar um þing (þing-
vað, þingmannavegur o. fl.).
V estf irðingaf jórðungur.
í Vestfirðingafjórðungi voru
fornu þingin Þorskafjarðarþing,
Þverárþing og Þórsnesþing. Hið
síðastnefnda er annað af hinum
elstu og virðulegustu þingum,
sem sögur fara af (stofnað af
Þórólfi mostrarskegg) og eru af
því margar frásagnir í Landnámu,
Eyrbyggju, Sturlungu o. v. Það
er skamt frá Stykkishólmi og eru
þar á staðnum og í grendinni ýms
nöfn, sem minna á þinghald
(Þingvallaborg, Þingvellir, Þing-
vallavogur). Margar búðatóttir
hafa verið athugaðar þar (80—
40), en ekki fult samkomulag um
þær rannsóknir. f Eyrbyggju er
sú einkennilega frásögn um Þórs-
nesþing, að „þar sjer enn dóm-
hring þann, er menn voru dæmd-
ir í til blóts. f þeim hring stend-
ur Þórssteinn, er menn voru
brotnir um er til blóta voru hafðir
og sjer enn blóðslitinn á steinin-
um“. Þverárþing var háð á ýms-
um stöðum í Borgarfirðinum,
fyrst í Þingnesi sunnan Hvítár,
seinna (eftir 970) upp með Gljúf-
urá, við Valfell eða Þinghól, en
einna lengst í Stafholtsey (stund-
um nefnd Þingey í annálum).
Þorskafjarðarþing (í Barða-
strandarsýslu, í, Kollabúðum við
Þorskafjörð) er eitt af hinum
sögulegustu þingum, alkunnugt
úr Gíslasögu, Landnámu o. v.
Búðatóttir margar hafa verið at-
hugaðar þar og bent á tilteknar
búðir, s. s. þeirra Gests Oddleifs-
sonar, Þorkels og Barkar og
Haukdælabúð. Þingið hefur einn-
ig verið háð á fleiri stöðum, og
970 er getið vorþings á Valseyrí
í Dýrafirði og þar í firðinum var
oft háð þing á 12. og 18. öld (Þing-
eyri). Fleiri þingstaða er einnig
getið í Vestfirðingafjórðungi og
ýms nöfn minna þar á þinghald.
í Bandamannasögu er getið
Hvammsleiðar í Norðurárdal. Sú
saga og Gunnlaugssaga nefna
Valfell sem þingstað Borgfirð-
inga. Hjá Tandrafelli er þinghóll
og búðatóftir og þar heitir Þing-
brekka í nágrenninu og er útsýni
gott. Þinghóll er einnig til í Stóra-
Fjallslandi a Mýrum og í Hvammi
í Dölum og þar heitir einnig Lög-
rjetta. Á Lækjarbugi í Hraun-
hreppi hefur verið þriggja hreppa
þing. Vestur í Barðastandarsýslu,
1 Vattarnesi, heitir Dómara-
hvammur og talinn vottur om
gamlan þingstað. 1 Straumfirði er
gamall þingstaður Rauðmelinga,
sem getið er í Eybyggju o. v.
Þar skamt frá heitir Búðar-
hvammur og hafa furdist þar
tóttir, en eru líklega eftir fornar
kaupmannabúðir.
Hinir fornu þingstaðir hafa
verir rannsakaðir af ýmsum
fræðimönnum, Kálund. Sig. Vig-
fússyni, B. M. Ólsen, Finni Jóns-
syni, D. Bruun og Matth. Þórðar-
syni og ýmsum fróðleiksmönnum
í hverju hjeraði um sig. Það yrði
mjög langt mál og flókið að gera
! grein fyrir og rekja sundur all-
I ar þær athuganir, því margt er
| óljóst í þessum efnum og sýnist
: sitt hverjum. Þetta stutta yfirlit
| helstu atriðanna á einungis að
vera til þess að vekja enn á ný
athygli glöggra manna og fróð-
I leiksfúsra í hverri sveit, á at-
hyglisverðum viðfangsefnum í
kringum þá og til þess að minna
menn á það, á að á þúsund ára
hátíð Alþingis má einnig minn-
ast annara þingstaða um alt
land, þingstaða, sem oft eru
tengdar við miklar sögur og
merka menn.
----o----
Islenskur skáldskapur
í þúsund ár. 6
The Danish representative in Ice-
land, Fr. de Fontenay, who has made
a thorough study of Icelandic iitera-
ture calls attention to its lOOOth
anniversa.ry and discusses some of
the outstanding featurcs of thc
poetry, especially that of Egill
Skallagrímsson and Jónas Hallgríms-
son.
Jöfurr hyggi at,
hve ek yrkja fat,
gótt þykkjumsk þat,
es ek þögn of gat.
Það er ekki Alþingið eitt, sem í
ár getur haldið þúsund ára af-
mæli sitt; andlegar mentir Islands
eiga einnig um þetta leyti þúsund
ára afmæli.
Það eru nú þúsund ár, eða þar
um bil, síðan Egill rjeðst ungur í
víkingaferðir, m. a. til Bretlands,
og þar orti hann sjer til lífgjafar
kvæðið Ilöfuðlausn, sem frægt
hefur orðið, og sagan segir að
ort sje á einni nóttu.
Jeg sje því ekki betur en að
einmitt nú sje ástæða til að
minnast þess skálds, er með slík-
um höfðingjabrag og svo hvellu
og snjöllu máli ryður braut hinni
löngu röð íslenskra skálda, Egils
Skallagrímssonar, fyrsta innfædda
stórskálds Islands. Og því meiri
kröfu á hann til þess, að hans sje
nú minst, þegar þess er gætt, að
tunga sú, sem hann mælti og orti
á, er enn í öllum aðalþáttum hin
sama og á hans tíma. Risi hann
upp úr gröf sinni til þess að vera
nú viðstaddur samkomu Alþingis
á Þingvöllum, mundi hann kann-
ast við alt umhverfið, og hann
mundi án efa, þótt nokkrir erfið-
leikar um framburð og málfar
ættu sjer ef til vill stað, bæði geta
skilið. hvað sagt væri, og gert sig
skiljanlegan.
Lög íslenskrar tungu hafa hald-
ist gegnum aldimar og orðaforð-
inn að miklu leyti. Hún er enn
sama málið, sem talað var af
fyrstu landnámsmönnunum. Það
er undir eins veikleiki og styrkur
hinna íslenzku bókmema, að þær
hafa geymt sama talmálið og rit-
málið að mestu leyti óbreytt í
1000 ár. Það eru aðeins Austur-
landamálin, sem eldri eru, og af
bókmentamálum Norðurálfunnar
spánskan ein. Þetta hefur verið
þróun málsins til hindrunar og
hefur haldið því á frumlægu stigi,
en skapar hinsvegar fastan grund-
völl fyrir almenna menningu á
gamalli, þjóðlegri rót. Nútíma-
skáldin geta altaf stuðst við hin
gömlu ljóð, notfært sjer orð
þeirra og bragarhætti, svo að
hvorttveggja þekkist enn og
skilst. Á sama hátt hefur fjöldi
orðatiltækja þjóðvísnanna flutst
yfir í hið danska skáldamál.
Það mun nægja að taka hjer
einstakt dæmi, og vel.ja þá Jónas
Hallgrímsson, ágætasta og form-
snjallasta Ijóðskáld Islands. Ein-
mitt honum, endumýjara tung-
unnar, forvígismanni málhreins-
unarinnar, einmitt honum tekst
svo meistaralega að nota gömlu
bragarhættina og samþýða þá
nútímamálinu. Lítið á leik hans
með ljóðahátt Iiávamála í Ferða-
lokum og Söknuði. I Ferðalokum
umsteypir hann hálfvers úr Háva-
málum:
Jarls ynþe
þóttumk ekki vesa
nema viþ þat at lifa.
Umsteypt er það svona:
Alls yndi
þótti mjer ekki vera
utan voru lífi lifa.
Það er einkennilegt, að sjá
hvemig Jónas með óskeikulum
smekk nær í þýðasta versið í
þessum hluta Hávamála, þar sem
um er að ræða afstöðuna til kon-
unnar.
Fagurfræðilegt mat á íslensk-
um kveðskap er mjög erfitt. I»ví
hefur lítt verið sint í íslenskum
bókmentum og á prenti finnast
fáar leiðbeiningar í þá átt, síst
snertandi hinn forna kveðskap.
Það hefur verið skrifað mikið
af málfræði og bókmentasögu
um Eddukvæðin og Skáldakvæð-
in. En málfræðingarnir hafa átz
erfitt með að skilja lífið á bak
við orðin og ná í mannlegar hugs-
anir og tilfinningar bak við
bragarhætti og rím, mannleg ör-
lög bak við kvæðin um Sigurð og
Helga, Brynhildi, Sigrúnu og Guð-
rúnu. Jeg er í engum vafa um,
að þessi kvæði standa goðakvæð-
unum mikið ofar að skáldlegu
gildi.
I ritum um skáldakvæðin hefur
ekki heldur verið gerð nein grein-
ing á því, hvað þar er skáldskap-
ur og hvað þar er rímsnilli eða
leikur með kenningar í flóknum
og óeðlilegum samsetningum. Þar
liggur mikilvægt efni fyrir handa
íslenskri bókmentarannsókn.
Eigi nú, þegar minst er íslensks
kveðskapar á umliðnum 1000 ár-
um, að draga línu frá fornöld til
nútíma, vil jeg fyrst og fremst
hylla Jónas Hallgrímsson. Hann
hefur með æskulestri sínum
drukkið Suttingamjöðinn, orðið
innlífaður anda og formi fyrir-
rennara sinna á fomöldinni. 1
ýmsum af bestu kvæðum hans er
ósvikinn endurhljómur frá því,
sem mikilvægast er í fomaldar-
kveðskapnum, bæði í formi og
orðavali.
Þegar jeg, samkvæmt þeim al-
gengu bókmentaáhrifum, sem
jeg hef orðið fyrir, hylli Jónas
Hallgrímsson, sem helsta og besta
skáld íslands, er það ekki síst
vegna þess, hve skáldskapur hans
er einfaldur og öllum aðgengileg-
ur. Orð og rím líða ljett og leik-
andi frá penna hans, engin skálda-
leyfi, engar orðaflækjur. Jónas er
orðmyndarinn í hópi íslenskra
skálda, endumýjari málsins, sem
eftirtíminn styðst við. Bragar-
hættir og orð frá honum koma
fyrir aftur og aftur hjá öllum
islenskum skáldum, sem yngri
eru. Og svo er það — sem miklu
skiftir — að mikill hluti af kveð-
skap hans er sannur skáldskapur.
Tækifæriskvæði svo sem: Thor-
valdsen, Tómas Sæmundsson, Gai-