Alþýðublaðið - 14.09.1963, Síða 16
Tjónið metið á nær
Vi millj. danskra kr.
44. árg. — Laugardagur 14. september 1963 — 197. tbl.
NÚ ER ÞAÐ EKKI „ÞORSKASTRÍÐ"
HELDUR STRÍÐ VIÐ TUNDURDUFL
Rætt við Barry Anderson, sem kom hingað í gær
Þa'ð var hellirigning og þoka
grúfði yfir borginni, ÞaS var
sleipt á bryggjunni klukkan að
verða þrjú í gær, þegar flagg
skip Barry Anderson, kapteins
lagðist að bryggju í Reykjavík.
Við spurðunt einhvern brezkan
dáta eftir honum við land
göngtibrúna, o® í sama bil'i
gekk hann frá borði, þessi veð
urbarð? sjómaður, sem eitt
sinn stjórnaði hinuin miður
þokkuðu aðgerðum brezka flot
ans við ísland í „þorskastríð
inu“ fræga. Við báðum um /ið
tal, þegar við liöfðum kastaj' á
hann kveðju.
„Rétt strax,“ svaraði ltann.
„Mín er ánægjan. En þið veröið
að bíða svolítið, því að það
eru fleiri skip að leggjast 'ið.“
Ljósntyndararnir skutu og
skutu og nokkrir forvitnir á
horfendur, gangandi eða í bíl
um voru mættir við skipshlið.
Við biðum við borðstokkinn
unz undirmaður kom og vísað>'
til setustofu yfirmanna, þar
sem beðið var unz kapteinninn
liafði bundið skip sín fimm og
gaf sér tíma til að taka ofan '
húfuna og ræða við fréttamenn
Hann bauð okkur upp í íbúð
sína og tjáði sig reiðubúinn. ~
— Veðrið liefði mátt lieilsa
þér á skemmtilegri liátt.
-— Það var verra í gær.
— Eru skípin ekki fimm?
— Skipin eru fimm, fjórir
tundurduflaslæðarar og eitt
birgðaskip. Það er skipið sem
við erum um borð í núna, og
það er jafnframt ílaggskipið.
. — Og nú er ekkert þorska
stríð lengur, og þú ert bara
kominn til' að eyða tveimur
gömlum tundurduflagirðingum
í samvinnu við íslenzku land
helgísgæzluna fyrir frumkvæði
íslenzkrd yfirvalda. Er það ekki
rétt?
— Aiveg rétt. Og ég vil taka
það skýrt fram að við vorum
beðnir aó aðstoða landhelgis.
gæzluna við þetta verk og við
gerum það með glöðu geði
Þétta er éiginlega vináttuheim
sókn gerð af góðum hug.
— Hvernig farið þið að því
áð íeyða tundurduflunum? ,
4- Við látum tundurduíla
slæðarana slæða þau og ónýt
um þau ýmist í kafi eða með
því að ná þeim upp og gera þau
óvirk. Stundum springa þau í
kafi og svo sekkur allt saman
til botns.
— Þau eru aðeins á tveimur
stöðum?
— Já, í Eyjafirði og Seyðis-
firði. Þessi tundurdufl, sém
þar eru enn eftir, eru svnköll
uð „controlled" tundurdufl
eða dufl, sem eigi’ 'ega matti
fjarstýra úr landi. Kn af tund
urduflum eru vitar’ ga til f jöl
margar tegundir. Þessi tegund
dufla, sem hér er ;,m að ræða,
var einkum lögð (ó að verja
hafnir. Duflin voru !ögð á þann
hátt, að þau voru þ redd á raf-
streng, eins og perlur á-band
og lágu hvorki við botninn eða
rétt undir yfirborði, heldur
laust fyrir neðan miðjan sjó.
Fiskibátar, flutningaskip og
skipalqstiý stríðSáranna gá'tu
siglt til hafnar án þess að
þeim væru nokkur liætta búin
af þessum duflum, en ef kaf-
bátar hefðu ætlað inn á firð
ina og til liafnar og því verið
vpitt athygli úr landi, þurfti
ekki annað en að ýta á hnapp
á réttum tíma. Við það lækk
aði tundurduflagirðingin '. 'tið
eitt í sjó og duflin hefðu
sprungið.
-- Hver er ástæðan til þess,
að • þessum girðingum hefur
ekki verið eytt fyrr?
-í- Ég geri ráð fyrir, að hún
sé :sú, að skipaumferð um fírð
ing er eiginlega meiri hætta
búin af þeim en áður. Þetta •,
er ■ allt saman farið að ryðga,
og ef hvessir eða öldrót er töUi
vert slitna duflin smám samán
af 'strengnum eitt og eitt jog
rekur fyrir vindi og veðri. Að .
visu er ekki þar með sagt, að
þau. springi, þó að þau snerti
t.d. bátana lauslega, en við
harkarlega eða óvarlega með
ferð og þung liögg er hætta á
þvi, og slíkt getur alltaf hent.
— Hefurðu miklð fengizt við
eyðingu tundurdufla?
Hér greip Brian Holt, sendi-
ráðsfulltrúi inn í og svaraði því
til, að Barry Anderson væri
einn fremsti sérfræðingur
Breta á þessu sviði og þaulvan
ur duflabani.
— Hvenær ætlið þið að
hefja verkið
— Ef veðrið verður gott,
siglum við af stað norður í
Eyjafjörð á mánudagsmorgun
og náum þangað kannski á
þriðjudagsnótt. >Þar munum
við eyða girðingarleyfunum,
sem farnar eru að ryðga, eins
og ég sagði áðan, því að bráð
um eru tuttugu ár liðin^ frá
stríðslokum og margt forgeng
ur á skemmri tíma. Síðan
höldum við austur um land lil
Seyðisfjarðar — og þaðan
heim.
— Verða einhverjir um borð
frá Landhelgisgæzlunni?
— Aðeins einn, Lárus Þor
steinsson, skipherra.
— Ætlar hann að læra verk
ið af ykkur?
— Hann af okkur og við af
honum, vona ég.
Smám saman höfðu kapte’n
amir fimm safnazt saman i
íbúð Andersons og hann kynnti
þá fyrir okkur einn og einn.
Brian Holt var þar einnig kom
inn, eins og fyrr segir og ók
Anderson af stað upp í bæ,
þegar við kvöddum.
— Ætlarðu að heilsa upp á
gamla kunningja ur þorska-
stríðinu núna?
— Ég veit ekki, live marga
þeirra ég hitti núna, en það
væri gaman að því. Annars var
Eiríkur Kristófersson hjá mér
í Skotlandi í fyrra, og honum
Framh. á 14. síðu.
ALÞYÐUBLAÐIÐ fékk þær
upplýsingar frá Thorshavn í
Færeyjum í gær, að tjónið vegna
hinnar miklu rigningar og flóða,
muni nema nær hálfri milljón
danskra króna. í minkabúi einu
er tjónið metið á 82 þúsund (d)
krónur. í gær var unnið að við-
gerðum, en vegir eru skemmdir
mjög og víða þarf að dæla vatni
úr húsakjöllurum.
Skýfall þetta er hið mesta, sem
menn muna eftir í Færeyjum. —
Samgöngur og skólasókn náms-
fólks stöðvuðust að verulegu
I leyti. Rigningunni fylgdi ekki mik-
ið hvassviðri og þykir það hin
mesta mildi. Hefði rok fylgt rign-
ingunni er ekki að vita, nema að
vcrr hefði farið en varð.
PARIS, 13. september.
NTB—Reuter.
Stjórn verkalýðshreyfingar
þeirrar, sem koinmúnistar háfa
tögl og haldir í, CGT, mótniæltí
harðlega í dag sparsemdaráætlun
þeirri I efnahagsmálum, sem
Pompidou hefur lagt fram í því
skyni að koma í veg fyrir verð-
bólgu.
Formælendur verkalýðshreyf-
inga jafnaðarmanna og kaþólskra
voru varkárari í ummælum sín-
um um áætlunina.
Bræla á miðunum
BRÆLA er nú á síldarmiðun-
um og bátarnir flestir í höfn eða
vari. Þó var vitað um 9 skip, sem
fengu samtals 4710 mál síldar sl.
sólarhring. Síldin veiddist 130 til
140 mílur austur og aust-suð-
austur af Dalatanga. ?
Margir bátanna eru nú hættir
síldveiðum, einkum smærri bát-
arnir. Síldin er nú komin svo
langt frá landi, að erfitt og,
hættulegt er fyrir minnstu bát-
ana að sækja þangað. í gærkv.
var allt útlit fyrir áframhaldandi
brælu á miðunum.
Bátarnir, sem fengu síld síð-
astliðinn sólarhring voru þessir:
Sigrún AK 450 Hafþór RE 250
Stapafell 400 Sigurpáll 700 Árni
Magnússou 700 Bjergúlfur ,750
Helga 700 Garðar GK 700 og Gull ►
ver 60.
FÓSTRUSKÓLINN
SEM RÍKISSKÓLI?
Skólanefnd Fóstruskóla Sumar
gjafar Iagði bréf fyrir horgarráð
fyrir þremur vikum þess efnis, að
athugaðir verði möguleikar á að
gera skólann að ríkisstofnun í
skólakerfi landsins. Þriðjudaginn
10. sept. hélt borgarráð- 2188.
fund sinn. Þá var þessu máli vís-
að til meðferðar fræðsluráð's.
Athuganir á máli þessu hru því
algjörlega á byrjunarstigi. :Ástæð-
an fyrir því, að skólanefndjn lagði
þetta bréf fram, var fjárhagsörð-
’ugleiki. Skólinn hefúr j fengið
styrk frá ríki og bæ frá *• ári til
árs og Sumargjöf híefur- alveg
.annast rekstur hans. Nú vill skóla
nefndin fá öruggan griundvöll
.fyrir starfsemina, þ. e. fjárhags-
'lega. j'
Skólanefndin hefur ■ engan
beinan áhuga á að gera Skólann
að ríkisskóla. Bréfið var ljagt inn
tíl að vekja athygli viðkomandi
yfirvalda á máli þessu, og til að
athuga hvaða möguleikar væru
fyrir hendi, og hvað væri heppi-
legast að gera til að mynda fjár-
hagslegan grundvöll.
19 flugfélög
vilja lækkun
Salzburg, 13. sept.
(NTB-Reuter).
19 flugfélög, sem halda
uppi ferðurn yfir Atlantshaf
liafa náð samkomulagi f
grundvallaratriðum um
lækkun ódýrari fargjalda.
Samkomulagið náðist á fundi
Alþjóðasambands flugfélaga
(IATA) í Salzburg í dag.
f tilkynningu, sem gefin
var út, segir, að búast megi
við nánari samningsgerð inn
an skamms.