Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 5
ÓÐINN
Jónas í Hróarsdal
53
á hægindinu markaðar
ljet hræköld heljar erla.
Blundstöfum þá brugðið var,
en brandur söng um vígafar
og benrögn hneig á hnjóta.
A melum gagga melrakkar
og mergð af hröfnum kemur þar,
sem ætis ætla að njóta.
III.
Gísli greip til vopna,
grimmir sóttu fjendur; —
þá var nautn að neyta
næmbeitts sverðs og axar.
Allur höfgi horfinn,
hugur svall og dugur.
Gott er griðalausum
geiri vekja dreyra.
Gullu vopn, en geystar
gusa undir blóði;
átta fjellu feigir
fyr en linti jeli.
Sundur flöktu af sárum
sjö er eftir lifðu.
Gísli geirum studdur
gekk um feigðarbrekku.
Nauð er sekt að sæta,
sýnu verra’ en dauði; —
síst er sæld á frestum
sjeu dísir úfar. —
Því skal lastvart lifa,
líknar galdur nema;
iðgnóg heill mun hlotnast
hveim er það ráð geymir.
Fnjóskur.
„Blómin bíða dómin“.
]eg sýndi henni öll mín bestu blóm,
en banvæn var þögnin kalda,
ástþráin las sinn urðardóm;
illhuga nornir því valda.
Gamla skuld á jeg að gjalda.
Fnjóskur.
Fáir munu þeir Norðlendingar vera, sem komnir
eru til vits og ára, er eigi kannast við nöfnin: Jónas
í Hróarsdal. Þykir mjer firnum sæta, að enginn skuli
hafa minst þessa merkismanns í »Oðni« til þessa, því
að vissulega á hann þar öndvegissæti mörgum öðrum
framar, sem þar hefir verið minst með myndum og
ævi-þáttum á liðnum árum. Skal jeg reyna að rök-
styðja mál mitt áður en lýkur, en viðurkenni jafnframt,
að jeg finn vanmátt hjá mjer til þess, að lýsa hinu
margháttaða og merkilega ævistarfi ]ónasar eins og
Jónas Jónsson. Lilja Jónsdóltir.
skyldugt væri og mun verða gert á sínum tíma. Til
þess vantar mig hæfileika, og í annan stað nægilega
kynningu. En svo mikið þekki jeg til, að jeg er þess
eigi dulinn, að Jónas er fágætur og dýrmætur gim-
steinn meðal íslenskra alþýðumanna, og þegar hann
hverfur augum jarðarbúa, verður mikill og grátlegur
sjónarsviftir, er síðla fyrnist. — Jónas er fæddur 20.
sept. 1840 í Hróarsdal í Hegranesi. Var faðir hans
Jón (f. 12. okt. 1801, d. fyrir 1880) bóndi þar, Bene-
diktsson bónda þar, Vilhjálmssonar bónda á Mann-
skaðahóli á Höfðaströnd, svo í Krókárgerði í Norður-
árdal, Jónssonar bónda á Vtsta-Vatni í Lýtingsstaða-
hreppi, Jónssonar, er átti dóttur Vilhjálms bónda í
Merkigarði Auðunssonar. — Kona Bened. og amma
Jónasar var Guðný (f. 1764) Sigurðardóttir, bónda á
Reykjavöllum, þess er úti varð á Kili 1780, Þór-
steinssonar bónda á Nautabúi. En foreldrar Þorst.
voru: Sigurður Jónsson bóndi á Skíðastöðum og kona
hans Þóra Þórláksdóttir prests á Miklabæ, Olafssonar
prests þar (d. 1638) Jónssonar pr. í Grímstungum,
Björnssonar Bjarnasonar Hákonarsonar bónda á Vind-
heimum áiÞelamörk, Hallssonar þar, Finnbogasonar